Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2008, Side 14
Svarthöfði fær ekki betur séð en aðeins tveir fjölmiðlar standi vaktina í kreppunni og láti sér fyrst og fremst umhugað um
almenning í landinu og sinni sálgæslu
fjöldans frekar en að strjúka tættum
sjálfsmyndum stjórnmálamanna og
fyrrverandi auðmanna með silki-
hönskum. Hér er vitaskuld átt við DV
og Útvarp Sögu. Svarthöfði hefur vita-
skuld alltaf borið sterkar taugar til DV
og auðvitað þarf ekki að fjölyrða um
einfaldar ástæðurnar fyrir því hvers
vegna DV er uppáhaldsblað Svart-
höfða. Öðru máli gegnir um Útvarp
Sögu en Svarthöfða hefur löngum
þótt stöðin sú ansi hjákátleg og hefur
helst séð skemmtigildi í því að hlusta á
gegndarlausan vaðalinn í furðulegum
fastahlustendunum.
Auðvitað var þetta viðhorf Svarthöfða mengað af góð-ærishrokanum en Svarthöfði var, eins og svo margir aðrir,
með glýju í augunum og þótti enginn
vera maður með mönnum nema
hann ætti lúxusjeppa, tjaldvagn og
lifði í almennum vellystingum í krafti
myntkörfuláns. Nú hefur Svarthöfði
hins vegar áttað sig á að þeir sem
fleyttu góðærisrjómann eru fíflin en
þeir sem supu marga fjöruna á með-
an og sögðu frá því á Sögu eru hinir
mestu spekingar.
Útvarp Saga má eiga það sem hún á og það er ekki lítið. Hún er beintengd við alþýðuna, þessa alþýðu
sem Arnþrúður á Sögu ætlar sko
ekki að láta skera auðmennina
úr snörunni og enn síður að
láta apakettina sem múg-
urinn kaus yfir sig komast
upp með að halda áfram
fíflaganginum
sem setti landið
á hausinn. Ó,
nei! Nú er sko
líf á Sögu og
á meðan
Jón Baldvin
stendur eins
og sturlaður
byltingar-
leiðtogi
án
byltingar og öskrar froðufellandi yfir
nokkur hundruð hræðum á tröppum
ráðherrabústaðarins fer hin raunveru-
lega andspyrna fram á Útvarpi Sögu.
Þar vaknar fólk í byltingar-hug við ráman reiðilestur Arnþrúðar sem eirir engu á meðan froðusnakkarar á öðr-
um stöðvum tala um sjálfstyrkingar-
námskeið og kökuuppskriftir eða eitt-
hvað álíka fánýtt. Þá kemur æringinn
Halldór E. sterkur inn í símatímum á
föstudögum og tekst einhvern veginn
að hafa taumhald á eintrjáningnum
og harðlínurepúblíkananum Jóni
Val Jenssyni á milli þess sem hann
espar kommahjörðina upp þannig
að blóðþrýstingur hennar fer alveg
upp að þolmörkum. Tvö ólíklegustu
kyntröll Íslandssögunnar, Sigurður G.
Tómasson og Guðmundur Ólafsson
hagfræðingur, lyfta föstudögum Svart-
höfða alltaf upp með frjálslegu tali
sínu um ástina og kynlífið. Þess á milli
benda þeir strangir á helstu sökudólg-
ana í hruninu en á aftökulista þeirra
eru litlir grænir kallar, Davíð Oddsson
og allt þar á milli. Kynlíf og kreppa.
Frábær blanda.
Strigakjafturinn Sverrir Storm-sker hefur heldur ekki gefið þumlung eftir frá því hann hóf upp London Docks-meng-
aða rödd sína á Sögu og í þeim tryllta
heimi sem nú blasir við þjóðinni er
brengluð lífssýn Stormskersins kær-
komin vin í andlegri eyðimörk góðær-
istremmans.
Útvarp Saga hugsar svo sann-arlega um sína og veitir hlustendum sínum and-legan stuðning og finn-
ur reiði þeirra heppilegan farveg en
gremjunni er vitaskuld veitt beint inn
í eyru allra hinna sem eru að tryllast
á ástandinu. Þetta fólk á fyrr eða síð-
ar eftir að tala sig sameiginlega upp
í slíkan ofsa að byltingin hlýtur að
brjótast út og þá fyrst verður barist fyr-
ir betri heimi. Uppreisn með Arnþrúði
í fylkingarbrjósti er öllu lífvænlegri en
sú sem Kolfinna Baldvinsdóttir hefur
verið að brasa við að hrinda af stað
með engum árangri.
