Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.2008, Page 4
Miðvikudagur 8. Október 20084 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Óskum eftir duglegu starfsfólki í eldhús og sal. Upplýsingar í síma 551 8666 eða vidtjornina@simnet.is Góð síldveiði við Noreg „Við erum að landa í Noregi núna. Við höfum verið á síldveiði og veiðin er ágæt,“ segir Guð- mundur Þ. Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni, einum af togurum Samherja. Vilhelm hef- ur nú þegar landað fullfermi fjór- um sinnum undanfarinn mánuð. „Við eigum eftir að veiða einhver 5 eða 6 þúsund tonn af síldinni, áður en heim verður haldið,“ segir Guðmundur en þeir eru nú við löndun í Bodö sem er nokkuð norðarlega í Noregi. Amfetamín í Grafarvogi Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu handtók mann síð- ustu helgi en hann reyndist vera með rúmlega hundr- að grömm af fíkniefnum í fórum sínum. Í ljós kom að efnin reyndust mestan part vera amfetamín. Maðurinn var hand- tekinn í Grafarvoginum og er á þrítugsaldri. Samkvæmt tilkynn- ingu sem barst frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur maðurinn áður komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefna- misferlis. Manninum var sleppt lausum að yfirheyrslum loknum. „Hver er sinnar gæfu smiður,“ sagði Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, í viðtali í fréttum Stöðvar 2 23. ágúst síðastliðinn þegar hann svaraði spurningum um vaxandi greiðslubyrði fólks vegna húsnæðis- lána. Þá höfðu sumir lýst áhyggjum af því að fólk réði ekki við skuldbinding- ar sínar. Tveimur vikum og nokkrum klukkustundum síðar var ríkið búið að yfirtaka bankann vegna þess að hann réði ekki við skuldbindingar sínar. Ótti við vaxtahækkun Mikil verðbólga og hækkandi vext- ir hafa leitt til þess að lengi var útlit fyr- ir að fasteignalán bankanna myndu hækka umtalsvert þegar endurskoð- unarákvæði lánasamninga tækju gildi. Þannig greindi DV frá því síð- asta vor að vextir íbúðalána sem fólk tók árið 2004 gætu hækkað í sjö pró- sent á næsta ári ef aðstæður breyttust ekki til batnaðar í efnahagslífinu. Þessi endurskoðunarákvæði auk hækkandi verðbólgu sem leiðir til þess að lánin og afborganirnar hækka hafa orðið til þess að valda ýmsum áhyggjum. Greiðslubyrði heimilanna hefur aukist og viðbúið var, þar til síð- ustu tvo daga, að þetta ætti eftir að versna. Þegar rætt var við Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóra Landsbankans, um þetta svaraði hann með þess- um orðum: „Að meðaltali er endur- greiðslubyrði heimilanna ekki verri nú en hún var 2003 en meðaltalið segir ekki allt og það eru vafalaust til heimili sem hafa skuldsett sig of mik- ið og það verður að horfa til þess núna við gerð nýrra kjarasamninga eins og kom fram að kanna hvort menn geta tekið saman, opinberir aðilar, bank- arnir, allir þeir sem að veita fjármála- þjónustu að sjá hvort hægt sé að jafna sveiflurnar í því þannig að byrðin á skuldsettustu heimilin verði ekki of mikil. En hver er sinnar gæfu smiður í því efni og ef skuldsetningin hefur verið of mikil þá verða menn að tak- ast á við það.