Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Síða 15
Miðvikudagur 22. Október 2008 15Umræða Íslendingar standa frammi fyrir bráðavanda og langtímavanda. Því miður erum við að byrja að finna fyrir bráðavandanum. Hann birtist í því að fyrirtæki í viðskiptum við útlönd koma ekki gjaldeyri landa á milli, vöruskortur er að byrja að gera vart við sig, ferðamenn í útlöndum lenda í hremmingum, námsmenn erlendis verða fyrir stórfelldri kjara- skeðringu og eiga auk þess í erfið- leikum með að fá peninga senda frá Íslandi sér og sínum til framfærslu. Allir þeir sem finna fyrir bráða- vandanum knýja á um lausn þegar í stað. Ísland skal blóðmjólkað Vandinn er sá að lausn á bráða- vandanum er háður lausn á lang- tímavandanum. Samhengið er þetta: Við þurfum að taka erlend lán til að hjól viðskipta, þar með á gjaldeyris- markaði geti farið að snúast að nýju. Hér kemur Aljóðagjaldeyrissjóður- inn inn í myndina. Hans hlutverk er meðal annars að greiða úr gjaldeyr- iskrísum í heiminum en fyrst og síð- ast lítur hann á sig sem eins konar heimslögreglu kapítalismans. Und- anfarna daga hefur hann notað tím- ann vel. Allir þeir sem gefið hafa til kynna að þeir vildu lána Íslending- um bæta því nú að sögn alltaf við að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn þurfi að veita öllum slíkum lánum bless- un sína. Það gera Rússar og nú síð- ast norski seðlabankinn. Heimslög- regla kapítalismans er tilbúin að veita slíka blessum. En fyrst þurfi Ís- lendingum að blæða. Þeir þurfa að skuldsetja sig inn í framtíðina svo erlent vogunarkapítal fái sitt. Þetta eru fyrstu skilyrðin, svo skulum við ræða um vexti og ríkisútgjöld. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ánægður með Árna Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins horfðu á með velþóknun þegar Árni Matthiesen undirritaði skuld- bindingar gagnvart Hollandi fyr- ir fáeinum dögum og einnig þegar hann tók að munda pennann gagn- vart Bretum. En undir hvað er hann að skrifa? Hvaða skuldbuindingar er ríkisstjórnin að gefa gagnvart Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum þegar hún þiggur blessun hans? Þetta vitum við ekki nema á mjög yfirborðslegan hátt. Hitt vitum við að ríkisstjórnin gengur til viðræðna um þessi efni án þess að skilgreina samningsfor- sendur sínar. Svo mikið höfum við fengið að vita. Að vita hvað maður vill Enginn andmælir því að Íslend- ingar eigi að virða lagalegar og þjóð- réttarlegar skuldbindingar sínar. En hverjar eru þær? Þarna hafa verið uppi áleitin álitamál. Virtir fræði- menn hafa bent á að skulbinding- ar Íslendinga séu ekki eins rúmar og ráðherrar í ríkisstjórninni gangi út frá. Þegar Íslendingar einhentu sér í viðræður um Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna á sínum tíma urðu þeir leiðandi afl við samninga- borðið. Hvers vegna? Og hvers vegna skyldi aldrei hafa verið neinn bilbug á Íslendingum að finna í landhelg- isstríðunum? Það var vegna þess að þeir vissu hvað þeir vildu, höfðu lagt niður fyrir sér þær forsendur sem þeir ætluðu að standa á og hvaða markmiðum þeir ætluðu að ná. Rugluð í súrefnisnauð Engu slíku er til að dreifa hjá nú- verandi ríkisstjórn. Við höfum fylgst með ráðherrum koma út úr súrefn- issnauðum Ráðherrabústaðnum, gráa og ruglaða. Ofsagt? Nei, rík- isstjórnin gerir sér ekki grein fyrir því að umboðinu sem hún hefur til að skuldbinda þjóðina eru takmörk sett. Þetta þekkjum við þegar fjárlög eru annars vegar. Þá þarf opna um- ræðu og samþykki þings. Allir gera sér grein fyrir að hálfur annar millj- arður sem Samfylkingin ætlar að fá úr vasa skattgreiðenda til að fjár- magna nýja „varnarmálastofnun- un“ mun kalla á mikla umræðu á Alþingi. En hvað þá með skuldbind- ingar um mörg hundruð milljarða, jafnvel á annað þúsund milljarða eða meira sem ríkisstjórnin ætlar að skrifa á næstu kynslóð og þarnæstu, börn okkar og barnabörn? Heldur hún að það geti gengið fyrir sig