Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2008, Side 20
föstudagur 12. desember 200820 Helgarblað
KALT VOR
Fritz Már Jörgensson
- íslenskur krimmi -
Fritz M
ár Jörgensson
K
A
LT V
O
R
Fritz Már Jörgensson er hér með nýja bók sem svo sannarlega hefur slegið í gegn.
Kalt Vor er frábær skáldsaga eftir einn allra vinsælasta spennusagnahöfund þjóðarinnar.
Kalt Vor er ein af þessum bókum sem þú leggur ekki frá þér fyrr en hún er lesin upp til agna.
KALT VOR
Brunnur bókaútgáfa
–bókaútgáfan þín
Þetta er þriðja skáldsagan eftir Fritz Már Jörgensson. Fyrri bækur hans vöktu
verðskuldaða athygli og fengu báðar bækurnar mjög lofsamlegar umsagnir og
frábærar viðtökur lesenda.
KALT VOR
Kristján Hreinsson
Biblíubúrið
K
r
ist
já
n
H
r
e
in
sso
n
B
ib
líu
b
ú
r
ið
Sj
á
lf
d
a
u
t
t
f
ó
lk
Brunnur
Brunnur
Kristján Hreinsson
Sjálfdautt fólk
B
ib
lí
u
b
ú
r
ið
K
r
ist
já
n
H
r
e
in
sso
n
Sjá
lf
d
a
u
t
t
f
ó
lk
Brunnur
Brunnur
Tvær skáldsögur í einni bók eftir Kristján Hreinsson.
Sögurnar eiga það sameiginlegt að í þeim er að finna samtímalýsingu og eins
geyma þær báðar uppgjör við fortíð og kreppu.
Skáldið í skerjafirðinum er hér í essinu sínu.
BIBLÍUBÚRIÐ OG
SJÁLFDAUTT FÓLK
Þorgils Axelsson, íbúi við Laufásveg, er ósáttur við þá ákvörðun borgarinnar að hækka bílakort fyrir íbúa
um helming. Hann á tvo bíla en hefur einungis rétt á einu korti og kvíðir því að sektirnar muni hrannast
upp á meðan hann er í útlöndum yfir jólin. Bjarki Rafn Kristjánsson, rekstrarstjóri Bílastæðasjóðs, segir að
hækkunin hafi komið á óheppilegum tíma en sé í samræmi við hækkanir á allri þjónustu hjá sjóðnum.
„Fyrir þremur árum ákvað ég að
leigja mér íbúð í miðbænum,“ segir
Þorgils Axelsson, íbúi á Laufásvegi
9 í Reykjavík. Borgarráð samþykkti í
ágúst að hækka bílastæðakort íbúa
um helming, úr þrjú þúsund krónum
í sex þúsund krónur. Íbúar í miðbæ
Reykjavíkur geta keypt sér íbúakort
fyrir árið og lagt þannig bílum sín-
um í nágrenni heimila sinna án þess
að greiða í stöðumæla. Þorgils er
óánægður með hækkunina en hann
á tvo bíla og getur einungis fengið
kort fyrir annan þeirra.
Vesen að fá kort
„Í fyrra voru settir stöðumælar fyrir
framan húsið mitt. Ég þurfti að kaupa
mér íbúakort til að leggja frítt og það
kostaði þrjú þúsund krónur. Þeir
hafa hækkað verðið um helming,
upp í sex þúsund krónur núna.“ Þor-
gils segir að það hafi ekki verið nóg
að sýna fram á að hann ætti lögheim-
ili í húsinu til að fá íbúakort. „Það var
ekki nóg að ég hefði lögheimili hér í
þjóðskrá heldur þurfti leigusalinn að
skrifa upp á það að ég leigði í húsinu
líka. Ég er að kaupa þjónustu og er
látinn hlaupa eftir henni í allar átt-
ir. Svo þarf ég að láta þinglýsa þessu
líka og eitthvað kostar það,“ segir
Þorgils.
Með tvo bíla
Þorgils á tvo bíla en einungis er
leyfilegt að fá eitt íbúakort á mann
sem gildir fyrir einn bíl. „Ég er
með tvo bíla út af vinnunni minni
og núna má ég bara eiga einn bíl,“
segir Þorgils sem fer utan fyrir jól
og kemur aftur heim um miðjan
janúar. „Eiga bílarnir mínir tveir að
vera eins og jólatré fyrir utan húsið
þegar ég kem heim, skreyttir sekt-
armiðum fyrir kannski 100 þúsund
kall? Ef ég ætti heima upp í Breið-
holti mætti ég eiga tvo bíla.“
16 krónur á dag
Bjarki Rafn Kristjánsson, rekstarstjóri
Bílastæðasjóðs, segir að fyrir nokkrum
árum hafi mönnum verið leyfilegt að
eiga tvö íbúakort. „Það eru mikil bíla-
stæðavandræði í miðbænum og við
viljum frekar gefa sem flestum val á
að fá sér íbúakort. Það gengur ekki að
hafa bæinn fullan af fólki sem hefur tvö
íbúakort fengi náttúrlega enginn neitt
stæði.“ Bjarki Rafn segir að hækkunin
komi ef til vill á óheppilegum tíma en
hafi þó verið tímabær. „Árið 1996 var
verðið fimm þúsund krónur á kort og
árið 2003 var það lækkað í þrjú þúsund
krónur. Kortið var ekki búið að hækka
í fimm ár og allt búið að hækka síðan,“
segir Bjarki og tekur fram að mikil um-
sýsla sé í kringum kortin. „Það væri
eðlilegra að hækka þetta minna og oft-
ar en það var ekki gert og því ákveð-
ið að taka þetta stóra stökk núna. En
þetta eru sex þúsund krónur á ári eða
16 krónur á dag sem kostar að leggja
frítt í miðbænum, það finnst engum
hátt ef maður hugsar það í því sam-
hengi,“ segir Bjarki að lokum.
Jólaskreyting
með sektarmiðum
„Eiga bílarnir mínir
tveir að vera eins og
jólatré fyrir utan hús-
ið þegar ég kem heim,
skreyttir sektarmiðum
fyrir kannski 100 þús-
und kall?“
Boði logAson
blaðamaður skrifar bodi@dv.is
Aðeins eitt kort á mann Þorgils er ósáttur við að fá einungis eitt kort fyrir tvo bíla