Húnavaka - 01.05.2014, Blaðsíða 87
H Ú N A V A K A 85
Öxnadal en dó 33 ára, 21.
febrúar 1862 á Auðnum.
Þau eignuðust tvö börn:
Soffíu (1857–1926) og Jón
(1861–1921). Út af þeim
er stór ættleggur.
Önnur kona hans (29.
júní 1866) var Kristín
Gunnlaugs dóttir, fædd 24.
nóvember 1838, dáin 34
ára, 24. desem ber 1872. Þeirra barn var Sigurður
Þor finnur (1868–1951) kvæntur Kristínu
Jóhönnu Davíðs dótt ur (1854–1935) og áttu þau
tvær dætur: Ingibjörgu (1892–1968) og Sigurunni
(1898–1974).
Ingibjörg giftist Bjarna Bjarnasyni (1883–
1967) og eignuð ust þau þrjú börn: Oktavíu
Huldu (1921–2000) gifta Páli Stefánssyni (1912–
1982), Þorfinn (1918–2005) kvæntan Huldu
Pálsdóttur (1923-2011) og Kristínu (1932–1996)
gifta Baldri Sigurðssyni (1929–1991).
Sigurunn giftist Guðmundi Frímanni Agnars-
syni (1898–1969) og eignuðust þau þrjú börn:
Kristínu Jóhönnu (1918–1987) gifta Sigurgeiri
Magnússyni (1913–2007), Agnar Braga (1919–
1989) kvæntan Huldu Lilju Sigríði Þorgeirsdóttur
(1925) og Sigþór (1931–2008) kvæntan Guðnýju
Sigurðardóttur (1935–1967) og síðar Maríu Mar-
t eins dóttur (1935).
Þriðja kona Jónatans (19. október 1874) var Kristbjörg Bjarnadóttir, fædd
3. september 1838 í Miðvík, dáin 66 ára, 11. maí 1905, á Gimli í Manitoba.
Þeirra barn var Sigríður (amma Sigga eins og Norma kallar hana), f. 28.
febrúar 1875, dáin 15. mars
1959 í Stafholti, Blain. Hún
giftist, 4. nóvember 1894,
Sigmundi Sigurðssyni Laxdal,
f. 23. októ ber 1869, dáinn 8.
októ ber 1944.
Þau bjuggu í 50 ár í Gardar
í Norður-Dakota og eignuðust
sjö börn, fimm syni og tvær
dæt ur en þau voru: María Sig-
ur björg (1896–1979), Sig urð-
ur Sveinbjörn (1899–1973),
Jónatan Leó (1901–1992),
Sigmundur og Sigríður með börn sín. Aftari röð f.v.
Moritz, Marja, Sigurður, Kristbjörg og Franklin.
Fremri röð f.v.: Helgi, Sigmundur, Sigríður og Leó.
Þorfinnur Jónatansson og
Kristín J. Davíðsdóttir með
dætur sínar, Ingibjörgu og
Sigurunni.
Blönduós. Sólheimar (Þorfinnshús) næst á myndinni.