Húnavaka - 01.05.2014, Blaðsíða 181
H Ú N A V A K A 179
Árið 1948 fór Knútur í trésmíðanám til Gísla Skaftasonar trésmíðameistara
sem var með trésmiðju á Skagaströnd. Meðan hann var í námi vann hann við
trésmíðar á Skagaströnd og Blönduósi, við húsbyggingu við Laxárvatnsvirkjun
og víðar. Bóknám í sínu fagi sótti hann í Iðnskólann í Reykjavík.
Árið 1951, þann 17. júní, gengu þau Knútur og Theodóra Arndís Baldurs
(1923-2007) frá Blönduósi í hjónaband og hófu sinn búskap í Brimnesi á
Skagaströnd en fluttu árið 1953 til Blönduóss. Á
Blönduósi bjuggu þau á tveim stöðum í bænum
meðan þau komu sér upp húsi á Árbraut 13. Þar
áttu þau síðan sitt heimili í rúm fjörutíu ár eða
allan þeirra búskap.
Knútur og Theodóra eignuðust fjóra syni sem
eru, Jón Örn, f. 1951, maki hans er Elín H. Sæ-
mundsdóttir og eiga þau tvö börn, Gunnbjörn
Valur, f. 1952, maki Lísa Berndsen og eiga þau
þrjú börn, Stefán Þröstur, f. 1956, hann er
kvæntur Sólveigu Öldu Róarsdóttur, börn hans
eru fjögur. Yngsti sonurinn er Haukur, f. 1961,
maki Chona Millan.
Á Blönduósi stofnaði Knútur ásamt félögum
sín um Trésmiðjuna Fróða hf og vann hann við húsbyggingar og aðra smíði
allt til hann breytti um starfsvettvang og réðst sem verkstjóri til Blönduósshrepps.
Meðfram starfi sínu þar var hann einnig hafnarvörður um árabil og sá um
afgreiðslu strandferðaskipa og olíuskipa í Blönduósshöfn. Síðustu starfsárin
vann hann sem húsvörður í Grunnskólanum á Blönduósi.
Knútur átti sér ýmis áhugamál og tók virkan þátt í starfi Bridgefélags
Blönduóss. Hann var áhugamaður um veiðiskap og félagsmaður í Stang-
veiðifélagi Blönduóss um árabil. Hann hafði einnig áhuga á skepnum og átti á
tímabili bæði sauðfé og hross sér til gagns og gamans.
Hann var í Iðnaðarmannafélaginu og um tíma formaður þess. Knútur var
í stjórn Verkstjórafélags Norðurlands vestra í hartnær þrjátíu ár, formaður um
tíma og síðan heiðursfélagi. Gerðist hann aðalhvatamaður að byggingu
orlofshúss félagsins við Vesturhópsvatn og þar eyddi hann mörgum stundum
með félögum sínum meðan á uppbyggingu stóð.
Hann var vinnusamur og alltaf með eitthvað fyrir stafni, hjálpsamur og
greið vikinn. Hann var áhugasamur um sitt bæjarfélag vöxt þess og viðgang,
hvort sem var Blönduós eða Skagaströnd. Knútur var bæði kirkjuvörður og
kirkjugarðsvörður á Blönduósi um árabil.
Knútur andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi og var útför hans
gerð frá Blönduósskirkju 6. september. Jarðsett var í Blönduósskirkjugarði.
Sr. Sveinbjörn Einarsson.