“ Ósátt við bankastjórann Ummæli Halldórs vöktu hneyksl- an sumra sem sögðu bankastjór- ann ekki geta skellt skuldinni alfarið á heimilin í landinu. Fólk hefði gert áætlanir miðað við þá verðbólgu sem ríkti 2004 og spár manna fram í tím- ann. Þær áætlanir hefðu hins veg- ar brugðist þegar verðbólgan fór af stað og bæði lánin og greiðslubyrðin hækkaði. Að auki var bent á að fólk fékk ekki lán fyrr en að undangengnu greiðslumati hjá bönkunum sem hefðu talið að fólk gæti staðið undir greiðslum af lánum sínum. Ríkið grípur inn í Tveimur vikum eftir að Halldór lét þessi orð sín falla samþykkti Alþingi svo neyðarlög til að taka á banka- kreppunni og þeim vanda sem marg- ir skuldugir húseigendur eru lentir í. Samkvæmt þeim lögum getur Íbúða- lánasjóður yfirtekið öll húsnæðisveð bankanna og reynt að auðvelda fólki að standa við skuldbindingar sínar. Nokkrum klukkustundum síðar, síðla í fyrrinótt, yfirtók Fjármálaeftirlitið fyrir hönd ríkisvaldsins svo rekstur Landsbankans þar sem ljóst þótti að hann gæti ekki staðið við skuldbind- ingar sínar. „...ef að skuldsetningin hefur verið of mikil að þá verða menn að tak- ast á við það.“ Halldór J. Krist- jánsson vakti nokkra hneyksl- un með orðum sínum um að fólk yrði að taka á því ef það hefði skuld- sett sig meira en það réði við. Tveimur vikum eftir að Halldór lét umdeild ummæli sín falla var ríkið búið að yfirtaka bankann hans og tilkynna að það kæmi skuldurum til aðstoðar. „HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR“ BRynJÓlfuR ÞÓR Guðmundsson fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is Í þungum þönkum Halldór J. kristjánsson, bankastjóri Landsbank- ans, virtist í þungum þönkum áður en fundur hófst með starfsmönnum bankans þar sem ráðherrar reyndu að skýra hvað gerðist næst. mynd RÓBeRt Þriðjudagur 29. apríl 20088 Fréttir DV Verðbólga í 20 ár 25,2% Desember 1989 12,0% september 1990 íslendingar bjuggu við óðaverðbólgu. Eitthvað varð að gera og svarið var þjóðarsátt. 9,2% nóvember 1990 Síðasta skipti sem verðbólga mældist meiri en í dag. Verðbólga lækkaði hratt við þjóðarsátt og fór undir tíu prósent og niður í fimm prósent næsta vor. 8,2% nóvember 1991 -0,1% nóvember 1994 Verðbólga hækkaði tímabundið á fyrsta ári Viðeyjarstjórnar. Mikill samdráttur einkenndi kjörtímabilið 1991 til 1995 og þá varð verðhjöðnunar vart, en aðeins í einn mánuð. 0,9% október 1998 Verðbólgan var lítil seinni hluta tíunda áratugar síðustu aldar. RISAHÆKKUN FASTEIGNALÁNA „Ég er þeirrar skoðunar að samfé- laginu beri að aðstoða þetta fólk. Auðvitað eigum við hvert og eitt að bera ábyrgð á því sem við gerum, ég tala nú ekki um þegar lagt er í stórar fjárfestingar líkt og íbúðarkaup. Það breytir því þó ekki að fólk var nánast teymt inn í þetta. Bankarnir komu með lánasprengju á tiltölulega lág- um vöxtum og ég lái ekki ungu fólki að hafa stokkið til,“ segir Grétar Þor- steinsson, forseti Alþýðusambands Íslands. Aðstoð samfélagsins til handa þeim sem vaða nú skuldafen vegna stórra fjárfestinga á undanförn- um árum þyrfti að útfæra frekar að mati Grétars en gæti komið til með greiðslufrestun, svo dæmi sé tek- ið. Honum finnst það allt of mikil einföldun að setja alla ábyrgðina á hendur þeirra sem fjárfestu. Verðbólga á Íslandi hefur ekki verið meiri í átján ár. