Lögmannablaðið - 01.06.2013, Síða 24
24 lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13
Af VettVAnGi fÉlAGsins
jóN steiNAr GuNNLAuGssON hrL.
og fyrrum dómari við hæstarétt íslands
gaf á dögunum út ritgerðina Veikburða
Hæstiréttur, verulegra úrbóta er þörf.
ritgerðin er áhugaverð fyrir margar sakir
en þó einkum vegna þess að þar eru
lagðar fram hugmyndir að breytingum
á skipan dómstóla á íslandi auk þess
sem í henni má finna harða gagnrýni á
störf hæstaréttar og þá dómara sem þar
sitja. Það er ekki á hverjum degi sem
fyrrum dómari við hæstarétt íslands talar
opinskátt um reynslu sína og upplifun
af æðsta dómstól landsins. hvort sem
lesendur ritgerðarinnar eru sammála eða
ósammála hugmyndum jóns steinars
og framsetningu gagnrýni hans, þá
hljóta flestir að vera sammála um það
að skrifin eru merkileg. Það vekur því
furðu að umræða um ritgerðina hafi
ekki verið meiri en raun ber vitni á
opinberum vettvangi.
„málefni Hæstaréttar eru
málefni sem þarf að ræða“
Þann 28. maí sl. var haldinn hádegis
verðarfundur á vegum Lögmannafélags
íslands þar sem jón steinar gerði
grein fyrir helstu atriðum ritgerðar
sinnar. fundinn hóf jón steinar á
framangreindum orðum. hann lýsti
vonbrigðum sínum með þá tregðu
íslenskra lögfræðinga við að gagnrýna
störf hæstaréttar. tregðuna telur
jón steinar að vissu leyti skiljanlega,
sérstaklega á meðal lögmanna, en engu
að síður sé gagnrýni á störf réttarins
afar mikilvæg. hæstiréttur íslands er
ein valdamesta stofnun landsins og
þeir aðilar sem þar sitja þurfa aldrei
að endurnýja umboð sitt eða standa
neinum reikningsskil á verkum sínum.
nýr Hæstiréttur
Að mati jóns steinars er málafjöldi við
hæstarétt á hverjum tíma slíkur að engin
leið sé fyrir einstaka dómara að sinna
verkefnum sínum af þeirri kostgæfni
sem nauðsynlegt er. Þetta ástand er
óviðunandi, að mati jóns, og hefur
leitt til þess að dómarar við réttinn hafa
treyst um of á meðdómendur sína við
dómsúrlausnir, einkum frummælandann
í málinu. Nefnir jón nokkur dæmi þess
í ritgerðinni en hann bendir á að þetta
kunni að vera óhjákvæmileg afleiðing
þess álagsvanda sem rétturinn stendur
frammi fyrir. Þá telur jón það vera
óásættanlegt að tæplega 80% mála við
hæstarétt skuli vera dæmd af þremur
dómurum, sem er aðeins þriðjungur
skipaðra dómara og nú um stundir
raunar einungis fjórðungur. hæstiréttur
íslands er æðsti dómstóll landsins og því
sé mikilvægt að dómar hans hafi styrkar
stoðir, ekki síst vegna fordæmisgildi
þeirra.
til að leysa þann álagsvanda sem
blasir við hæstarétti vill jón steinar að
Áfram deilt á dómarana
Jón steinar gunnlaugsson fv. hæstaréttardómari á hádegisverðarfundi 28. maí sl.
Hjörtur torfason fv. hæstaréttardómari
tók undir orð Jóns steinars. F.v. ólafur
gústafsson hrl., Hjörtur torfason og
magnús thoroddsen fv.
hæstaréttardómari.