Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 6
Þeir óttast að svona
mikill straumur af
flóttafólki gæti raskað
jafnvæginu í samfélaginu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
forsætisráðherra
Frá kr.
105.900
m/allt innifalið
TENERIFE
9. febrúar í 7 nætur
Netverð á mann frá kr. 105.900 m.v. 2 í stúdíó.Tamaimo Tropical
SÉRTILBOÐ
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir á
sk
ilja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra.
Dómsmál Fjárveitingar Alþingis
vegna þjónustu göngudeildar SÁÁ
hafa ekki skilað sér að mati sam-
takanna. SÁÁ hefur stefnt ríkinu
fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur vegna
meintra vanefnda Sjúkratrygginga
Íslands (SÍ) á samningi sem gerður var
í desember 2012 um þjónustu göngu-
deildarinnar.
„Fjárveitingar frá Alþingi til SÁÁ
taka mið af þessum samningi sem ráð-
herra hefur staðfest en með honum
var gert ráð fyrir 43 milljóna króna
árlegri greiðslu til þeirrar þjónustu
SÁÁ sem þar er kveðið á um,“ segir í
umfjöllun SÁÁ. „Frá því samningur-
inn tók gildi hefur hlutur SÍ í rekstrar-
kostnaði hins vegar minnkað úr 43
milljónum króna árið fyrir gildistöku
samningsins, í 27 milljónir króna árið
2013, í 17 milljónir króna árið 2014 og
í núll krónur árið 2015.“
Fram kemur að á síðasta ári hafi
rekstrarkostnaður göngudeildar-
innar numið 76 milljónum króna.
„Vegna deilunnar við Sjúkratryggingar
Íslands greiðir SÁÁ niður með sjálfs-
aflafé sínu þann hluta af kostnaðinum
sem greiða ætti með framlagi Sjúkra-
trygginga. SÁÁ axlar þær byrðar að
svo stöddu en hins vegar er ljóst að
samtökin munu ekki til lengdar geta
staðið undir óbreyttum göngudeildar-
rekstri á eigin kostnað.“
Framtíð göngudeildarþjónustunn-
ar er sögð ráðast af framgangi dóms-
málsins. Til þess hafi verið höfðað
eftir árangurslausar innheimtutil-
raunir. SÁÁ býst við að aðalmeðferð
í málinu fari fram á næstu vikum, en
næsta fyrirtaka í málinu er 18. þessa
mánaðar. – óká
SÁÁ slæst við SÍ fyrir héraðsdómi
Reykjavík Hópur fólks ætlar að
mótmæla skipulögðum fundi karla
sem er fyrirhugaður á laugardag við
Hallgrímskirkju.
Fundurinn er skipulagður af
Roosh Vorek sem gefur sig út fyrir
að kenna karlmönnum að komast
yfir konur og jafnvel beita þær kyn-
ferðisofbeldi. Hann hefur boðað
fylgismenn sína að styttu Leifs
Eiríkssonar næsta laugardag klukk-
an átta. Hann hefur gefið út að hann
vilji skipuleggja fjöldahreyfingar
um allan heim í kringum boðskap
sinn. Hann segist hafa skipulagt 43
fundi víða um heim. Sjálfur segist
hann verða viðstaddur viðlíka fund
í Washington. Þetta kemur fram á
síðu hans, rooshv.com.
„Eins og ég sé þetta, þá getur alls
kyns óþverri fengið að þrífast hér á
landi ef fólk stendur aðgerðalaust
hjá. Ef manni mislíkar eitthvað
þýðir ekki að standa aðgerðalaus
hjá,“ segir Brynhildur Yrsa Guð-
mundsdóttir einn skipuleggjanda
mótmælanna.
Roosh Vorek hefur gefið út að í
einhverjum tilvikum verði skipt um
fundarstað. Brynhildur Yrsa segir að
þrátt fyrir að karlarnir fundi annars
staðar skipti mótmælin máli.
„Okkur langar að sjá ofbeldis-
lausar aðgerðir – meira af léttleika
og gríni. Við erum ekki komnar svo
langt að hugsa um að elta á staðinn
vegna þess að, eins bjartsýnar og við
erum í eðli okkar, sjáum við fyrir
okkur að stór hópur fólks á Hall-
grímskirkjutorgi hafi fælingarmátt.
Ef skipt verður um fundarstað og við
fáum fregnir af því munum við að
sjálfsögðu beina hópnum þangað.“
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu veit af fyrirhuguðum fundi og
ætlar að fylgjast með atburðarás-
inni.
Roosh hefur komið til Íslands,
það var árið 2011 og gortaði hann
í framhaldinu í rafbók sinni Bang
Iceland af því að hafa átt mök við
konu sem samkvæmt bandarískum
lögum yrðu skilgreind sem nauðg-
un. Í bókinni fjallar hann um það
hvernig best sé fyrir ferðamenn
að sænga hjá íslenskum konum
sem hann lýsir sem lauslátum yfir
meðallagi og ótrúlega lauslátum
„þegar búið er að hella þær fullar
og einangra þær“.
Á heimasíðu sinni leiðbeinir
hann fylgismönnum sínum um
fundinn og ráðleggur þeim að ef
femínistar mæti þá skuli þeir taka
af þeim myndir og senda sér svo
hægt sé að rífa þær niður.