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,8 prósent. Undan- farna þrjá mánuði hefur hún hækk- að um 6,4 prósent sem jafngildir 28 prósent verðbólgu á ári. Verðbólgan er töluvert meiri held- ur en greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Glitnir komst næst með 10,2 prósenta spá sinni. Landsbank- inn spáði 10,1 prósents verðbólgu og Kaupþing tíu prósent. Horfa á lánin sín hækka Venjuleg húsnæðislán hækka gífurlega í júní þegar verðtrygg- ing vegna verðbólguskotsins í mars kemur inn í lánaupphæðina. Þeir sem í dag borga af 20 milljóna króna láni þurfa í júní að borga af tæpum 700 þúsund krónum til viðbótar. Lánið hækkar sem því nemur á ein- um mánuði, eingöngu vegna verð- bólguhækkunar. Húsnæðislán sem stendur í 30 milljónum verður orðið að 31 millj- ónar króna skuld í júní. Þannig lækk- ar lánið ekki eins og eðlilegt væri, heldur hækkar. Verðbólgan leiðir því til þess að 40 milljóna króna lán verður von bráðar að 41,4 milljóna króna láni. Miðað við 12 mánaða verðbólgu í 11,8 prósentum hækkar lánið í 44,7 milljónir á einu ári. Bílalánin hækka hlutfallslega jafnt en snerta budduna síður. Tveggja milljóna króna bílalán er orðið 68 þúsundum krónum hærra í sumarbyrjun, en þá er ekki tekið til- lit til afborgana í millitíðinni. Fjög- urra milljóna lán hækkar á sama tíma um 136 þúsund krónur vegna verðbólgu. Hjá mörgum verður staðan því væntanlega sú að höfuð- stóll lánsins stendur í stað þrátt fyrir að borgað sé af því. Máttvana ríkisstjórn „Engin ríkisstjórn í tuttugu ár hefur verið jafnmáttvana gegn efna- hagsástandinu,“ segir Guðni Ágústs- son, formaður Framsóknarflokks- ins. Verðbólgan hefur ekki hækkað jafnmikið í tvo áratugi og ekki verið hærri í átján ár. „Forsætisráðherra ber þar meiri ábyrgð en nokkur ann- ar,“ sagði Guðni. Í upphafi óundirbúinna fyrir- spurna á Alþingi í gær kom Guðni upp í pontu. Hann beindi spurning- um sínum til Geirs H. Haarde for- sætisráðherra, en ekki fyrr en Guðni hafði hrósað Geir fyrir að mæta yfir- höfuð á þessum viðsjárverðu tímum. „Það verður að segja honum til virð- ingar að hér situr hann. En það verð- ur að segja eins og í Njálu að hann striti við að sitja,“ sagði Guðni. Vítavert gáleysi forsætisráðherra Að mati Guðna er nauðsynlegt að ríkisstjórnin bretti upp ermarnar í stað þess að firra sig ábyrgð og horfa til Seðlabankans. Þar hafa vextir nú verið hækkaðir í 21 skipti í röð án þess að nokkuð bíti á verðbólguna sem nú er orðin sú hæsta í heimi. Því má líkja því við vítavert gáleysi forsætisráðherra að grípa ekki inn í sjálfur. Guðni er harðorður. „Verð- bólgan vex, vandræðin vaxa. Ég tel að ríkisstjórnin eigi að segja af sér.“ Geir lét sér fátt um finnast og gantaðist með þessi orð Guðna: „Nú vantaði bara að háttvirtur þingmað- ur segði að hann sjálfur byðist til að taka við.