Helsta byltingarhetja Sögu er svo tvímælalaust fasta-kúnninn Eiríkur Stefáns-son en þessi fyrrverandi
verkalýðsleiðtogi hringir reglulega
inn og gargar hressilega á alla þá
óláns garka sem hafa komið okkur á
vonarvöl. Eiríkur er nefnilega búinn
að eyrnamerkja alla illmennahers-
inguna og slengja henni saman við
hina alræmdu olígarka í Rússlandi.
Nú gargar Eiríkur á útrásargarkana,
stjórnmálagarkana og alls konar fleiri
garka. Nú veður svo hressilega á Eiríki
að Svarthöfði skilur hann aldrei alveg
og er fjarri því að átta sig á því hvernig
hann hugsar yfirleitt. En assgoti er vel
til fundið að einfalda leitina að hinum
seku með því að gera þá að görkum.
Orð í tíma töluð og -garki er orðin al-
menn skammarending.
Áfram íslensk alþýða! Niður með garkana!
Þriðjudagur 28. Október 200814 Umræða
GarGað á Garkana
svarthöfði
Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Björgólfur var hljómsveitarstjóri í sinfóníu sukksins.
Hann lagði þjóðina að veði
Leiðari
Gagnrýni Björgólfs Guðmundssonar á íslenskan almenning kemur úr hörðustu átt. Hann segir að við Íslendingar höf-um verið gripnir „kaupæði“ í aðdraganda kreppunnar.
Vandamál Íslendinga er augljóslega að of miklu lánsfé var dælt inn
til landsins, án þess að eftirlitsaðilar ræktu þá skyldu sína
að takmarka tjón af óumflýjanlegri endurgreiðslu þess.
Björgólfur sakar Íslendinga um að hafa misst stjórn á
sér í einhvers konar æði, eða eyðslufíkn, sem olli því
að þeir keyptu flatskjái, jeppa og raftæki í stórum stíl.
Þegar horft er á stjórnleysi einstaklinga vegna fíkn-
ar er nærtækt að horfa til líkingar við fíkniefnaneyt-
endur. Í reynd minna ummæli Björgólfs á fíkniefnasala
sem gagnrýnir dópista fyrir neyslu og skammast í
lögreglunni fyrir að hafa ekki stoppað hann af.
Björgólfur gagnrýnir sjálfur peningamála-
stefnu Seðlabankans, en helsta vandamálið
við hana var að hún gerði Björgólfi kleift að
soga lánsfé frá Bretlandi til Íslands vegna
vaxtamunar. Enginn neyddi Björgólf til
þess að gera það, en honum var gert það
mögulegt, og það þykir honum greinilega
miður.
Afleiðingarnar af gjörðum Landsbank-
ans og fleiri banka, sem stjórnvöld gerðu bæði mögulegt og hindr-
uðu ekki, voru þær að almenningur varð að skuldsetja sig meira
til þess að halda í við aðra. Fasteignaverð hækkaði um helming á
örskömmum tíma eftir að bankarnir komu inn á húsnæðislána-
markaðinn og lánshlutfallið var hækkað fyrir tilstuðlan ríkis-
stjórnarinnar. Bankarnir létu lánsféð flæða yfir landið og eyddu
háum upphæðum í auglýsingar til að sannfæra fólk um að taka
lán fyrir smæstu hlutum. Ástæðan fyrir því að þeir gátu sogið
til sín allt þetta fjármagn var sterkur ríkissjóður og stórhættu-
leg vaxtastefna Seðlabankans. Björgólfur nýtti sér þetta til
að verða moldríkur á meðan venjulegir Íslendingar söfnuðu
skuldum sem hann gagnrýnir okkur nú fyrir.
Nokkrir hafa stigið fram að undanförnu og kennt
almenningi um hvernig fór fyrir íslensku efna-
hagslífi. Það er hins vegar ómögulegt fyr-
ir venjulegan Íslending að bera fjármálalega
eða peningalega ábyrgð á þjóðarbúinu. Orð
Björgólfs eru móðgun í garð þjóðarinnar.
Það voru hans líkar sem spanderuðu fé án
þess að raunveruleg innistæða væri fyrir því.
Björgólfur var hljómsveitarstjóri í sinfón-
íu sukksins, spilaði rassinn úr buxunum og
lagði þjóðina að veði.
spurningin
„Já, ég á flatskjá
og borgaði fyrir
hann í reiðufé.
