Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 12
www.versdagsins.is
Styrkist
í Drottni og
krafti máttar
hans...
Kjaramál Verkalýðsfélag Akraness
(VLFA) skrifar ekki undir kjarasamn-
ing við sveitarfélögin þar sem svo-
nefnt SALEK-samkomulag er með sem
fylgiskjal, segir Vilhjálmur Birgisson,
formaður VLFA. Félagsdómur vísaði
fyrir helgi frá máli verkalýðsfélagsins
á hendur Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga þar sem þess var krafist að SALEK-
samkomulagið yrði ekki hluti af kjara-
samningi félaganna.
Boðað hefur verið til samningafund-
ar í kjaradeilu VLFA og sveitarfélaga hjá
ríkissáttasemjara eftir hádegi í dag, en
þar segir Vilhjálmur koma í ljós hvort
sveitarfélögin standi enn við þá kröfu
sína að nýjum kjarasamningi fylgi
viðauki um SALEK-samkomulagið.
Fari svo sé einboðið að vísa deilunni
til almennra dómstóla.
„Grundvallaratriðið er að ef við
myndum samþykkja þetta ramma-
samkomulag með kjarasamningnum
hjá okkur, þá er það orðið ígildi kjara-
samnings,“ segir hann. SALEK-sam-
komulagið geri svo ráð fyrir að launa-
breytingar í öðrum kjarasamningum,
sem félagið eigi eftir að gera, verði með
þeim hætti sem kveðið er á um í sam-
komulaginu.
„Og við getum ekkert fallist á það
að við ákveðum í þessum samningi
hvernig við göngum frá öðrum kjara-
samningum sem við eigum eftir að
gera. Það bara stenst enga skoðun.“
Vilhjálmur segir að fyrir Félagsdómi
hafi Samband íslenskra sveitarfélaga
breytt „algjörlega um kúrs“ og sagt
SALEK ekki vera skuldbindandi, þótt
félagið hafi lagt fyrir dóminn gögn
um annað. Standi sú stefnubreyting
komi ekkert í vegi fyrir undirritun
samninga.
„Nei, nei, þetta er orðið þýðingar-
laust plagg af þeirra hálfu, bara einhver
markmið og annað slíkt.“ – óká
Deilan um SALEK gæti endað fyrir héraðsdómi
ÍraK Sameinuðu þjóðirnar hafa
óskað formlega eftir andvirði um 112
milljarða króna frá aðildarríkjum til
mannúðaraðstoðar í Írak. Sameinuðu
þjóðirnar vilja nýta peninginn til að
bregðast við vaxandi vanda í landinu
vegna stríðsins við DAISH-samtökin,
sem kenna sig við íslamskt ríki.
Tekjur írakska ríkisins hafa hríð-
fallið undanfarið með lækkandi
olíuverði og segja yfirvöld þar í landi
að þau geti ekki fjármagnað nema
helming þeirrar aðstoðar sem þörf er
á í landinu. Um tíu milljónir Íraka búa
nú við mikinn skort. – þea
SÞ vilja fá 112
milljarða króna
mjanmar Eitt fyrsta verk nýkjörins
þings í Mjanmar, sem einnig hefur
verið nefnt Búrma, verður að kjósa
nýjan forseta til næstu fimm ára.
Herinn hefur farið að mestu með öll
völd í landinu frá árinu 1960 þangað
til kosið var til þings í nóvember
síðastliðnum. Þá vann Lýðræðisfylk-
ingin, flokkur Nóbelsverðlaunahafans
Aung San Suu Kyi, yfirburðasigur.
Þetta tryggir að ekki verður hægt
að velja forseta nema með stuðningi
flokksins. Herinn fékk sjálfkrafa 25
prósent þingsæta, vegna stjórnar-
skrárákvæðis þar um, en Lýðræðis-
fylkingin er með öruggan meirihluta
í báðum deildum þingsins.
Aung San Suu Kyi getur hins vegar
ekki orðið forseti vegna þess að hún
á tvo fullorðna syni sem báðir eru
breskir ríkisborgarar eins og faðir
þeirra var, en hann lést árið 1999.
Samkvæmt stjórnarskrá landsins
mega forseti landsins, maki hans eða
afkomendur, ekki vera erlendir ríkis-
borgarar.