“ Þó viðurkenndi Geir að nýj- ar verðbólgutölur væru mjög slæm- ar, mun verri en búist hafði verið við. Hins vegar hafi legið fyrir að við myndum fara í gegn um verðbólgu- kúf og sú staðreynd að verðbólgan hafi aukist þetta mikið á jafnskömm- um tíma og raun ber vitni sýni að lík- legt sé að verðbólgan muni fara hratt minnkandi. Leysir aðeins hluta af vandanum Lækkun á gengi íslensku krón- unnar og hækkun hrávöruverðs á al- þjóðamörkuðum hefur leitt til mik- illar verðhækkunar. Til að reyna að sporna við þessu var í gær tilkynnt að ríkisstjórnin ætli að leggja fjór- ar milljónir í verkefni sem unnin verða í samvinnu við ýmsar stofnan- ir og fyrirtæki. Fjárveitingin var veitt að beiðni Björgvins G. Sigurðsson- ar viðskiptaráðherra sem lagt hefur „Það breytir því þó ekki að fólk var nánast teymt inn í þetta. Bank- arnir komu með lána- sprengju á tiltölulega lágum vöxtum.“ ErLa HLynsdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Húsnæðislán hækka Þrjátíu milljóna króna íbúðalán verður orðið að láni upp á rúma þrjátíu og eina milljón í júní, eingöngu vegna vaxandi verðbólgu. DV Fréttir Þriðjudagur 29. apríl 2008 9 9,4% janúar 2002 Netbólan sprakk og verðbólgan fór á fullt skömmu eftir aldamót. 8,6% ágúst 2006 11,8% apríl 2008 Mesta verðbólga frá því landsmenn náðu óðaverð- bólgunni niður með þjóðarsátt. Verðbólga hefur verið mikil hin síðari ár og tók kipp fyrir tæpum tveimur árum. sérstaka áherslu á neytendur eftir að hann tók við embætti. Alþýðusamband Íslands mun beita sér í auknu verðlagseftirliti í takt við verkefni viðskiptaráðuneyt- isins. Grétar Þorsteinsson, forseti sambandsins, segir þessi verkefni vissulega skref í rétta átt en þó ljóst að vandamálið verði ekki leyst með þeim einum. „Þessar aðgerðir hafa klárlega áhrif á verðlagið, sérstak- lega á sviði matvöru. Hins vega eru allar vörur undir og allar tegundir þjónustu. Þó að við sinnum matvör- unum erum við ekki að leysa vand- ann nema að takmörkuðu leyti,“ seg- ir hann. „Þvílík háðung!“ Guðni sagði í pontu að hann hefði rætt við Grétar fyrr um daginn þar sem hann sagðist sakna þess sam- takamáttar sem einkenndi viðbrögð ríkisstjórnarinnar á árunum 2001 og 2002 þegar grípa þurfti inn í erfitt efnahagsástand. Munurinn, að mati Guðna, lá í því að þá var Framsókn- arflokkurinn í ríkisstjórninni ásamt Sjálfstæðisflokki, í stað Samfylking- ar nú. Honum finnst lítið koma til þeirra fjögurra milljóna sem ríkisstjórnin virðist halda að eigi eitthvað í té við verðbólgudrauginn: „Þvílík háðung!“ sagði Guðni og spurði Geir: „Er virki- lega svona erfitt að eiga við Samfylk- inguna í efnahagslegum úrræðum?“ Geir sagðist þó lítast svo á að Guðni gerði sér ekki grein fyrir eðli verð- bólgunnar. Óprúttnir aðilar hækka í skjóli verðbólgu Í samtali við DV segir Grétar Þor- steinsson að hækkun á verðlagi stafi ekki eingöngu af verðbólgunni: „Það er deginum ljósara að ýmsir hafa í skjóli þessara verðhækkana nýtt sér ástandið. Það er auðvitað skelfilegt og kemur þessum aðilum sjálfum í koll að lokum,“ segir Grétar. Hann vill þó ekki gefa upp um hverja er að ræða. Miklar verðhækkanir að und- anförnu skýrast margar hverjar af hækkandi heimsmarkaðsverði, til dæmis á olíu og kornvörum. „Ég ætla ekki að leggja dóm á hvort einhverjar þeirra séu um of,“ segir Grétar. Hon- um þykir hins vegar alvarlegt að sum fyrirtæki hafi notfært sér ástandið til að græða enn meira á neytendum. Grétar líkir ástandinu nú við stöð- una fyrir um 