Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 02.01.1913, Blaðsíða 7
Yfirlit
yfir
verslunarskýrslurnar 1911, með hliðsjón af fyrri árum.
I. Skýrslurnar 1911.
Skýrsluformin, sem út voru send undir verslunarskýrslurnar 1911 voru alveg
eins og skýrsluformin 1909 og 1910, en þau voru aftur nokkuð sundurliðaðri en
1908, og árin þar á undan. Nýja formið var sýnt Kaupmannaráðinu í Reykjavík áður
en það var fullsamið, og í ýmsum atriðum breytt eftir ráðum þess. Aðal-breytingin
á skýrsluformunum stafar frá lögunum um verslunarskýrslur nr. 16, 9. júlí 1909
1. gr., sem ákveður, að verð aðfluttu vörunnar skuli ákveðið eftir innkaupsverði og
flutningskostnaði til landsins, en ekki eftir verðinu, sem setl er á vöruna i búðinni,
þar sem hún er seld, og að innlend vara skuli sett með innkaupsverðinu, sem er á
henni hjer áður en hún er flutt út. Með þessu móti verður aðflutta varan í lægra
verði en áður var, og má ætla á, að hún sje 25°/o fyrir neðan búðarverð. Með
þessu er reynt að fá úr skýrslunum, hve mikið verslunin hefur átt að greiða til
annara landa á árinu fyrir aðíluttar vörur og flutning á þeim liingað.
Það er einnig algerð nýjung í verslunarskýrslunum 1911, að þær vörur,
sem eftir toilreikningunum fluttust að eða út, hafa verið settar inn, þar sem þær
áttu lieima. Hafi tollreikningarnir sýnt, að frá Eyjafjarðarsýslu hafi flutst svo eða
svo mikið af síld, þá hefur síldartunnutalan úr þeim verið talin útflutt úr Eyja-
fjarðarsýslu. Ef tollreikningarnir sýna, að til Barðastrandarsýslu hafl flulst 50,000
kg. af sykri, þá hafa þau verið seld þar hvað sem verslunarskýrslurnar segja. Frá
sýslunum koma þessar vörur inn í aðal-skýrslurnar um aðfluttar og útfluttar vörur
1911. I áratugi hefur þetta ekki verið gjört, en að eins verið hætt inn í yfirlitið í
einu lagi þeim tollvörum, sem flutst liafa um fram það, sem verslunarskýrslurnar
telja, og það liefur gjört allar skýrslurnar flóknari og óljósari.
Hið ofannefnda verð allrar aðflultrar vöru 1911 var....... 14-.230 þús. kr.
og verð útfluttrar vöru var .......................................... 15.970 — —
Aðflutt og útflutt vara samtals....................................... 30.200 þús. kr.
og er það í rauninni mikil furða hve miklu kaup og sölur nema, þegar þær eru
reiknaðar með svo lágu verði sem aðflutta varan nú.
Jafnframt hefur vörunni úr skýrslunum verið brejdt á þann hátt, að pen-
ingum að- og útfluttum er jafnað saman, svo í hinum einstöku umdæmum er aldrei
nefnt annað en þeir peningar, sem ganga af öðru hvoru megin, það sem aðfluttir
peningar nema um fram útflutta í uindæminu, eða hið gagnstæða. Með þessu móti
a