Húnavaka - 01.05.2014, Blaðsíða 172
H Ú N A V A K A 170
kynntist snemma á sjöunda áratugnum konu sinni, Grétu Kristínu Björnsdóttur
frá Húnsstöðum. Þau gengu í hjónaband þann 24. ágúst árið 1963. Börn
þeirra eru þrjú. Björn Þór, f. 1963, maki Sandra
Kaubriene, hann á fjögur börn, Sigurbjörg
Hvönn, f. 1973, gift Sigurði Magnússyni og eiga
þau tvö börn og Jóhanna María, f. 1975, maki
Pétur Örn Magnússon og eiga þau fjögur börn.
Kristján og Gréta hófu búskap á Húnsstöðum
árið 1963 og þar var heimili þeirra alla tíð. Þau
byggðu, ræktuðu og stunduðu almennan búskap.
Kristján sinnti samhliða bústörfum akstri
vörubíla. Hann var nýjungagjarn og hafði
vakandi áhuga á tækni og tækjum.
Hann unni landinu, ekki síst heiðunum og fór
í göngur eða eftirleitir á Auðkúluheiði í meira en
40 ár. Hann átti margar góðar stundir á heiðunum
og fannst alltaf jafn gott að vitja þeirra. Síðustu árin naut hann þess mjög að
fara til veiða í Friðmundarvötnum.
Kristján var félagslyndur og hann naut þess að eiga samskipti við fólk.
Honum var gefinn sá dýrmæti eiginleiki að eiga gott með að kynnast fólki.
Hann var mannblendinn og hafði áhuga á fólki, uppruna þess og ættum enda
var hann ættfróður. Kristján var hjálpsamur, vinmargur og vinfastur. Hann
ræktaði vináttuna ekki síst með því að hafa samband við fólk og sýna virka
umhyggju og hann var sérlega barngóður. Hann fylgdist vel með öllu sínu fólki
og börnin og barnabörnin voru honum afar kær og nátengd.
Kristján var gamansamur, glaðlyndur, hnyttinn og skemmtilegur sögumaður.
Hann var svo gerður að það var alltaf jafn gott og gefandi að hitta hann og
njóta samvista við hann.
Útför Kristjáns Sigfússonar fór fram frá Blönduósskirkju þann 21. júní.
Jarðsett var í Þingeyrakirkjugarði.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Haukur Magnússon,
Brekku
Fæddur 1. september 1926 – Dáinn 15. júní 2013
Haukur fæddist að Brekku í Þingi. Foreldrar hans voru hjónin Magnús Bjarni
Jónsson bóndi í Brekku (1887-1962) og Sigrún Sigurðardóttir húsmóðir (1895-
1981). Bræður Hauks voru: Sigurður á Hnjúki, (1915-2000), Jósef í Stein nesi,
f. 1919, Þórir í Syðri-Brekku, f. 1923 og Hreinn á Leysingjastöðum, f. 1931.
Haukur varð gagnfræðingur frá Menntaskólanum á Akureyri 1946, hann
lauk kennaraprófi 1949 og stundaði svo viðbótarnám við Kennaraskóla