30 árum þegar verð- bólgan var í hámarki. „Þá hækkuðu menn í skjóli hækkana sem rök voru fyrir. Það var eitthvað sem ég hélt að ég myndi ekki upplifa aftur,“ segir hann. Geir tók undir þessi orð Grétars á Alþingi í gær og sagði ástæðu til að vara sig á óprúttnum aðilum sem hækka verð án gildra raka en halda að þeir komist upp með það vegna ríkjandi ástands. Lægri tolla og lægri vörugjöld Jóhannes Gunnars- son, formaður Neyt- endasamtakanna, bindur vonir við millj- ónirnar fjórar og verk- efnin í heild sinni: „Með þessum aðgerð- um er vonast til þess að ákveðinn þrýstingur verði settur á framleið- endur, smásala og inn- flytjendur að leita allra ráða áður en hækkanir komi út í verðlag. Síðan er þetta líka hugsað þannig að auka upplýs- ingamiðlun og hvetja neyt- endur til að láta vita þegar þeim finnst hækk- anir vera of miklar,“ segir Jó- hannes. Þó svo að Jóhannes sé nokk- uð vongóður segist hann hafa viljað að litið væri til lengri tíma. „Ég vildi til dæmis sjá yfirlýsingar um lækkun vörugjalds og tolla til að koma verðlagi niður. Eftir því sem ég best veit er ekki búið að útiloka neitt í þessum efnum. Til dæmis varðandi vörugjaldið. Við eigum vonandi eftir að sjá margþættari aðgerðir, því stjórnvöld geta gert meira.“ Til bjargar ungu fólki grétari Þorsteinssyni finnst að samfélagið eigi að aðstoða þá sem tekið hafa íbúðalán að undanförnu. Hann láir ekki ungu fólki að hafa stokkið á gylliboð bankanna. Aukið aðhald að beiðni Björgvins g. Sigurðssonar leggur ríkisstjórnin fram fjóra r milljónir til að auka aðhald í verðhækkunu m. Verðbólgan fer minnkandi geir Haarde viðurkennir að verðbólgan sé mun meiri en búist var við en telur víst að hún fari nú hratt minnkandi. Vill afsögn ríkisstjórnarinnar guðni Ágústsson hvetur ríkisstjórnina til að segja af sér vegna þeirrar óráðsíu sem nú ríkir í efnahagsmálum. að hans mati ber geir Haarde höfuðábyrgð á ástandinu. Íbúar í nágrannalöndum Íslands glím a nú við miklar verðhækkanir á heimsmarkaðsv erði. En vandi Íslendinga er meiri og umfangs meiri en vandi nágrannaþjóða okkar. Kjaftshög gið sem Íslendingar fá er þrefalt því auk þess a ð glíma við verðhækkanir á heimsmarkaði glím a Íslend- ingar við hækkanir vegna lækkunar kr ónunnar og í þriðja lagi vegna hækkunar á verð tryggðu og gengistryggðu lánununum. Á áttunda og níunda áratugnum einke nnd- ist íslenskt efnahagslíf af óðaverðbólgu . Seðla- bankinn greip þó ekki inn í heldur var það fyrst og fremst fyrir tilstilli fulltrúa vinnumar kaðarins og almennings sem tókst að stilla verðbó lgunni í hóf. Árið 1990 var hin svokallaða þjóðar sátt milli aðila vinnumarkaðarins og hins opinb era gerð. Markmiðið var að auka jafnvægi í efnah agsmál- um sem höfðu verið í miklum ólestri . Sáttin byggðist á tímabundinni skerðingu ka upmátt- ar og gengisfestu sem leiddi til verðstöð ugleika. Þannig var fyrirtækjum í landinu gert kleift að ná betra jafnvægi í rekstri en mörg þei rra voru nálægt því að leggja upp laupana eð a höfðu þegar gert það. Kaupmáttur jókst hæg t og ró- lega eftir að þjóðarsáttin var gerð og v ar fjögur prósent árið 1991. Efnahagskerfið á Ísl andi var nánast komið að hruni. Með samstil