Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 4

Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 4
HEILBRIGÐISMÁL Af þeim 855 ein- staklingum sem farið hafa í aðgerð, það er magahjáveitu og magaermi, vegna offitutengdra sjúkdóma á Íslandi frá árinu 2001 hafa um 20 prósent verið með sykursýki af týpu 2. Nánast allir sykursýkis- sjúklinganna, eða 78 prósent, hafa losnað við sykursýkina, að sögn Hjartar G. Gíslasonar, skurðlæknis á Landspítalanum. Hann segir þetta mikinn ávinn- ing. „Sykursýki af týpu 2 er slæmur sjúkdómur. Þótt sjúklingar fái meðferð með lyfjum versnar sjúk- dómurinn með tímanum. Þessir sjúklingar lifa að meðaltali 17 árum skemur en þeir sem ekki eru með þennan sjúkdóm.“ Að breyta mataræði og lífsstíl hjálpar ekki til langframa ef menn eru orðnir mjög stórir, að því er Hjörtur greinir frá. „Hormóna- og ónæmiskerfið sem situr í maga og görn stýrir líkamsþyngdinni. Ef menn hafa til dæmis lengi verið 30 kg yfir kjörþyngd vill skrokkurinn vera þungur. Þetta hefur stimplast inn í kerfið. Kerfið var mikilvægt til að lifa af í gamla daga þegar það komu harðir vetur án matar en nú er alltaf til nóg af mat.“ Hjörtur segir að auðvitað sé hægt að léttast um 30 kg með breyttum lífsstíl. „En eftir eitt til tvö ár hefur aðeins 1 til 2 prósentum af þeim sem eru með sjúklega offitu tekist að halda nýrri þyngd. Menn eru að keppa við afar sterkt kerfi í sjálfum líkamanum. Sykursýki af týpu 2 getur batnað til skamms tíma við breyttan lífsstíl en það virkar næst- um aldrei til langframa.“ Þegar valið er til aðgerða í dag er frekar einblínt á hvort sjúklingar eru með offitutengda sjúkdóma, heldur en eingöngu þyngdar- stuðul. „Nú er talað um aðgerðir vegna offitutengdra sjúkdóma, eins og með vömb og kviðarholsfitu, háþrýsting, háar blóðfitur, kæfi- svefn og sykursýki af týpu 2. Viku eftir þessar aðgerðir sjáum við að sykursýkin er nánast farin hjá flestum sjúklinganna. Við aðrar aðgerðir sem virka öðruvísi fer syk- ursýkin þegar þyngdin fer niður.“ Kostirnir við aðgerðirnar eru bætt líðan þegar einstaklingar hafa lést og þeim skánað af sjúkdómum. Aðgerðirnar geta hins vegar haft fylgikvilla sem geta verið margvís- legir. Hjörtur segir að vega þurfi og meta plúsa og mínusa þegar aðgerð er íhuguð. „Þessar aðgerðir á Landspítalanum hafa sýnt að sjúklingarnir eru að léttast veru- lega til langframa.“ Aðgerðirnar eru gerðar í sam- vinnu við Reykjalund og Kristnes, að því er Hjörtur greinir frá. ibs@frettabladid.is Losna við sykursýki viku eftir aðgerðina 78 prósent sjúklinga með sykursýki af týpu 2 losnuðu við sjúkdóminn í aðgerð vegna offitutengdra sjúkdóma. Þegar valið er til aðgerða í dag er frekar einblínt á hvort sjúklingar eru með offitutengda sjúkdóma, heldur en eingöngu á þyngd. En eftir eitt til tvö ár hefur aðeins 1 til 2 prósentum af þeim sem eru með sjúklega offitu tekist að halda nýrri þyngd. Hjörtur G. Gíslason, skurðlæknir á Land- spítalanum. Ládeyða yfir Lagarfossi „Það er verið að reyna að teygja og toga á þessu. Menn eru tvístígandi, hvort það verði farið í einhvern