Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 9
lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13 9
UMfJÖllUn
allt á einum stað í hverju máli
manor er málaumsýslukerfi sem færir rekstur lögmanna í rafrænt viðmót þar sem öll
vinna fer fram með miðlægum hætti. Þróun hefur staðið yfir lengi og fengu fyrstu
viðskiptavinir kerfisins aðgang í mars síðastliðnum en kerfið er hannað með það fyrir
augum að auka tekjur og bæta tímanýtingu í rekstri lögmannsstofa. að manor stendur
Vefmiðlun ehf., en eigendur eru þeir Friðbjörn Orri Ketilsson og arthúr ólafsson. Kerfið
var að sögn Friðbjörns smíðað vegna eftirspurnar frá lögmönnum.
Hvernig virkar kerfið?
Manor heldur utan um rekstur lögmanna
frá upphafi til enda. kerfið byggir á
nýju verkflæði þar sem allt er rafrænt
svo sem tímaskráningar, skjalageymsla,
samskipti, dómar, reiknivélar og
stjórnendaupplýsingar. reksturinn
kemur því saman í einu kerfi.
Lögmenn geta unnið saman að málum
og hjálpast að við rannsóknarvinnu,
aðstoðarfólk fært skjöl inn í mál, en
tímar fara sjálfvirkt í bókhaldskerfið.
Með slíku vinnuferli sparast mikill tími
sem stuðlar að tekjuvexti.
Annað sem er gaman að segja frá
er sérstök vakt á fresti, s.s. kærufresti
í málum, þar sem Manor sendir
viðkomandi lögmanni tilkynningar,
tölvupósta, sms skeyti og endar á
að hringja hafi viðkomandi ekki enn
brugðist við. takist það ekki lætur kerfið
samstarfsmenn vita. Þannig eiga frestir
aldrei að gleymast.
tímaskráningar hugsuðum við frá
grunni og þróuðum nýjungar. Manor
veit í hvaða málum menn eru að vinna
á hverjum degi og bendir á þau mál
þegar tímar eru skráðir. Þannig hjálpar
kerfið til við að bjarga tímum sem ella
hefðu ekki innheimst. Við settum einnig
upp nýtt viðmót á tímaskráningu sem er
öll grafísk þar sem menn sjá strax hvar
gleymdist að skrá tíma. Þannig aukum
við tekjur notenda okkar.
Varðandi öryggismál þá gerum
við sömu kröfur og bankar gera til
gagnaöryggis og dulkóðunar. Við
bjóðum okkar notendum að tengjast
með tveggja þátta innskráningu þar sem
þeir gefa upp notendanafn og lykilorð og
fá svo sms með einnota öryggisnúmeri
sem þeir skrá inn. Þannig staðfestum
við að réttur aðili sé á ferðinni.
Eru margar lögmannsstofur komnar
með kerfið?
fyrstu viðskiptavinirnir eru að ljúka
aðlögunarferlinu þessa dagana. Það tóku
um 15 aðilar þátt í prófunarferlinu sem
stóð í 6 mánuði og gerum við ráð fyrir
að þeir komi í viðskipti í framhaldinu.
Við förum okkur þó hægt viljum vaxa
með okkar viðskiptavinum og þjónusta
þá eins og best verður á kosið.
Hentar kerfið bæði fyrir stærri stofur
og einyrkja?
kerfið hentar fyrir alla sem leggja stund
á lögmennsku. einyrki þarf að ná inn
einum tíma sem ella hefði gleymst að
rukka svo Manor sé honum arðbær
fjárfesting. stóru stofurnar ná mun
meiri hagkvæmni því meiri hagur er af
rafrænu og miðlægu verkflæði.
Hvað kostar að nota hugbúnaðinn?
Manor er vefhugbúnaður sem notendur
tengjast með vafra. Það skipulag sparar
miklar fjárhæðir fyrir lögmenn þar
sem ekki er rukkað fyrir uppfærslur,
leyfisgjöld per tölvu, hýsingargjöld,
bandvíddargjöld eða annað slíkt.
hugbúnaðarvesenið hverfur. Manor fæst
aðeins í fullri útgáfu og kostar 19.000 kr
auk vsk. á mánuði per notanda.
um þessar mundir er mikil gerjun í hönnun hugbúnaðar fyrir lögmannsstofur en á þessu ári hafa tvö
ný fyrirtæki kynnt sérhannaðar lausnir fyrir lögmenn sem halda utan um þá þætti sem snúa að
upplýsingum, skjalastjórnun og tímaskráningu. Fyrirtækin heita Vergo og manor. lögmannablaðið fór
á stúfana og kynnti sér þessi nýju kerfi.
Nýjar hugbúnaðarlausnir
fyrir lögmenn