Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 11
lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13 11
lAGADAGUr 2013
má ekki afskrifa alla
gagnrýni
Að loknum framsöguerindum tóku
við pallborðsumræður með þeim dr.
Guðmundi sigurðssyni deildarforseta
lagadeildar háskólans í reykjavík,
kristínu edwald hrl. og formanni
Lögfræðingafélags íslands, hirti O.
Aðalsteinssyni dómstjóra héraðsdóms
suðurlands og formanni dómarafélags
íslands og jónasi Þór Guðmundssyni hrl.
og formanni Lögmannafélags íslands.
hjá Guðmundi kom meðal annars
fram að hann teldi menntun lögfræðinga
í dag vera þannig að þeir væru betur
undir það búnir að takast á við verkefnin
sem bíða. Mikilvægt væri að einskorða
lögfræðinámið ekki við að sem flestir
næðu „hdlnámskeiðinu“ heldur yrði að
hafa í huga að lögfræðin væri víðtækari
og lögfræðinám væri góð grunnmenntun.
kristín tók fram að hún teldi
klassíska námið henta best en vék einnig
að umræðu um stöðu lögfræðinnar og
traust á stofnunum. hún sagði að stéttin
yrði að gæta sín á því að afskrifa ekki
alla þá sem vantreysta kerfinu sem
bloggara og vitleysinga, heldur bregðast
við umræðunni.
hjörtur greindi frá því að hjá dóm
stólum væri nú til skoðunar að setja
siðareglur og reglur um að birta
hagsmunatengsl en einnig væri verið
að skoða reglur um birtingu dóma.
jónas Þór sagði að það gleymdist oft
í umfjöllun um störf lögmanna að þeir
væru bundnir af siðareglum lögmanna
ásamt því að vera skyldugir til að hafa
starfsábyrgðartryggingu. Þetta tæki t.d.
ekki til starfa lögfræðinga en engu
að síður sæi Lögmannafélagið sífellt
fleiri dæmi um að lögfræðingar auglýsi
þjónustu sem lögmenn einir geta sinnt.
Nokkrar umræður urðu í lokin þegar
framsögumenn og gestir í pallborði
svöruðu spurningum en Ása ólafsdóttir
lektor við lagadeild háskóla íslands
stýrði málstofunni.
Árni Helgason hdl.
lagadagurinn hefur öðlast sess í hugum lögfræðinga og að þessu sinni sóttu 440
dagskrána um daginn.
BrYddAð VAr á þeirri nýjung að bjóða upp á nýjungar í lögfræði
að morgni lagadags. dr. Natalia Loukacheva, gestaprófessor við
háskólann á Akureyri hélt erindi sem hún nefndi „polar law and
major developments“ þar sem hún fjallaði um hnattræna hlýnun
og málefni norðurslóða. páll Ásgeir davíðssson LL.M, frkvstj. Vox
Nature hélt að því búnu erindi um samspil loftlagsbreytinga, jökla
og mannréttinda. hrefna friðriksdóttir dósent við lagadeild háskóla
íslands og stjórnarformaður rannsóknastofnunar Ármanns snævarr
um fjölskyldumálefni kynnti þverfaglega nálgun lögfræði og annarra
fræðisviða á fjölskyldumálefnum. fundarstjóri var Ágúst Þór Árnason
formaður lagadeildar háskólans á Akureyri.
F.v. Hrefna Friðriksdóttir, Páll Ásgeir davíðsson,
Ágúst Þór Árnason og natalia loukacheva.
nÝJungar Í lÖgFræÐi
ljósmynd: Þorkell Þorkelsson.
lj
ós
m
yn
d:
Þ
or
ke
ll
Þo
rk
el
ss
on
.