Engir Icesave-
peningar þar,“
segir Birgitta
Jónsdóttir,
ljóðskáld og
byltingarfrömuð-
ur, en auðkýfing-
urinn björgólfur
guðmundsson sagði í viðtali við
Morgunblaðið að kreppusökin lægi
einnig hjá almenningi sem hefði tekið
lán fyrir öllum flatskjáunum.
áTTu flaTskJá?
sandkorn
n Ráðning nýrra bankastjóra
og annarra stjórnenda ríkis-
bankanna þriggja leggst mis-
jafnlega í fólk. Þannig hefur
sprottið upp mikil umræða um
launakjör aðalstjórnendanna.
Elín Sig-
fúsdóttir,
bankastjóri
Landsbank-
ans, hefur
enn ekki
fengist til að
upplýsa um
sín laun.
Finnur
Sveinbjörnsson, bankastjóri
Kaupþings og mágur Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
utanríkisráðherra, var einn um
að upplýsa um að hann hefði
tæpar tvær milljónir á mánuði.
Hann sýndi síðan þann mann-
dóm að óska eftir lækkun til að
vera jafn bankastjóra Glitnis í
launum.
n Vangaveltur eru uppi um
hrikalega stöðu Framsókn-
arflokksins í nýjustu skoð-
anakönnun Fréttablaðsins og
veika stöðu Guðna Ágústsson-
ar formanns.
Þrýst er á
Valgerði
Sverrisdótt-
ur varafor-
mann að
fara gegn
formanni
sínum og
rétta af mál-
flutninginn í Evrópumálum.
Flokkurinn hefur raunar sam-
þykkt að kanna kosti og galla
með opnum huga en formað-
urinn sneri af þeirri braut og
hefur talað ákveðið gegn ESB.
n Eyþór Arnalds, leiðtogi
minnihluta í Árborg, hefur
lagt fram tillögu um ítarlegar
sparnaðaraðgerðir í sveitar-
félagi sínu til að mæta hinum
mögru tímum. Aðgerðirnar
eiga að
ná til fjöl-
margra
liða í
rekstri
sveitarfé-
lagsins. Þá
vill Eyþór
að sam-
fylkingar-
konan Ragnheiður Hergeirs-
dóttir bæjarstjóri lækki laun
sín til að minnka vandann.
Óvíst er um vilja hennar til að
mæta þeirri ósk.
n Vandræðaleg staða kom
upp í eðalþættinum Í bít-
ið á Bylgjunni í gærmorgun.
Mættir voru þingmennirn-
ir Jón Magnússon og Pétur
Blöndal til að ræða um hrun
banka og kreppu. Þáttar-
stjórnendur vildu vita hver
ábyrgð Fjármálaeftirlitsins
væri og þá varð andrúmsloftið
vandræðalegt. Jón Magnússon
tók þá af skarið og sagðist af
eðlilegum ástæðum ekki geta
rætt þátt Fjármálaeftirlitsins.
Þar er um að ræða að Jónas Fr.
forstöðumaður er sonur þing-
mannsins sem þá er væntan-
lega úr leik í umræðunni um
krísuna.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnúMer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010,
áskriftarsíMi: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Við náttúrlega bara
krossum fingur
um að það gangi
eitthvað að fá
einhverja pen-
inga að utan.“
n Sigurjón Kjartansson, handritshöfundur
Svartra engla, um hvað þarf að gerast til að
framhald verði gert á þessum vinsælustu
sjónvarpsþáttum Íslands í háa herrans tíð. – DV
n „Ef að hann verður ekki
skeinandi sig næstu
mánuðina þá veit ég ekki
hvað.“
Egill Gillzenegger Einarsson um frammistöðu
Helga Seljan í góðgerðarfótbolta Verzlunarskól-
ans. – fotbolti.net
n „Kaupæðið
sem rann á
okkur
Íslendinga
var óskaplegt.“
Björgólfur Guðmundsson sem segir kaup
landsmanna á flatskjám, hjólhýsum og jeppum
ástæðuna fyrir efnahagsástandinu.
– Morgunblaðið
n „Það er vonandi að
íslenska þjóðin fjölmenni
á völlinn.“
Sigurður Ragnar, þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu, um að landinn
styðji stelpurnar þegar þær mæta Írum í
úrslitaleik um að komast á EM. – Fréttablaðið
n „Það var eins og vítamín-
sprauta inn í fyrirtækið
þegar fólkið fann að við
hugsuðum svona.“
Hrafn Hauksson, fjármálastjóri Emmessíss, um
þau tíðindi að starfsmenn fyrirtækisins taki allir á
sig 10% launalækkun til að koma í veg fyrir
hópuppsögn. – Morgunblaðið
bókstafLega