Suu Kyi ræddi ekkert við blaða-
menn á fyrsta degi þingsins, en hún
hefur áður sagt að sjálf muni hún
fara með stjórn landsins í reynd á
kjörtímabilinu þótt hún geti ekki
orðið forseti. Vegna þingmeirihluta
flokksins muni hún í reynd standa
ofar forsetanum að völdum: „Ég mun
taka allar ákvarðanirnar,“ sagði hún
í viðtali við breska útvarpið BBC í
nóvember.
Búist er við að á allra næstu vikum
muni hún skýra frá því, hver verði for-
setaefni flokksins.
Herforinginn Thein Sein hefur
verið forseti frá árinu 2011, en hann
er talinn hafa átt stóran þátt í þeirri
lýðræðisþróun sem orðið hefur eftir
að hann tók við. Hann lætur form-
lega af embætti 1. mars næstkom-
andi.
Suu Kyi vann stórsigur ásamt
flokki sínum í þingkosningum árið
1990, en herforingjastjórnin tók
ekki mark á niðurstöðum þeirra
kosninga. Hún sat eftir það í stofu-
fangelsi meira og minna til ársins
2010, með nokkrum hléum þó en
samtals í fimmtán ár.
Flestir þingmennirnir eru að setj-
ast á þing í fyrsta sinn.
AFP fréttastofan ræddi við einn
þeirra, Nyein Thit, sem situr á þingi
fyrir Lýðræðisfylkinguna: „Við
Suu Kyi komin til valda í Mjanmar
Tímamót urðu í Mjanmar í gær þegar nýtt þing kom saman. Friðarverðlaunahafinn Aung San Suu Kyi stjórnar þar langstærsta flokkn-
um, eftir að hafa áratugum saman barist gegn herforingjastjórninni. Fæstir kjörnu þingmannanna hafa setið sem þingmenn áður.
Aung San Suu Kyi mætti til fyrsta þingfundar í gær ásamt hundruðum annarra þingmanna. Flokkur Suu Kyi mun hafa mikinn meirihluta á þinginu eftir kosningar sem fóru fram í nóvember. FréttAblAðið/EPA
Við höfum gengið í
gegnum miklar
þjáningar en nú sjáum við
niðurstöðuna og ávöxtinn af
þjáningum okkar. Þetta er
falleg byrjun.
U Win Htein, talsmaður
Lýðræðisfylkingarinnar
Þjóðþingið
224
þingmenn sitja í efri deild. Þar af
135, eða 60 prósent, fyrir Lýðræðis-
fylkinguna.
440
þingmenn sitja í neðri deild. Þar
af 255, eða 58 prósent, fyrir Lýð-
ræðisfylkinguna.
Ef við myndum
samþykkja þetta
rammasamkomulag með
kjarasamningnum hjá
okkur, þá er það orðið ígildi
kjarasamnings.
Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA
Hvað er SALEK?
Skammstöfunin SALEK stendur
fyrir „samstarf um launaupplýs-
ingar og efnahagsforsendur kjara-
samninga“ og er afrakstur úttektar
sem félög vinnumarkaðarins
gerðu á umhverfi kjarasamninga á
hinum Norðurlöndunum, þar sem
áhersla var lögð á heildarendur-
skoðun samningalíkansins.
munum vinna að mannréttindum
og lýðræði ásamt friði,“ sagði hann.
„Við höfum verið að berjast fyrir
lýðræði frá árinu 1988,“ hefur breska
dagblaðið eftir U Win Htein, tals-
manni flokksins. „Við höfum gengið
í gegnum miklar þjáningar en nú
sjáum við niðurstöðuna og ávöxtinn
af þjáningum okkar. Þetta er falleg
byrjun.“ gudsteinn@frettabladid.is
Frá Akranesi. Verkalýðsfélagið á staðnum skrifar ekki undir kjarasamninginn þar sem Salek er í fylgisskjali. FréttAblAðið/GVA
2 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D a G U r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð
0
1
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
5
5
-C
A
1
4
1
8
5
5
-C
8
D
8
1
8
5
5
-C
7
9
C
1
8
5
5
-C
6
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K