Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Blaðsíða 6
Þriðjudagur 28. Október 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Hjónin Ólafía Guðmundsdóttir og Þórarinn Siggeirsson hafa í tvígang misst aleig-
una í bruna. Fyrsta hús þeirra brann til kaldra kola á Þorláksmessu árið 1982 en þá
bjuggu þau í Vestmannaeyjum. 26 árum seinna kviknaði í húsi þeirra í Reykjavík og
nú er svo komið að nærri allar þeirra eigur eru ónýtar. Ólafía segist sátt með að vera á
lífi og tekur fram að þau séu rík af vinum sem aðstoði þau á þessum erfiðu tímum.
MISSTU ALEIGUNA
Í ANNAÐ SINN „auðvitað er ömurlegt að vera búinn að missa allt sitt en maður verður bara að byrja upp á nýtt.“
„Það brann næstum allt, húsið
okkar eyðilagðist og er nú gjör-
samlega óíbúðarhæft,“ segir hin
54 ára Ólafía Guðmundsdóttir
en fimmtudagskvöldið 16. októb-
er varð hús þeirra hjóna eldi að
bráð. Hún segir að það sem ekki
hafi brunnið hafi sviðnað og eyði-
lagst og sé nú ónýtt af reyk og sóti.
Eldurinn kviknaði í hjólhýsi sem
var fyrir utan húsið og leiddi svo
inn í húsið. Ólafía og eiginmað-
ur hennar Þórarinn Siggeirsson
eru brött þrátt fyrir allt saman og
vilja hefjast handa við uppbygg-
inguna.
Töfrasófinn
„Við eigum ennþá húsmun-
ina úr stofunni, þeir sluppu,“ segir
Ólafía og tekur fram að þegar kvikn-
aði í húsi þeirra í Eyjum hafi einmitt
sama sófasettið og hillusamstæð-
an sloppið við skemmdir. Eldur-
inn kviknaði klukkan sjö að kvöldi
en þá var dóttir Ólafíu á heimilinu.
Hún hélt að hún hefði orðið vör við
einhvern umgang í húsinu og fór
að athuga það nánar. Þá kom í jlós
að eldur hafði kviknað. Hún reyndi
að hringja í slökkviliðið en síminn
virkaði ekki. Dóttir Ólafíu rauk þá
út úr húsinu og fékk að hringja hjá
nágranna við hliðina. Ólafía þakkar
guði fyrir að atvikið hefði ekki átt sér
stað að nóttu til en þá er hún viss um
að þau hefðu ekki lifað af og enginn
hefði verið eftir til frásagnar.
Búa í sumarhúsi
„Auðvitað er ömurlegt að vera
búinn að missa allt sitt en maður
verður bara að byrja upp á nýtt,“
segir Ólafía og bætir því við að nú
þurfi þau bara að bretta upp erm-
ar og byrja að laga húsið. Hún segir
þau ætla sér að fara sem allra fyrst
í uppbygginguna, og verið sé að
vinna í því að þau geti byrjað strax
í næstu viku. „Mig dreymir um að
vera komin inn í febrúar en fólk
segir að ég sé bjartsýn,“ segir hún
og hlær. Þau hafast við í sumar-
húsi sínu rétt fyrir utan Stokkseyri
en þar er ekkert heitt vatn og eng-
in þvottavél. Þau hafa þó fengið að-
stoð frá ýmsum og hafa nú aðgang
að húsi sem er í eigu elliheimilisins
á Stokkseyri en þar geta þau baðað
sig og þvegið föt.
Rík af vinum
„Maður fær einhvern ótrúleg-
an styrk, það gefur manni ein-
hvern kraft við svona aðstæður,“
segir Ólafía. Hún segir marga
persónulega muni hafa glatast
í eldsvoðanum og það sé erfitt
að upplifa slíkt á nýjan leik. Þau
eiga þó ennþá fjölskyldumynd-
irnar en Ólafía segir marga per-
sónulega og dýrmæta muni hafa
glatast. Hún segir þó að minn-
ingarnar séu ennþá í minninga-
bankanum. „Við erum bara gríð-
arlega þakklát þeim sem hafa
hjálpað okkur. Maður sér hvað
maður er ríkur af góðum vinum
þegar maður lendir í svona. Rík-
idæmi er ekki endilega peningar
heldur gott fólk,“ segir Ólafía að
lokum.
JÓn BJaRki maGnúSSon
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Byrja upp á nýtt ólafía guðmunds-
dóttir og Þórarinn Siggeirsson hafa
misst hús sitt tvisvar sinnum í
eldsvoða, nú síðast 16. október.
Bréf sem Þráinn Eggertsson, próf-
essor í hagfræði við Háskóla Íslands,
ritaði var birt í Financial Times í gær.
