Fréttablaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 10
Eins og undanfarin ár er fjöldi
ferðamanna á Íslandi samankom-
inn í miðbæ Reykjavíkur þessa dag-
ana að njóta aðventunnar. Fjölgun
ferðamanna í nóvembermánuði
var um 34 prósent á milli ára, en
rétt innan við 50 prósent í októ-
bermánuði.
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamála-
stjóri segist ekki treysta sér til þess
að segja hver hlutfallsleg fjölgun
í desember verður. „Við vitum að
samkvæmt okkar upplýsingum frá
ferðaþjónustufyrirtækjum þá líta
bókanir í desember vel út. En við
vitum ekki hverju það skilar okkur
í prósentum,“ segir Ólöf.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hótel Sögu verður herbergjanýt-
ingin á hótelinu um 75 prósent á
aðfangadag og jóladag, en eykst svo
verulega um áramótin.
Hildur Ómarsdóttir, forstöðu-
maður sölu- og markaðssviðs
Icelandair hótela, sagði við Vísi
á dögunum að allt líti út fyrir að
fullbókað yrði á hótelunum Hil-
Þá ætti að vera
flennibjart og ískalt.
Birta Líf Kristinsdóttir veðurfræðingur á
Veðurstofunni
Koma til Íslands að
njóta aðventunnar
Bókunarstaða hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum í desember er góð að
sögn ferðamálastjóra. Brennur og flugeldar á gamlárskvöld heilla. Útlit er fyrir
að aðstæður til norðurljósaskoðunar verði góðar víða um land yfir jólin.
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@365.is
Ferðamönnum þótti jólalegt um að litast á Skólavörðuholtinu. Hallgrímskirkja fangaði athygli þeirra allra. Fréttablaðið/Ernir
Tom og Glenda Barber eru frá Eng-
landi. Þau komu hingað til lands
á föstudagsmorguninn og ætla að
vera fram á Þorláksmessu.
Þau verða því hér í fimm daga.
„Við fórum gullna hringinn í gær (á
sunnudag) og fórum svo að skoða
norðurljósin,“ segir Glenda. Og
Tom bætir því við að þau hafi líka
skellt sér í Bláa lónið og farið í fjór-
hjólaferð fyrsta daginn sinn hérna.
„Nú ætlum við að fara í skoð-
unarferð um borgina,“ segir Tom.
„Já, við ætlum bara að ganga um
borgina og skoða,“ segir Glenda.
Þetta er fyrsta skipti þeirra beggja
á Íslandi. „Þetta er frábært. Við
elskum þetta,“ segir Tom.
Í fyrsta skipti á Íslandi
tom og Glenda barber.
Þau Avy og Tak Chen eru frá Kína
en eru námsmenn í Þýskalandi og
komu þaðan. Þau höfðu verið hér
í þrjá daga þegar Fréttablaðið hitti
þau í gær og ætluðu að fara af landi
brott aftur á aðfangadag. „Við viljum
sjá norðurljósin og fara í jökla-
göngu,“ segir Avy en bætir því við að
veðrið sé svo vont að þau fari varla í
göngu. „Við ætlum að fara í kirkjuna,
fara upp í turninn og sjá útsýnið yfir
alla Reykjavík,“ sagði Avy, en þau
voru líka búin að sjá Hörpuna. Tak
hafði mikinn áhuga á að sjá norður-
ljósin. „Heldurðu að það sé mögu-
legt í kvöld?“ spurði hann, en blaða-
maður þorði engu að lofa.
Langar í jöklagöngu
Þau tak (lengst til vinstri) og avy Chen (önnur frá hægri) eru hér með vinafólki.
Þeir Daniel O'Donnell og Tom Hard
eru báðir frá Englandi og eru í sinni
fyrstu ferð til Íslands. „Við höfum
séð norðurljósin og gengum á jökul
í gær,“ segir Daniel við Fréttablaðið.
„Núna erum við bara á göngu um
miðborgina og að skoða söfn,“ segir
Daniel.
Þeir ætla að vera hér í þrjá daga.
Þeir hafa ekki í hyggju að fara gullna
hringinn en fóru í gær á Snæfellsjök-
ul og spreyttu sig á því að bera fram
nafn jökulsins við blaðamann. Þeir
Daniel og Tom halda heim í dag.
Gengu á Snæfellsjökul
Þau Phillip Mason og Camilla Jessa-
tova segjast hafa orðið mjög snortin
yfir því hvað fólkið hér á Íslandi er
vinalegt. Gærdagurinn var fjórði
dagurinn þeirra á Íslandi og voru
þau bæði búin að fara í Bláa lónið
og gullna hringinn og voru að spóka
sig um í miðbænum. „Fólkið hérna
er mjög vinalegt,“ sagði Mason,
aðspurður um það hver hefði verið
sterkasta upplifun hans af Íslandi.
