Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2008, Side 22
Miðvikudagur 22. Október 200822 Fólkið
Spennuþáttaröðin Svartir englar í
Sjónvarpinu var vinsælasti dagskrár-
liðurinn í íslensku sjónvarpi vikuna
6. til 12. október samkvæmt mæling-
um Capacent. Tæplega 55 prósent
landsmanna á aldrinum 12 til 80 ára
horfðu á þáttinn þessa vikuna. Þættir
Sjónvarpsins tróna í fjórum efstu
sætum listans og í átta af tíu efstu
sætunum. Spaugstofan fylgir fast á
hæla Svartra engla með 52 prósenta
áhorf, tveir af hverjum fimm lands-
manna sáu spurningaþáttinn Útsvar
og þar á eftir kemur spjallþátturinn
Gott kvöld með 35 prósenta áhorf. Þá
kemur Stöð 2 til skjalanna með sinn
vinsælasta dagskrárlið, Dagvaktina,
með 33 prósenta áhorf. Singing Bee
á Skjá einum er í fjórtánda sæti með
ríflega 16 prósenta áhorf.
Mugison hefur verið valinn til
þess að koma fram á farandshátíð-
inni All Tomorrow‘s Festival, betur
þekkt sem ATP, sem fer fram helgina
5. til 7. desember næstkomandi í
Minehead á Englandi. Hátíðin hefur
þá sérstöðu yfir aðrar að ein hljóm-
sveit sér um að velja hverjir koma
fram á hátíðinni og var það tónlist-
armaðurinn Mike Patton sem sér-
valdi Mugison til þess að koma fram.
Mike Patton mun, ásamt sveitinnni
Melvins, stýra hátíðinni í ár. Íslenska
sveitin Ghostdigital mun einnig
koma fram á hátíðinni.
Hlæja með
Íslendingum
„Þeim þykir gífurlega vænt um
Íslendinga og ég segi að þeir séu
að koma á hárréttum tíma til þess
að gleðja fólk og koma því til að
hlæja,“ segir María Hjálmarsdóttir,
stórvinkona dönsku grínistanna.
En félagarnir Casper Christensen
og Frank Hvam munu, ásamt leik-
konunni Iben Hjejle, gleðja aðdá-
endur sína í Iðusölum í Lækjargötu
í dag. María á einmitt heiðurinn af
því að Íslendingar fengu að kynn-
ast danska dúóinu.
„Þeir eru að koma hingað til
landsins til þess að fagna góðu
gengi, bæði í Danmörku og á Ís-
landi. Fimmta serían kemur út
á DVD 4. nóvember í Danmörku
og hefur hún göngu sína inn-
an skamms hér á landi. Þeir eru
í raun að sína þakklæti sitt í garð
Íslendinga fyrir viðtökurnar sem
þeir hafa fengið hér á landi,“ seg-
ir María og bætir við: „Vinsældir
þáttanna hér á landi voru mikill
sigur fyrir þá. En áður en sýn-
ingar hófust á Íslandi höfðu
þættirnir einungis verið
sýndir í Danmörku. Núna
hafa þeir verið seldir til
allra hinna Noðurland-
anna.“ Gestirnir fá einn-
ig smjörþefinn af sjöttu
seríu sem hefur göngu
sína í Danmörku fljót-
lega.
Með dönsku stjörnunum mæta
blaðamenn frá öllum helstu blöð-
um Danmerkur og segir María
þetta góða tilbreytingu frá allri
neikvæðu umfjölluninni sem Ís-
land hefur fengið í erlendu press-
unni.
„Ég spurði þá hversu mörg-
um ég mætti bjóða. Sagði þeim að
þeir ættu í kringum þrjú hundruð
íslenska vini á Facebook og hvort
það væri ekki aðeins
of mikið að bjóða
þeim öllum. En
þeir sögðu mér
bara að bjóða
hverjum sem
væri. Ætli
þetta verði
ekki fyrstir
koma fyrstir
sjá.“
Aðspurð
hvort félagarnir verði ekki með eitt-
hvert grín í dag svarar María: „Lík-
lega. Þeir eru þekktir fyrir það. Þeir
eru æðislegir báðir tveir. Hrikalega
jarðbundnir. Húmor þeirra er ekki
ósvipaður því sem við sjáum í þátt-
unum þó svo að þeir hafi ekki lent í
öllu því sem gerist í þáttunum. Þeir
ýkja allt og eru með gífurlega auð-
ugt ímyndunarafl.“
Kapparnir stoppa þó stutt við.
„Þeir mæta beint úr flugvélinni í
þennan viðburð. Seinna um kvöld-
ið ætlum við út að borða rétt fyrir
utan bæinn og svo fara þeir aftur
úr landi daginn eftir,“ segir María
að lokum og hún hlakkar mjög til
að hitta félaga sína á ný.
hanna@dv.is
Frank Hvam og Casper Christensen úr hinum geysivinsæla sjónvarpsþætti Klovn
langar að gleðja helstu aðdáendur sína hér á landi með því að bjóða þeim í sýningar-
partí í Iðusölum í Lækjargötunni milli 16 og 18 í dag.
Íslenska handboltalandsliðið er
ekki það eina sem kemur heim til
Íslands með verðlaunapening frá
Ólympíuleikum. Íslenska kokka-
landsliðið er nú í Þýskalandi þar
sem liðið tekur þátt í Ólympíuleik-
um matreiðslumeistara og hefur
nú þegar hlotið eina gullmedalíu
af fjórum mögulegum í flokki sem
nefnist Heitir réttir.
Langur undirbúningur lá að baki
þátttökunni og hafði liðið einsetið
sér að ná í gull en þetta er í fyrsta
skipti sem íslenska kokkalandsliðið
hlýtur gull á ólympíuleikunum.
Gullverðlaunin hlaut liðið fyr-
ir íslenskan saltfisk og hreindýr og
eru meðlimir landsliðsins sann-
færðir um að íslenska hráefnið hafi
verið það sem heillaði dómarana.
Ekki aðeins hreppti liðið gullverð-
laun fyrir heita réttinn heldur var
líka uppselt í hádegisverðinn hjá ís-
lenska landsliðinu en keppnin fór
fram í hádeginu og gafst gestum
kostur á að velja sér land sem það
vildi helst snæða hjá fyrir um það
bil þrjú þúsund og fimm hundruð
íslenskar krónur.
Það er þó ekki þar með sagt að
landsliðinu hafi gengið allt í haginn
við förina til Þýskalands. Liðið hélt
utan síðastliðinn föstudag og lenti
fyrst í átta klukkutíma bið eftir flug-
inu á Leifsstöð og þegar vélin loks-
ins lagði af stað var tekinn smá út-
úrdúr og vélinni flogið til Póllands
áður en lent var í Þýskalandi.
krista@dv.is
Fyrsta ólympÍugullið
ÍsLensKa KoKKaLandsLIðIð sLó Í gegn með ÍsLensKu hreIndýrI og saLtfIsKI:
Hrepptu ólympíugull fyrir heita réttinn enn á íslenska kokkalandsliðið
möguleika á að næla sér í þrjú gull til viðbótar. mynd Bragi Þór
Klovn á landinu:
englarnir
vinsælastir
góðir vinir María Hjálmarsdóttir
ásamt félögunum Frank og Casper.
Á virtri
tónlistar-
HÁtÍð