Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Side 9
Þriðjudagur 28. Október 2008 9Fréttir
Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, kallar eftir því að lagt verði fram hvað var rætt á fundi að-
stoðarmanna ráðherra og fulltrúa útvalinna fjölmiðla. Hún segir mikilvægt að allar upplýsingar liggi á borð-
inu á tímum sem þessum. Róbert Marshall, aðstoðarmaður samgönguráðherra, segir allar umræður fundar-
ins þola dagsljósið og engin leynd hafi hvílt yfir honum.
ALLT UPP Á BORÐIÐ
„Ég kalla eftir því að fram verði lagt
það sem rætt var á þessum fundi,“
segir Arna Schram, formaður Blaða-
mannafélags Íslands, um leynifund
aðstoðarmanna ráðherra með fulltrú-
um útvalinna fjölmiðla á dögunum.
Hún segir að það hljóti að teljast eðli-
legt að þeir sem voru viðstaddir fund-
inn greini frá því sem þar fór fram.
Róbert Marshall, aðstoðarmaður
samgönguráðherra, segir að ekki hafi
verið að biðja um neina sérstaka um-
fjöllun né heldur að reynt hafi verið
að hafa áhrif á ritstjórnarlegt efni.
Settir inn í ástandið
Eins og DV greindi frá í gær voru
Páll Magnússon útvarpsstjóri, Þor-
steinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðs-
ins, og Ólafur Stephensen, ritstjóri
Morgunblaðsins, boðaðir á fund með
aðstoðarmönnum ráðherra í Háskól-
anum í Reykjavík 10. október síðast-
liðinn. Þjóðfélagið lék á reiðiskjálfi og
óvissan var mikil á þessum tíma. Ól-
afur Stephensen sagði að á fundin-
um hefði mönnum verið veittar upp-
lýsingar um hvað hefði verið í gangi í
þjóðfélaginu.
Arna segir að fundahöldin geti
vakið tortryggni. „Það hefur verið erf-
itt að fá upplýsingar um hvað er að
gerast og almennt er miður hversu
erfitt hefur reynst að fá upplýsingar
frá ráðamönnum um þau mál sem
eru í gangi í þjóðfélaginu á þessum
erfiðleikatímum.“
Óttast framhaldið
„Almenningur hefur rétt á því að
fá eins ítarlegar upplýsingar og hægt
er. Því er óþægilegt til þess að vita ef
einhverjir leynifundir hafi farið fram,“
segir Arna, en ítrekaði að upplýsing-
ar sínar um málið væru bundnar við
það sem hún las um málið í DV í gær.
Arna segist óttast að á þessum síðustu
og verstu tímum verði tilhneigingin
sú að sópa mikilvægum upplýs-
ingum undir teppið
og að
ákvarðanir verði teknar í lokuðum
bakherbergjum. „En ég vona vissu-
lega að sá ótti minn reynist ekki rétt-
ur. Það er mikilvægt, á svona tímum,
að allar upplýsingar liggi á borðinu,“
segir Arna og bætir við að ólíðandi sé
hversu erfitt hefur reynst að fá upp-
lýsingar frá stjórnvöldum og þeim
sem starfi í umboði þeirra síðustu
vikurnar.
Fundarefni þolir dagsljósið
„Það er ekkert sem rætt var á þess-
um fundi sem þolir ekki dagsins ljós,“
segir Róbert Marshall, aðstoðarmað-
ur samgönguráðherra, um fundinn
með fjölmiðlamönnunum. Þegar
DV spurðist fyrir hjá Steingrími Sig-
urgeirssyni, aðstoðamanni mennta-
málaráðherra, hvað rætt hefði verið
á fundinum sagði hann þar hafa far-
ið fram almennar samræður sem að
hans mati væru trúnaðarmál.
„Við sögðum þeim frá þeirri að-
gerðaáætlun sem við værum farnir af
stað með til að endurreisa traust og
orðspor Íslands. Við útskýrðum fyrir
þeim hvernig við værum að vinna þá
áætlun og báðum um framlag og hug-
myndir. Þetta var fundur sem stóð í 25
mínútur,“ segir Róbert og bætir við að
rætt hafi verið við hátt í 40 manns víðs
vegar úr samfélaginu á sambærilegan
hátt.
„Það var ekki verið að biðja um
neina umfjöllun, enda hefur ekkert
slíkt sést. Það var ekki verið að reyna
að hafa áhrif á neitt ritstjórnarlegt
efni. Því var ekkert leynilegt við
fundinn og engin trúnaðarmál sem
þarna voru rædd. Enda var enginn
sem mætti á þennan fund beðinn
um að halda því leyndu,“ segir Ró-
bert að lokum.
SiguRðuR MikAel jÓnSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Borðleggjandi arna Schram, formaður
blaðamannafélags Íslands, kallar eftir
upplýsingum um fund aðstoðarmanna
ráðherra með fulltrúum þriggja
fjölmiðla. Hún segir eðlilegt að þeir sem
viðstaddir voru greini frá því sem þar fór
fram.
Aðgerðaáætlun kynnt „Það er ekkert
sem rætt var á þessum fundi sem þolir
ekki dagsins ljós,“ segir róbert Marshall.
Fjölmiðlamennirnir þrír hafi verið beðnir
um framlag og hugmyndir að aðgerðaá-
ætlun stjórnvalda til að endurreisa traust
og orðspor lands og þjóðar.
Háskólinn í Reykjavík Fundarstaður
aðstoðarmanna ráðherra og forsvars-
manna fjölmiðla 10. október
síðastliðinn.