lokafasa eða hvort það slitni bara upp úr þessu,“ sagði Guðmundur Ragnarsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna. Lítið var að frétta af kjaradeilum vélstjóra og skipstjórnarmanna við Samtök atvinnulífsins þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær. Og ýmislegt sem benti til að flutningaskip Eimskips og Samskips yrðu kyrrsett. Fréttablaðið/Vilhelm Vömb getur verið hættuleg heilsunni og valdið offitutengdum sjúkdómum. NOrDiCPhOtO/GettY Í dag stefnir í norðlæga átt 5-13 m/s og stöku él fyrir norðan og austan og er því útlit fyrir mun skaplegra veður þar heldur en var í dag. Sunn- anlands verður að mestu áfram fal- legt og bjart vetrarveður. SjÁ SíÐu 18 Ragnhildur Helgadóttir lögfræðingur, fyrrverandi alþingis- maður og ráðherra, lést síðastliðinn föstudag, 85 ára að aldri, eftir stutta sjúkdómslegu. Ragnhildur var á lista Sjálf- stæðisflokksins við alþingis- kosningar 1953 og aftur 1956 þegar hún var kjörin á þing ein kvenna þá 26 ára gömul. Ragn- hildur var önnur konan hér á landi til að gegna ráðherraemb- ætti og fyrst kvenna til að gegna embætti menntamálaráðherra (1983–1985) og embætti heil- brigðis- og tryggingamálaráð- herra (1985–1987). Ragnhildur Helgadóttir látin VIÐSkIptI Neytendastofa hefur lagt dagsektir á Boltabarinn ehf., sem rekur Loftið, þar til fyrirtækið hefur farið að ákvörðun um nafna- breytingu. Í desember 2014 var Boltabarnum ehf. bönnuð notkun heitisins Loftið þar sem það væri til þess fallið að valda ruglingshættu við auðkenni Loft Bar sem rekinn er af Farfuglum ses. Ákvörðun Neytendastofu var staðfest með úrskurði áfrýjunar- nefndar neytendamála í október síðastliðnum að því leyti að Bolta- barnum ehf. væri bannað að nota auðkennið Loftið í núverandi mynd. Þar sem Boltabarinn hefur enn ekki farið að ákvörðun Neytenda- stofu og úrskurði áfrýjunarnefndar lagði Neytendastofa dagsektir á Bol- tabarinn ehf. að fjárhæð 50 þúsund krónur á dag þar til fyrirtækið gerir viðeigandi ráðstafanir. – sg Sekta eigendur Loftsins NoRÐuR-kóREa Norður-kóreska ríkið segir Vesturlönd veruleika- firrt og sakar þau um að neita að viðurkenna kjarnorkumátt Norður- Kóreu í yfirlýsingu sem ríkisstjórnin sendi frá sér í gær. Þá segir enn fremur að ríkið sé fært um að varpa kjarnorkusprengj- um á Bandaríkin. Í upphafi mánaðar prófuðu Norður-Kóreumenn vetnissprengju í fyrsta sinn en slík sprengja er mun öflugri en kjarnorkusprengja. Í til- kynningunni segir að engin þörf hafi verið á því. Norður-Kórea hafi rætt við Bandaríkjamenn um að ef Banda- ríkin myndu slaka á viðskiptaþving- unum myndi ríkið fresta öllum kjarnorkusprengjuprófunum. Af því varð hins vegar ekki að sögn norðurkóreska ríkisins. Aftur á móti hertu Bandaríkja- menn hins vegar viðskiptaþvinganir sínar fyrr í mánuðinum. – þea Segja Vesturlönd veruleikafirrt 2 . f E B R ú a R 2 0 1 6 Þ R I Ð j u D a G u R2 f R é t t I R ∙ f R é t t a B L a Ð I Ð 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 5 -E 2 C 4 1 8 5 5 -E 1 8 8 1 8 5 5 -E 0 4 C 1 8 5 5 -D F 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.