Húnavaka - 01.05.2014, Blaðsíða 215
213H Ú N A V A K A
fræðslustarfi, eflingu há-
skólamennt unar, vís-
inda rannsóknum og ný-
́sköp un. Sérsvið setursins
eru textíll, strandmenn-
ing og laxfiskar.
Á árinu fór mikill tími
í áfram haldandi upp-
byggingu stofnunarinnar.
Sérfræðingar Þekkingar-
setursins unnu að rann-
sóknaverkefnum og tóku
þátt í ráðstefnum og
málþingum innanlands
og utan, sem og leið-
beindu háskóla nemend-
um við lokaritgerðir og rannsókna-
verkefni. Haldnir voru nokkrir
fyr ir lestrar og farin var sögu ganga um
elsta hluta Blönduóss á vegum
Þekkingarsetursins. Unnið var að
ýmsum verkefnum, m.a. upp byggingu
textíllistamiðstöðvar í Kvenna skól-
anum, náms á sviði textíl í samstarfi
við Textílsetur Íslands og þarfa-
greiningu á námi á Norðurlandi vestra
í samstarfi við Farskólann-miðstöð
símenntunar á Norðurlandi vestra.
Einnig hefur verið haldið áfram að
innrétta starfsaðstöðu í Kvenna-
skólanum.
Fjöldi þekkingarsetra eru nú þegar
starfandi á Íslandi, þ.á.m. Þekking ar-
setur Suðurnesja, Þekkingarnet Þing-
eyinga, Þekkingarnet Austur lands, og
Þekkingarsetur Vestmann eyja.
Katharina Schneider, framkvæmdastjóri.
SAMBAND AUSTUR-HÚNVETNSKRA
KVENNA.
Innan Sambands Austur-hún-
vetnskra kvenna starfa sex kvenfélög
með ríflega 100 kvenfélagskonur. Þessi
kvenfélög eru Hekla í Skagabyggð,
Eining á Skagaströnd, Vaka á Blöndu-
ósi, Vonin í Torfalækjarhreppi, Kven-
fél ag Bólstaðarhlíðahrepps og Kven-
félag Svínavatnshrepps. Aðalfundur
var haldinn í maí á Heimilis iðnaðar-
safninu og kom Guðrún Þórðardóttir,
varaformaður Kvenfélagasambands
Íslands á fundinn. Sambandið var
stofnað árið 1928 og fagnaði 85 ára
afmæli á árinu með huggulegri
kvöldstund á Húnavöllum í desember.
Ágóði þeirrar kvöldstundar rann til
Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi,
en sambandið er stofnaðili að safninu,
ásamt sveitarfélögunum í sýslunni.
Dagný Rósa Úlfarsdóttir, formaður.
KVENFÉLAG
BÓLSTAÐARHLÍÐARHREPPS.
Þann 1. janúar voru 19 konur
skráð ar félagsmenn hjá Kvenfélagi
Bólstaðarhlíðarhrepps. Ein kona gekk
í félagið snemma á árinu. Tvær félags-
konur létust; Ingibjörg Baldvinsdóttir
Brattahlíð, skráður félagi 1967 og
Birna María Sigvaldadóttir Barkar-
stöðum, skráður félagi 1987.
Fjórir félagsfundir voru haldnir og
aðalfundurinn var í Húnaveri 28.
Frá afmælisfagnaði á Húnavöllum.
Ljósm.: DRÚ.