ltu átaki var hægt að koma í veg fyrir efnahagsle gt hrun. Verðbólgan lækkaði og hefur haldist í skefjum, allt fram til dagsins í dag. ÞREFALT KjAFTSHöGG miðvikudagur 30. apríl 20088 Fréttir DV „Málið er nokkuð skýrt af okk- ar hálfu. Við förum einungis fram á það að fólk virði Ólympíusáttmál- ann. Í 51. grein hans kemur fram að fólki sé óheimilt að hafa uppi hvers kyns áróður sem lítur að kynþáttum, trúarbrögðum eða stjórnmálum, þegar það er á keppnissvæðum eða undir merkjum Ólympíuhreyfingar- innar.“ Þetta segir Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, aðspurður hvort íslensk- um íþróttamönnum verði bannað að mótmæla mannréttindabrotum í Kína eða Tíbet. Breska ólympíunefndin greip á dögunum til þeirra ráða að banna slík mótmæli. Ólafur segir slíkt ekki hafa komið til tals hjá íslensku ólympíunefndinni. Spurður um viðurlög við broti á 51. grein sátt- málans segir hann þau einungis lúta að íþróttunum sjálfum. „Brot á henni leiða fyrst og fremst til sviptingar verðlauna, það verður enginn hnepptur í fangelsi eða eitthvað álíka. Það hvernig einstaka ólympíunefndir haga sínum skil- yrðum eða viðurlögum er þeirra mál,“ segir Ólafur. Hann segist fyrst og fremst vilja höfða til skynsemi og mannréttinda okkar keppenda. „Þau eru frjáls skoðana sinna. Við munum ekki hefta skoðanir eða tjáningarfrelsi okkar afreksmanna,“ segir hann en bætir því við að ólympíunefndir stærri þjóða hafi vissar áhyggjur af málinu. „Ég heyrði það á fundi Heimssambands ólympíunefnda í byrjun apríl að stærri þjóðirnar höfðu áhyggjur af því að fjölmiðlar virtu rétt keppenda til að tjá sig ekki. Við óskum þess að fjölmiðlar virði það sjónarmið. Keppendur þurfa að fá frið til að einbeita sér að undirbúningi og keppni,“ segir Ólafur að lokum. baldur@dv.is Ólympíusáttmálinn virtur Ólympíuleikar Ólafur rafnsson, forseti íSí, segir íslenska ólympíufara frjálsa skoðana sinna. Truflaði ekki störf lögreglu Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Svein Birki Björns- son, ritstjóra Reykjavík Grape- vine, af ákæru um að hafa truflað störf lögreglu á gatnamótum Laugavegar og Skólavörðustígs 31. október á síðasta ári. Sveinn Birkir sagðist hafa séð lögreglu handtaka konuna en ekki skipt sér af því fyrr en hann átti aftur leið hjá 15 mínútum síðar. Þá hélt lögreglumaður konunni enn niðri. Sveinn Birkir segist hafa spurt lögregluþjón hvort það væri nauðsynlegt að halda konunni niðri. Fékk hann þau svör að hann ætti ekki að skipta sér af því annars yrði hann handtekinn. Þá hafi hann spurt hvort það væri réttlætanlegt að handtaka mann fyrir að spyrja spurninga. Því næst hafi hann verið kominn í handjárn. „Þegar bankarnir fóru inn á markað- inn á sínum tíma buðu þeir vexti sem þeir geta ekki staðið við í dag. Þeir eru að tapa á þessum lánum,“ segir Ingólfur H. Ingólfsson fjármálaráð- gjafi um íbúðalán á 4,15 prósenta vöxtum sem viðskiptabankarnir byrjuðu að bjóða árið 2004. Margir viðskiptavinir skrifuðu undir endur- skoðunarákvæði vaxtanna að fimm árum liðnum í von um að greiðslu- byrðin myndi þá lækka enn meira. Raunin er hins vegar allt önnur. Íbúðakaupendur sem tóku lán á 4,15 prósenta vöxtum árið 2001 