Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 22
22 lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13
Á lÉttUM nÓtUM
af merði lögmanni
Nú þegar vetrarskrípið hefur loks haft sig á brott er það ekki aðeins sólin sem
er í hæstu hæðum heldur er væntingavísitala Marðar á svipuðu róli. Hann sér fram á
gósentíð í kjölfar glæsilegrar upprisu Flokksins og endalok uppivöðslu vinstrimanna
sem síðustu ár hafa valdið mörgum flokkshollum lögmanninum miklum búsifjum. Mörður
horfir með velþóknun og væntumþykju á flokkskírteini sitt í Framsóknarfélagi
Strandamanna sem hangir á ný innrammað uppi á vegg á skrifstofunni og veltir fyrir
sér hvort tími sé kominn til að fara að stunda golf eins og helstu lagakanónur
landsins. Það getur varla verið flóknara en einfaldur heimaskítur að spássera úti í
móa og sveifla þessum prikum. Höggin virðast einmitt liggja einkar vel við mikilvægum
síðmiðaldra körlum.
Stór og feit verkefni bíða handan við hornið. Þessum eftirmiðdögum í vor
var ekki varið til einskis þegar Mörður ók á gömlu Lödunni á milli sambýla á
höfuðborgarsvæðinu og bauð heimilismönnum í ísbíltúr - með örstuttri viðkomu hjá
Sýsla þar sem vistmenn kusu svo kórrétt utankjörfundar.
Mörður er þess fullviss að sá tími sé liðinn að hann þurfi að berjast um stöku
búskiptamola við her nýtilgerðra lagatitta sem fátt virðast kunna annað en að hamast
linnulaust á spjallsímunum sínum eða hvað þau nú heita þessi apparöt sem virðast
gróin fast við ungt fólk. Eftir kosningasigur vorsins er nefnilega morgunljóst að
ráðamenn munu þurfa á alveg sérstakri sérfræðiráðgjöf að halda. Það verður ekki verk
fyrir einhverja erlenda pótintáta eða nýútskrifaða lagatitti heldur fyrir menn með
áratuga reynslu og þjóðleg gildi í anda ungmennafélaganna.
Mörður hefur í gegnum árin náð að fullkomna sig í þeirri list að fá fresti og
viðhalda málsmeðferð jafnvel einföldustu mála. Sá hæfileiki Marðar að teygja lopann
gæti komið að góðum notum fyrir hinn unga forsætisráðherra og Flokkinn sem í hita
leiksins fór kannski aðeins fram úr sér í loforðalistanum. Að vísu hefur Mörður upp
á síðkastið haft af því nokkrar áhyggjur að nýir dómarar, ungir reglupésar, virðast
á góðri leið með að yfirtaka héraðsdómstólana. Einn af þessum ungu reglupésum gekk
svo langt um daginn í fyrirtöku að skammast yfir því að Mörður væri ekki undirbúinn
sem skyldi fyrir þennan spjallfund. Svo meinaði hann Merði að fara í stutta pissupásu
og sagði það sig engu varða hvort eitthvað væri að Merði í blöðruhálsinum, hann
gæti bara haldið í sér. Mörður syrgir þá tíma þegar dómarar skelltu sér með í smók
í pissupásunum og ekki var nokkur þörf var á að grípa til þess að gera sér upp
líkamlega krankleika til að tefja mál. Flokkurinn mun vonandi beita sér fyrir upptöku
gamalla gilda í dómssal sem annars staðar.
Mörður lítur aftur á flokkskírteinið á veggnum og veltir fyrir sér hvort hann
eigi að taka upp símann og hringja strax í unga forsætisráðherrann til að bjóða
fram aðstoð. Í leiðinni gæti Mörður líka lagt til að fyrst þeir ætli að afnema
fiskveiðigjaldið og setja aðildarviðræður ESB á ís þá geti þeir allt eins frestað
gildistöku þessara forheimsku kvótalaga sem skikka fyrirtæki að fylla stjórnir sínar
af kerlingum. Þetta jafnréttiskjaftæði hefur nú þegar gengið allt of langt að mati
Marðar og sést best á því að nú skipa lögfreyjur meirihluta stjórnar Lögmannafélags
Íslands. Hér er þörf á frekari frestum og þar er Mörður á heimavelli.