Lögmannablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 14

Lögmannablaðið - 01.06.2013, Blaðsíða 14
14 lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13 lAGADAGUr 2013 rökstóLuM uM lögmæti verð­ tryggingar var stjórnað af eyvindi G. Gunnarssyni dósent við lagadeild háskóla íslands en þátttakendur voru stefán Már stefánsson prófessor við lagadeild háskóla íslands, Áslaug Árnadóttir hdl. hjá Landslögum, jón Þór sturluson dósent við viðskiptadeild háskólans í reykjavík og eiríkur elís Þorláksson hrl. og lektor við lagadeild háskólans í reykjavík. Hvað er verðtrygging? eyvindur hóf umræðuna á því að vísa til þess að verðtrygging væri mikið hagsmunamál og að málefnið snéri að ýmsum sviðum lögfræðinnar, s.s. ákvæðum vaxtalaga, laga um vísi tölu neysluverðs, samningalaga, neytenda­ löggjöfar, ees­réttar og að mati sumra einnig laga um verðbréfaviðskipti. jón Þór fór yfir hvað fyrirbærið verð trygging væri og sagði það í raun ekki flókið. um væri að ræða viðbót við lánssamning þar sem vextir eru breytilegir með fyrirfram ákveðnum hætti og taka mið af þróun verðbólgu á hverjum tíma. hann nefndi að munur á verðtryggðu láni og láni með breytilegum óverðtryggðum vöxtum væri í raun minniháttar. hann sagði að öfugt við það sem oft hefði heyrst um að með verðtryggðu láni hallaði á lántaka, þá taldi hann að í raun væri um að ræða gagnkvæma tryggingu. Lánveitandi væri tryggður fyrir hækkandi verðbólgu en lántaki myndi aftur á móti hagnast ef verðbólga lækkaði. Þá taldi hann núverandi viðmið við neysluverðsvísitölu vera ágætis mælikvarða og fela í sér minni stökk en aðrir mælikvarðar, s.s. byggingarvísitala. Á brattann að sækja fyrir dómstólum eiríkur elís vék að því hvort mögulegt væri að beita ógildingarreglum samningalaga um verðtryggða lánssamninga og benti á meginreglur samningaréttar um skuldbindingargildi samninga og samningsfrelsið. Verðtrygging á fjárskuldbindingar væru heimilar í vaxtalögum og það vegur talsvert þungt. einnig væru ógildingarreglur samningalaganna undantekning frá meginreglunni um skuldbindingargildi og því væru þær túlkaðar þröngt. eiríkur taldi mjög á brattann að sækja í þeim málum sem nú væru rekin fyrir dómstólum um þetta efni og ólíklegt að að verðtryggður lánssamningur yrði metinn ólögmætur á grundvelli ógildingarreglna samningalaganna, s.s. á grundvelli brostinna forsendna eða ósanngirni. tilskipun um lánasamninga fyrir neytendur Að því er varðar neytendalöggjöfina þá rakti Áslaug gildissvið tilskipunar evrópuþingsins og ráðsins (2008/48/ eB) um lánasamninga fyrir neytendur og hvernig hún hefur verið leidd inn í íslenskan rétt. tilskipunin gildir ekki um fasteignaveðlán og verður henni því ekki beitt um slíkt efni. íslensk lög um neytendalán gangi hins vegar lengra og gilda um þessa tegund lánsskuldbindinga. upplýsingaskylda við lánveitingu var rædd sérstaklega og Áslaug nefndi að mikilvægt væri að hafa í huga að tilskipunin gildir eingöngu um upplýsingagjöf við lánveitinguna en ekki samningssambandið sjálft. Á meðan tilskipunin mælir fyrir um að upplýsingar við lántökuna skuli miða við stöðuna þegar lánssamningur er gerður þá gera íslensk lög um neytendalán að nokkru leyti aðrar kröfur í þessum efnum og F.v. Eiríkur Elís Þorláksson, Jón Þór sturluson, Áslaug Árnadóttir og stefán már stefánsson. lögmæti verðtryggingar ljósmynd: Þorkell Þorkelsson.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.