geta átt von á að greiða sjö prósenta vexti af láninu frá haustinu 2009 þeg- ar endurskoðunarákvæðið kemur til framkvæmda hjá bönkunum. Tuga þúsunda aukning Þeir sem greiða þá af 10 millj- óna króna láni mega búast við því að borga um tuttugu þúsundum króna meira á mánuði. Á ársgrundvelli nemur greiðsluþyngingin 225 þús- undum króna. Íbúðaeigendur með 20 milljóna króna lán á bakinu þurfa að reiða fram fjörutíu þúsundum meira á mánuði til að halda í við vaxtaþróun. Yfir árið er heildarupphæðin um 450 þúsundir króna. Fastir vextir sem viðskiptabank- arnir bjóða nú upp á eru 6,3 prósent hjá Landsbankanum, 6,4 prósent hjá Kaupþingi og 6,5 prósent hjá Glitni. Því er hóflega áætlað að gera ráð fyrir sjö prósenta vöxtum að rúmu ári. Eiga í engin hús að venda Ingólfur segir að vextirnir sem bankarnir buðu árið 2002 hafi verið það lágir að þeir sjái sér ekki hag í því að bjóða fólki þá áfram. Viðskiptavinir sem gerðu samkomulag við bankann um endurskoðun eftir fimm ár geta valið að greiða upp lánið án aukakostnaðar ef þeir sætta sig ekki við vaxtahækkunina. „Ég held að bankinn yrði bara feginn,“ segir Ingólfur í ljósi þess að bankarnir tapa á viðskiptavinum sem greiða þessa lágu vexti. Ef sú leið er farin þarf íbúðar- eigandinn hins vegar að finna sér lán annars staðar á betri vöxtum en bankinn býður, og það getur reynst heldur vandasamt. Margir munu því þurfa að láta vaxtahækkanirnar yfir sig ganga og reiða fram það fé sem bankinn óskar. Alls engin verðtrygging Þó er nauðsynlegt að hafa í huga að margir lánþegar vildu alls ekki láta endurskoða sína vexti heldur kusu að halda þeim föstum allt lánstímabilið. Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segir því ekki hægt að halda því fram að bankarnir hafi blekkt viðskiptavini sína þar sem þessi valmöguleiki stóð þeim til boða. Enginn gat á þessum tíma sagt fyrir um hver vaxtaþróunin yrði og allt eins mögulegt að vextirnir myndu lækka. Talsmenn Alþýðusambandsins, ásamt fleiri aðilum, héldu því mjög á lofti þegar bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn að viðskipta- vinir þyrftu að vera vakandi fyrir þeim möguleika að greiðslubyrðin gæti hækkað mjög ef viðskiptavinur kysi þessa verðtryggðu breytilegu vexti. Ingólfur segir það í raun út í hött að kalla þetta verðtryggingu vaxta á fjörutíu ára láni því hún gildi í raun aðeins í árin fimm fram að endur- skoðun. ErlA HlynsdÓTTir blaðamaður skrifar: erla@dv.is HEIMILIð Í HÆTTU lán mánaðargreiðSlur mánaðargreiðSlur árSgreiðSlur árSgreiðSlur4,15% vextir 7% vextir 4,15% vextir 7% vextir10 milljónir 45.182 kr. 63.886 kr. 542.180 kr. 766.628 kr.Aukning á mánuði 18.704 kr. Aukning á ári 224.448 kr. lán mánaðargreiðSlur mánaðargreiðSlur árSgreiðSlur árSgreiðSlur4,15% vextir 7% vextir 4,15% vextir 7% vextir20 milljónir 90.363 kr. 127.771 kr. 1.084.360 kr. 1.533.255 kr. Aukning á mánuði 37.408 kr. Aukning á ári 448.895 kr. Dæmi um afborganir Margir munu því þurfa að láta vaxtahækkan- irnar yfir sig ganga og reiða fram það fé sem bankinn óskar. Endurskoðun að ári ingólfur H. ingólfsson segir út í hött að tala um verðtryggingu langtímalána þegar hún gildir aðeins þar til bankanum er