Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 3

Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 3
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 7 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r Þ r i ð J u d a g u r 2 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Fréttablaðið í dag skoðun Bolli Héðinsson skrifar um lyklavöld fyrir útgerðina og bankana. 14-15 sport Alfreð fékk nýtt lið í nýju landi í 27 ára afmælisgjöf. 14 Menning Magnað ljósaverk verður á Hörpu í upphafi á Vetrarhátíðar. 20-22 lÍfið Páll Óskar Hjálmtýsson var fenginn til að semja afmælislag fyrir Söngva- keppni sjónvarpsins og kemur hann til með að frumflytja lagið á sviðinu í Háskólabíói næstkomandi laugardag. 48 plús 3 sérblöð kJaraMál Ákvörðun kjararáðs um að hækka laun dómara leiðir til þess að eftirlaun 29 fyrrverandi dómara eða maka fyrrverandi dómara hækka um 26 prósent. Af úrskurði kjararáðs frá 17. desember má ráða að ástæða launa- hækkunar dómaranna sé annars vegar auknar kröfur til dómara og hins vegar nauðsyn þess að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði þeirra. Tímabundnar álagsgreiðslur sem dómarar fengu í kjölfar hrunsins voru felldar inn í dagvinnulaun um ára- mótin með sértækri ákvörðun kjara- ráðs. Þótt dagvinnulaunin hafi með því hækkað um 26 prósent hækkuðu heildarlaun dómaranna í flestum til- fellum þá í kringum 8 prósent – eftir að hafa hækkað um 9,3 prósent í almennri hækkun í nóvember eins og hjá öðrum sem heyra undir kjararáð. „Fram hefur komið að sífellt flóknara laga- og viðskiptaum- hverfi geri auknar kröfur til dómara og fyrir dómstólum liggja flóknari og umfangsmeiri mál en áður. Við ákvörðun launakjara dómara verður ekki litið fram hjá þessari staðreynd,“ segir kjararáð í úrskurði. Einnig segir kjararáð nauðsynlegt að taka tillit til þess að dómsvaldið sé einn þriggja hornsteina ríkisvalds- ins og það veiti löggjafar- og fram- kvæmdar valdi aðhald. Hvernig þessar tvær meginástæður varða fyrrverandi dómara eða þá sem þiggja lífeyri sem makar fyrrverandi dómara blasir ef til vill ekki við. Þó fá þeir úr þessum hópi sem völdu að þiggja lífeyri á svokallaðri eftirmanns- reglu þá 26 prósent hækkun sem nú er orðin á dagvinnulaunum starfandi dómara. „Um var að ræða 7 flokka hækkun eða rúmlega 26 prósent frá 1. janúar 2016,“ segir í svari frá LSR. Haukur Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins, segir það alltaf mat lífeyrissjóðsins hvort það séu orðnar það verulegar breytingar á störfum að ekki sé lengur um sama starf að ræða. „Í þessu tilviki metum við það sem svo að þarna sé áfram um sama starf að ræða þótt svo að það séu orðnar talsverðar breytingar á umfangi starfs- ins eins og því er lýst í úrskurði kjara- ráðs,“ segir Haukur. Aðspurður segir Haukur ekki dæmi um viðlíka hækkun hjá öðrum skjól- stæðingum LSR á síðasta ári. „Þetta stendur verulega út úr,“ segir hann. Samkvæmt upplýsingum frá líf- eyrissjóðnum hækka heildargreiðslur til þessa 29 manna hóps um tæpar 3,7 milljónir króna á mánuði, fara úr tæpum 14 milljónum króna í nær 17,7 milljónir. Það gerir alls um 44 milljóna króna hækkun á ársgrundvelli. – gar Fyrrverandi dómarar fá 26% hækkun Kjararáð hækkaði heildarlaun dómara sérstaklega umfram aðra í desember með vísan í aukið álag og nauðsyn þess að efla trúverðug- leika dómstóla. Vegna þessa hækka eftirlaun 29 fyrrverandi dómara eða maka þeirra um 26 prósent. Eftirlaunin hækka um sjö flokka. Götumarkaður Lokadagur! opið til 19 Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2 Það hefur verið vetrarríki í höfuðborginni og víðar á landinu undanfarna daga. Kosturinn er sá að þá geta menn rennt sér í snjónum, hvort sem er á skíðum eða á snjóþotu. Arnarhóll er sívinsæll staður fyrir þá sem vilja renna sér á þotu. Fréttablaðið/Vilhelm l fólk l lÍfið l bÍlar *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 saMfélag Hópur fólks ætlar að mótmæla skipulögðum fundi karla sem er fyrirhugaður á laugardag við Hallgrímskirkju. Fundurinn er skipulagður af Roosh Vorek sem gefur sig út fyrir að kenna karlmönnum að komast yfir konur og jafnvel beita þær kyn- ferðisofbeldi. Vorek hefur boðað fylgismenn sína að styttu Leifs Eiríkssonar næsta laugardag klukkan átta. Hann hefur gefið út að hann vilji skipu- leggja fjöldahreyfingar um allan heim í kringum boðskap sinn. Hann segist hafa skipulagt 43 fundi víða um heim. „Ef manni mislíkar eitthvað þýðir ekki að standa aðgerðalaus hjá,“ segir Brynhildur Yrsa Guðmunds- dóttir, einn skipuleggjanda mót- mælanna. – kbg / sjá síðu 4 Boðskap Voreks mótmælt VelferðarMál Ódýrasti maturinn fyrir eldri borgara á höfuðborgar- svæðinu er í Reykjavík. Heimsendir matarbakkar eru 35 prósent dýrari í Kópavogi en í Reykjavík. Í Mos- fellsbæ er dýrasta staka máltíðin. Fréttablaðið fékk upplýsingar um verð á mat í mötuneytum fyrir eldri borgara, verð á heimsendum matarbökkum og hversu oft væri opið í mötuneytum sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins. „Allur matur handa eldri borg- urum í Mosfellsbæ kemur úr mötu- neyti Eirar. Það er hagkvæmni fólgin í því. Langflestir sem nota þjónustuna eru í föstu fæði og fá máltíðina á 800 krónur en stök máltíð kostar 1.200 krónur,“ segir Valgerður Magnúsdóttir, forstöðu- maður þjónustumiðstöðvar fyrir eldri borgara. – ebg / sjá síðu 8 Máltíðin dýrust í Mosfellsbæ 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 5 -D D D 4 1 8 5 5 -D C 9 8 1 8 5 5 -D B 5 C 1 8 5 5 -D A 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.