Þau nutu sín vel í Reykjavík. „Ég
kunni rosalega vel við það að fara á
söfnin,“ sagði Camilla aðspurð um
það hvað hefði hrifið hana mest við
Reykjavík. Phillip bætti því við að
Þjóðminjasafnið hefði sérstaklega
vakið athygli sína.
Snortin af vinalegu fólki
„Við ætlum að vera hér í tíu daga. Ég
kom hérna 17. desember og verð til
26.,“ sagði frú Rachmaninoff þegar
Fréttablaðið hitti hana við styttu
Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuholt-
inu í gær.
Rachmaninoff er upprunalega frá
Grikklandi en býr í Frankfurt og átti
því tiltölulega hægt um vik með að
fljúga til Íslands. Hún ætlar að vera
á hóteli í Reykjavík á aðfangadags-
kvöld og segist hlakka mikið til að
borða hér hátíðarkvöldverð. „Það
verður einhver frábær matur á hót-
elinu,“ sagði hún við blaðamann.
Í Reykjavík á aðfangadag
Frú rachmaninoff.
„Við erum búin að fara gullna hring-
inn og um Mýrdalssand og í Íshell-
inn. Þetta eru rosalega fínir staðir,“
segir Christine Wou.
Hún kunni best við sig í Íshellin-
um, en var ekki búin að sjá norður-
ljósin. „Nei, veðrið bauð ekki upp á
það,“ segir hún. Christine er náms-
maður í Bretlandi og hefur aldrei
komið hingað áður. „Ég býst við
að koma hingað aftur,“ segir hún
og segir hlæjandi að hún gæti vel
hugsað sér að búa hér.
Christine segir að ísinn heilli sig
sérstaklega mikið og kuldinn fari
ekkert illa með sig. „Ég óttast kuld-
ann ekki neitt,“ segir hún.
Íshellirinn bestur
Christine Wou.
Camilla Jessatova og Phillip Mason.
Daniel O’Donnell og tom Hard.
ton Nordica, Reykjavík Marina og
Reykjavík Natura um áramótin.
Þá væri einnig mjög mikið búið að
bóka um jólin.
Gamlárskvöld nýtur ekki síst
mikilla vinsælda vegna flugeldanna
og brennanna. Fréttablaðið ræddi
við nokkra ferðamenn sem staddir
voru á Skólavörðuholtinu í gær,
sem hingað eru komnir til að njóta
vetrarríkisins. Þeir ætla flestir að
vera löngu farnir fyrir jól og áramót,
en hafa margir séð norðurljósin eða
dreymir um að sjá þau.
Birta Líf Kristinsdóttir, veður-
fræðingur á Veðurstofunni, segir að
víða hafi verið skýjað undanfarin
kvöld og ekki kjöraðstæður til þess
að skoða norðurljósin.
Hún hafi hins vegar séð nokkrar
norðurljósamyndir á Twitter sem
bendi til þess að hér hafi myndast
glufur til norðurljósaskoðunar.
Hún telur mögulegt að hér skapist
kjöraðstæður til að skoða norður-
ljósin yfir hátíðisdagana, einkum
suðvestan- og vestanlands.
Birta Líf segir að í kvöld verði
mestar líkur á að sjá norðurljósin
sunnanlands, jafnvel vestanlands.
„En samt er það ekkert gulltryggt,“
bætir hún við.
Á morgun, Þorláksmessu, er
gert ráð fyrir norðanátt og það
verður skýjað um Norðurlandið.
„Það kvöld er helst á Vesturlandi
sem ég gæti ímyndað mér að væru
aðstæður. Þá á að haldast þurrt og
það gætu orðið einhverjar glufur,“
segir Birta.
Þá er gert ráð fyrir prýðisað-
stæðum suðvestan- og vestanlands
á aðfangadagskvöld og jafnvel
suðaustan- og austanlands. Miðað
við spána sé þó gert ráð fyrir bestu
aðstæðunum á jóladag, ef spáin
helst óbreytt. „Þá ætti að vera
flennibjart og ískalt,“ segir Birta
og aðspurð segir hún að hér verði
hugsanlega norðurljósajól. „Það
gæti verið,“ segir hún.
2 2 . d e s e m b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U d A G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð
2
1
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
C
6
-6
7
7
8
1
7
C
6
-6
6
3
C
1
7
C
6
-6
5
0
0
1
7
C
6
-6
3
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K