heimilt að endurskoða vextina. F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð þriðjudagur 29. aPrÍL 2008 dagbLaðið vÍsir 77. tbL. – 95. árg. – verð kr. 295 besta rannsóknarblaðamennska ársins dv.is glímir við rólegan markað Vernharð þorleifsson: auSturríkiJósef fritzl lét líta út fyrir að 18 ára dóttir hans hefði strokið að heiman árið 1984.nú er ógeðslegt leyndarmál hans komið upp á yfirborðið. hann hélt henni fanginni í 24 ár og eignaðist með henni sJö börn beint undir fótum grunlausrar eiginkonu sinnar. Verðbólguskotið Vegur að íbúðakaupendum: Risahækkun fasteigna lána versta verðbólga í 18 ár ríkisstjórnin fylgist með Í gær. Engar blekkingar gylfi arnbjörnsson segir hvorki banka né viðskiptavini hafa vitað á sínum tíma hver vaxtaþróunin yrði. Því sé ekki hægt að segja að bankarnir hafi blekkt viðskiptavinina. 29. og 30. apríl 2008 dv varaði við mikilli hækku fasteignalána síðasta vor. Íslendingur stunginn í Danmörku 27 ára Íslendingur var stunginn í bakið í miðborg Álaborgar í Danmörku að- faranótt þriðjudags. Fram kemur á vef Ekstra Bladet að maðurinn hafi verið, ásamt tveimur öðrum Íslendingum, á gangi fyrir utan Hótel Fönix í miðborginni þegar bíll kom upp að þeim. Tveir menn stukku út úr bílnum og réðust á Íslendingana án nokkurs fyrirvara. Einn mun hafa særst en hann hlaut stungu- sár á baki en er ekki alvarlega slasaður. Talið er að árásar- mennirnir séu um 25 ára og var annar þeirra innflytjandi í Danmörku eða afkomandi þeirra. Íslendingurinn er sagður hafa verið í heimsókn í Álaborg þegar árásin varð. Ekki var búið að taka gröf þegar syrgjendur komu í kirkjugarð: Höfðu tekið vitlausa gröf „Þetta reyndist misskilning- ur en fólk tók þessu með ró,“ segir séra Vigfús Þór Árnason, sóknar- prestur í Grafarvogskirkju, en það hvimleiða atvik átti sér stað fyrir stuttu að ekki var búið að taka gröf einstaklings sem var jarðsunginn í kirkjunni. Eftir athöfnina í kirkj- unni fylgdu syrgjendur kistunni í kirkjugarðinn í Grafarvogi. Þeg- ar komið var að grafreitnum kom í ljós að ekki var búið að taka gröf fyrir hinn látna. „Það var blessað og signt yfir kistuna og síðan haldið í erfi- drykkju,“ segir Vigfús Þór um við- brögðin þegar í ljós kom að engin gröf hafði verið tekin. Syrgjendur urðu hissa á því að gröfina vantaði og en tóku því með stóískri ró. Þau fóru í erfidrykkju á meðan gröf- in var tekin. Síðan var kistan látin síga niður. Gestir héldu þá aftur að gröfinni og luku athöfninni. Sjálfur segir Vig- fús að svo virðist sem um misskilning hafi verið að ræða hjá útfararstofunni en það er á hennar ábyrgð að gröfin sé tekin. Í ljós kom að búið var að taka gröf á öðrum stað í kirkjugarð- inum við hlið skyldmennis hins látna. Aðspurður hvort Vigfús Þór hafi lent í öðru eins svar- ar hann því til að svona lagað hafi ekki komið upp hjá honum á þeim þrjátíu og tveimur árum sem hann hefur starfað sem prestur. Ekki er ljóst hvaða útfararstofa sá um útförina en Vigfús segir mis- skilninginn mann- legan og skiljanleg- an. valur@dv.is Vigfús Þór Árnason Hefur ekki lent í öðru eins í þau 32 ár sem hann hefur starfað sem prestur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.