Lögmannablaðið - 01.06.2013, Síða 6
6 lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13
Af VettVAnGi fÉlAGsins
ÞANN 26. ApríL sl. fór fram útskrift af
námskeiði til öflunar réttinda til að vera
héraðsdómslögmaður. Alls útskrifuðust
36 lögfræðingar að þessu sinni 16
konur og 20 karlar.
til fróðleiks má geta þess að af
þeim 39 sem þreyttu próf á fyrri hluta
námskeiðsins í fyrsta sinn, náðu aðeins
12 þátttakendur fullnægjandi árangri,
eða 31%, en 27 þátttakendur 69%
þurfa hins vegar að reyna að nýju. Þá
náðu 23 þátttakendur (66%) af þeim 35,
sem skráðir voru í endurtektarpróf vegna
falls á fyrri námskeiðum, fullnægjandi
árangri.
II
AðALfuNdir LöGMANNAféLAGs
íslands og félagsdeildar LMfí 2013
fóru fram á hilton hótel Nordica
miðvikudaginn 8. maí s.l. Á dagskrá
voru venjuleg aðalfundarstörf, auk
þess sem tillaga lá fyrir um hækkun
árgjalds til lögbundna hluta félagsins
og félagsdeildar.
formaður félagsins, jónas Þór
Guðmundsson, hrl., gerði grein fyrir
skýrslu félagsstjórnar og stiklaði á stóru
úr starfi félagsins á liðnu starfsári. Að
því loknu kynnti ingimar ingason,
framkvæmdastjóri LMfí, ársreikninga
félagsins og félagsdeildar fyrir árið 2012.
Afkoma félagsins og félagsdeildar á
síðasta ári var í heild jákvæð. hagnaður
af rekstri lögbundna hluta félagsins
nam kr. 1.253.370, en hins vegar var
lítilsháttar tap af rekstri félagsdeildar
upp á kr. 134.594.
jónas Þór Guðmundsson hrl. var
endurkjörinn formaður félagsins. jóna
Björk helgadóttir hdl. og karl Axelsson
hrl., voru kjörin í stjórn í stað Borgars
Þórs einarssonar hdl. og óskars
sigurðssonar hrl. Auk þeirra þriggja sitja
áfram þær Guðrún Björk Bjarnadóttir
hrl., og Guðrún Björg Birgisdóttir hrl. í
varastjórn voru kjörin jóhannes rúnar
jóhannsson hrl., Berglind svavarsdóttir
hrl. og óttar pálsson hrl.
Gústaf Þór tryggvason hrl., og
Othar örn petersen hrl., voru kjörnir
skoðunarmenn félagsins og Þorbjörg
i. jónsdóttir hrl., til vara.
Þá voru kjörin í laganefnd félagsins
næsta starfsár þau jón sigurðsson hrl.,
sigurður Guðmundsson hdl., Grímur
sigurðarson hdl., reimar pétursson
hrl., Arnar Þór stefánsson hrl., Marta
Margrét ö. rúnarsdóttir hdl. og eiríkur
s. svavarsson hrl.
Á fundinum var samþykkt tillaga
um hækkun árgjalds til skyldubundna
hlutans úr kr. 42.000 í kr. 49.000.
jafnframt var samþykkt hækkun árgjalds
félagsdeildar úr kr. 9.500 í kr. 10.500.
koma þessar hækkanir til framkvæmda
á árinu 2014.
II
Hdl.-námskeið
aðalfundur lmFÍ
nýkjörin stjórn lögmannafélags Íslands. F.v. Karl axelsson hrl. gjaldkeri, Jóna Björk
Helgadóttir hdl. varaformaður, Jónas Þór guðmundsson hrl. formaður og guðrún Björk
Bjarnadóttir hdl. ritari. Á myndina vantar guðrúnu Björgu Birgisdóttur hrl. meðstjórnanda
en hún situr jafnframt í stjórn námsjóðs lmFÍ.