um- ræðulaust? Og telur ríkisstjórnin sig yfirleitt hafa umboð til slíkra skuld- bindinga? Og það meira að segja án þess að ræða málin. Hvað ef fólk neitar að borga? Hvað ef fólk segir einfaldlega að Árni þessi Matthiesen sé ekki á sínum vegum. Hann hafi ekki umboð til þess- ara verka. Hvað þá? Ég hef orðið var við það að sauð- tryggustu stuðn- ingsmenn ríkisstjórnar- innar mega ekki heyra á það minnst að ríkisstjórn- in þurfi að endurnýja umboð sitt með kosning- um. Kannski er það ekkert skrítið því þá þurfa ráðherra að standa skil verka sinna. Þá yrði ríkisstjórnin nauð- beygð til að leggja spil- in á borðið og segja þjóð- inni hvað ráðherrar eru að hvíslast á um við fulltrúa heimslögreglu kap- ítalismans. Ég hef grun um að það þoli ekki allt jafn vel dagsljósið. Hver er maðurinn? „gunnar eyjólfsson, leikari og iðka að staðaldri Qi gong.“ Hvað drífur þig áfram? „Orkan sem ég fæ í gegnum Qi gong.“ Uppáhaldsbók? „Ég held að uppáhaldsbókin mín sé innansveitar- krónika eftir Halldór Laxness vegna þess að amma mín er fyrirmyndin að henni guðrúnu Jónsdóttur. Hann viðurkenndi það opinberlega í beinni útsendingu, hann Halldór, eftir að ég sagði honum söguna af ömmu minni. Nú er hún orðin klassísk fyrir vilja og tilstuðlan Halldórs. blessuð sé minning hans alla tíð.“ Uppáhaldsbíómynd? „Ég hef séð margar óskaplega góðar bíómyndir en sú síðasta er þýska myndin Líf annarra. Svo vil ég líka nefna brúðgumann hans baltasars. Hún var virkilega góð.“ Hefurðu áður leikið í uppfærslu á Hart í bak? „Nei, en ég sá það í gamla daga og kynntist þá Jökli. Þau voru stutt, en góð.“ Áttu eitthvað sameiginlegt með Jónatan skipstjóra? „Nei, ég held ég eigi ekki margt sameiginlegt með honum. en ég hef mikla samúð með honum. Ég hef gífurlega samúð með mönnum sem orðið hefur á í lífinu og reyna að bæta fyrir það.“ Ertu ekki löngu orðinn ónæmur fyrir góðum dómum? „Það gleður mann að fá góða dóma vegna þess að það eru svo margir sem standa að þessu. Ég gleðst því fyrir hönd hópsins og leikhússins þegar vel hefur tekist.“ Sérðu sameiginlega þræði í Hart í bak og því sem hefur verið að gerast í íslenska þjóðfélaginu að undanförnu? „Það virðist alla vega mörgum finnast það. Ég er kallaður strandkapteinninn og ég veit ekki hvað og hvað. Fólkið í Qi gong- tímunum spyr hvort ég ætli ekki að koma skútunni aftur á flot.“ Hvað er fram undan? „að leika í þessu verki. Svo er ég líka að fara á öldrunarstofnanir einu sinni í viku að spjalla við fólkið um Hart í bak og lífið almennt. Þeir sem hafa áhuga koma svo og sjá sýninguna. Ég hlakka mjög til þessa.“ Umboðslaus ríkisstjórn HRAðAEftiRlit Sprækir lögreglumenn sinntu umferðareftirlitinu í gær meðal annars með því að aðgæta hraðamyndavél við Sæbrautina í reykjavík. Þeim fer sífellt fjölgandi sem eru komnir með vetrardekkin undir bílinn og með aukinni meðvitund um svifryk eru fólk í auknum mæli farið að notast við annað en nagladekk yfir vetrartímann. Mynd RAkEl ÓSk SigURðARdÓttiR Á að ganga til kosninga Á næstunni? „Nei, það vil ég ekki.“ ÆvAR SigURðSSon 26 ára kvikMyNdagerðarMaður „Já, það finnst mér en ég vil ekkert gefa upp um það hvað ég myndi kjósa en það verður það sama og síðast.“ BRAgi gUðBRAndSSon 43 ára aFgreiðSLuMaður „Já, en er ekki öll vitleysan eins?“ AnnA kolBEinSdÓttiR 26 ára NeMi „Já, en ég veit ekki hvað ég myndi kjósa.“ ElvAR gUnnARSSon 26 ára keNNari Dómstóll götunnar gUnnAR EyJÓlfSSon hefur fengið afar lofsamlega dóma fyrir túlkun sína á Jónatan skipstjóra í leikritinu Hart í bak sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu um síðustu helgi. Samúð með mönnum Sem bæta Sitt ráð „Já, og þá myndi ég kjósa eitthvert nýtt afl.“ ÁRni fRiðRikSSon 41 árS vörubíLStJóri kjallari mynDin ögMUndUR JÓnASSon alþingismaður skrifar „Við höfum fylgst með ráðherrum koma út úr súrefnissnauðum Ráð- herrabústaðnum, gráa og ruglaða. Ofsagt? Nei.“ maður Dagsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.