Í júlí á síðasta ári urðu nokkrir
mótmælendur í Kanada fyrir hót-
unum frá fylgismönnum Roosh og
var hótað líkamsmeiðingum og
nauðgunum. Þá söfnuðust 46.000
undirskriftir gegn komu hans til
Kanada. kristjanabjorg@frettabladid.is
Mótmæla fundi manns sem
hvetur karlmenn til nauðgana
Hópur fólks hefur boðað komu sína að styttu Leifs Eiríkssonar við Hallgrímskirkju og ætlar að mótmæla
fyrirhuguðum fundi fylgismanna Roosh Vorek. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fylgist með fundinum.
Brynhildur Yrsa hefur ásamt fleirum efnt til mótmæla á laugardag gegn skipulögðum fundi manns sem hvetur til nauðgana.
FréttaBlaðið/Ernir
SÁÁ segir að áður en samið var í desember 2012 hafi verið rekin meðferð fyrir
sjúkratryggða án árekstra við stjórnsýslu og fjárveitingarvald. FréttaBlaðið/HEiða
viðskipti Bílaumboðið Brimborg
hefur fengið byggingarrétt á 14 þús-
und fermetra lóð í Hádegismóum við
Rauðavatn.
Fram kom á fundi borgarráðs í
síðustu viku þar sem úthlutunin var
samþykkt að ef Brimborg staðgreiðir
lóðina fær fyrirtækið 7 prósenta
afslátt og söluverðið verður þá rúmar
228 milljónir króna.
Eftir hrunið 2008 vildi Brimborg
skila Reykjavíkurborg lóð á Esjumel-
um sem fyrirtækið hafði borgað 136
milljónir króna fyrir í gatnagerðar-
gjöld en borgin féllst ekki á það. Brim-
borg stefndi þá borginni en fyrirtækið
tapaði því máli fyrir Hæstarétti. – gar
Brimborg fær
Rauðavatnslóð
Höfuðstöðvar Brimborgar eru nú á
Ártúnshöfða. FréttaBlaðið/StEFÁn
þjónusta „Má líkja ákvörðun sem
þessari við það að enn einn nagl-
inn sé rekinn í líkkistu dreifbýlis á
landsbyggðinni,“ segir sveitarstjórn
Strandabyggðar.
Sveitastjórnin fordæmir ákvörð-
un Íslandspóst um að fækka
útburðardögum pósts í dreifbýli
um helming.
Sveitarstjórnin segir að eftir
breytingu á reglugerð í október geti
Íslandspóstur fækkað dreifingar-
dögunum. Skorar sveitarstjórnin á
forsvarsmenn Íslandspósts að hætta
við að skerða póstdreifinguna í
sveitum. – gar
Einn naglinn í
líkkistuna enn
stjóRnmál „Það er óhætt að segja
að þetta hefur mikil áhrif á samfé-
lagið hér,“ sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson í Reykjavík síðdegis
um flóttamannabúðir sem hann
heimsótti í Líbanon í gær.
„Þetta er ekki stórt land, það er
álíka stórt og Norður-Múlasýsla ef
ég man rétt en hér er gríðarlegur
fjöldi flóttamanna. Flóttamenn
sem hafa verið að koma frá Sýrlandi
vegna stríðsins þar en líka mikill
fjöldi palestínskra flóttamanna sem
hafa búið hér jafnvel kynslóð eftir
kynslóð allt frá árinu 1948.“
Nærri tvær milljónir sýrlenskra
flóttamanna voru í flóttamanna-
búðum í Líbanon í desember í fyrra.
Sigmundur segir þetta skapa mikið
álag fyrir stjórnvöld í Líbanon.
„Þeir óttast að svona mikill
straumur af flóttafólki gæti raskað
jafnvæginu í samfélaginu. Þetta
getur líka raskað hlutfallinu á milli
þjóðfélagshópa. Kristnir voru hér
í meirihluta og auk þess hafa sjía-
múslimar og súnní-múslimar oft
átt erfitt í sinni sambúð. Allir þessir
hópar vilja gjarnan viðhalda jafn-
vægi sem að þrátt fyrir allt hefur
náðst núna og óttast þess vegna
áhrifin af þessum óróa og stríðum
í nágrannalöndunum,“ sagði Sig-
mundur.
Hann átti meðal annars fund með
framkvæmdastjóra Rauða krossins
í Líbanon auk forsætisráðherra
Líbanons.
„Allir voru meðvitaðir um
Milljónir strandaglópa í landi sem er tíund af stærð Íslands
Sigmundur kannaði aðstæður flótta-
manna í líbanon.
MYnd/ForSætiSrÁðunEYtið
áherslur Íslands í þessum málum
og mér fannst þeir taka afdráttar-
laust undir að það ætti að nálgast
hlutina á heildstæðan hátt eins og
við Íslendingar höfum reynt að gera.
Það er að segja að styðja við löndin
hér í kring, gera mönnum kleift að
búa hér í flóttamannabúðunum við
sæmilegt öryggi en að geta þá frekar
tekið við þeim beint héðan sem eru
raunverulegir flóttamenn sem geta
ekki snúið aftur,“ sagði hann.
Eftir för sína til Líbanon heldur
Sigmundur til London til að funda
með þjóðarleiðtogum í Evrópu um
ástandið í Sýrlandi. – srs
2 . f e b R ú a R 2 0 1 6 þ R i ð j u D a G u R4 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð
0
1
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
5
5
-F
6
8
4
1
8
5
5
-F
5
4
8
1
8
5
5
-F
4
0
C
1
8
5
5
-F
2
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K