Þar kemur fram að þær skuldir sem ís-
lenska þjóðin muni þurfa að greiða
jafnist á við þjóðarframleiðslu lands-
ins. Hann tekur einnig fram að vextirnir
af slíkum lánum verði í kringum 3 til 4
prósent en það sé nokkuð svipuð pró-
senta og hagvöxtur hér á landi. „Byrð-
in er óraunveruleg. Líklegar afleiðingar
eru; gríðarleg verðbólga, efnahagslegt
hrun, gríðarlegur fólksflótti og pólitísk
uppþot og óreiða,“ skrifar Þráinn meðal
annars í bréfi sínu.
Þráinn tekur fram að samkvæmt
fréttum Financial Times muni Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn ásamt nokkrum
þjóðum lána íslenska ríkinu hátt í 700
milljarða íslenskra króna. Hann nefnir
einnig að fram hafi komið hugmyndir
þess efnis að breska ríkisstjórnin láni
Íslendingum 540 milljarða og sú hol-
lenska 165 milljarða vegna IceSave-
reikninga en þau lán þurfi öll að greiða
til baka. Þráinn segir lánin sem Ísland
muni taka vera jafnhá og helmingur
lána sem Ungverjaland þurfi að taka
vegna efnahagsástandsins þar í landi.
Munurinn sé sá að í Ungverjalandi búi
10 milljónir manna en á Íslandi aðeins
320 þúsund. Þráinn segir að erlendir
fjölmiðlar átti sig ekki á því hversu alvar-
legar afleiðingar það geti haft í för með
sér, mögulega fyrir aðrar þjóðir í Evr-
ópu, að Nató-þjóð farið svo illa. Að lok-
um segist hann minnast Versalasamn-
inganna sem Þjóðverjar voru knúðir til
að skrifa undir árið 1919.
Gríðarlegur fólksflótti og pólitísk uppþot
Ruslið hækkar
í verði
Þeir sem þurfa að losa sig
við mikið af rusli á Suðurnesj-
um finna eflaust fyrir hækk-
andi verðskrá Kölku á næst-
unni en stjórn fyrirtækisins
samþykkti að hækka hana um
8,54% og tók breytingin gildi
um síðustu mánaðamót. Kalka
er í eigu fimm sveitarfélaga á
Suðurnesjunum og fer eignar-
hlutur hvers sveitarfélags eftir
stærð þess. Hækkunin á verð-
skrá Kölku er sögð tilkomin
vegna verðbólgu og hækkunar á
neysluverðsvísitölu samkvæmt
því er fram kemur í fundargerð
stjórnarinnar.
Spíttpakki
á Hrauninu
Lögreglan á Selfossi hand-
tók þrjá karlmenn á Eyrarbakka
á miðvikudagskvöld. Þeir voru
grunaðir um að hafa kastað
pakka yfir girðingu og inn á lóð
fangelsisins á Litla-Hrauni en
pakkinn fannst við leit á svæð-
inu. Við nánari eftirgrennslan
kom í ljós að pakkinn innihélt
hvítar töflur og duft en við efna-
rannsókn reyndist þetta vera
amfetamín, rúmlega tíu töflur og
lítilræði af dufti. Við yfirheyrslur
viðurkenndi einn mannanna að
hafa verið með efnin og kastað
pakkanum yfir girðinguna.
Fíkniefnaakst-
ur vinsæll
Lögreglan í Keflavík hef-
ur á undanförnum tveimur
vikum stöðvað átta ökumenn
vegna gruns um akstur undir
áhrifum fíkniefna og fimm
ökumenn vegna gruns um
akstur undir áhrifum áfeng-
is. Ef litið er lengra aftur í
tímann og embættið borið
saman við önnur embætti á
landinu kemur í ljós að lög-
reglan í Keflavík hefur stöðv-
að langflesta ökumenn vegna
gruns um akstur undir áhrif-
um fíkniefna en þeir skipta
hundruðum. Annars var
helgin að mestu leyti tíðinda-
laus fyrir sunnan fyrir utan
nokkur hávaðaútköll.
Rektor í útgáfu
Ágúst Einarsson, rektor við
Háskólann á Bifröst, hefur gefið
út bókina „Greinasafn – síðara
bindi“ en bókin hefur að geyma
úrval greina og erinda. Sam-
kvæmt vefsíðu Bifrastar er efnið
valið þannig að það gefi heild-
stæða mynd af þeim álitaefnum
sem eru uppi á hverjum tíma.
Þetta bindi skiptist upp í þrjá
kafla en í þeim fyrsta er fjallað
um efnahagsmál. Annar kafli
fjallar um sjávarútvegsmál og sá
þriðji fjallar um heilsuhagfræði,
Kína, byggðamál, kvikmyndir og
landbúnað. Þetta er ekki fyrsta
bókin sem Ágúst gefur út en
hann hefur gefið út eina bók ár
hvert síðustu fimm ár.
Fólksflótti Í bréfi eftir Þráin eggertsson
sem var birt í Financial times kemur fram að
skuldir Íslendinga muni leiða til gríðarlegrar
verðbólgu og efnahagslegs hruns.
Búast má við gríðarlegri verðbólgu og efnahagslegu hruni segir hagfræðingur: