Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 14

Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Ólafur Teitur Guðnason upplýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Íslandi Á þrettándanum afþökkuðu viðsemjendur ISAL tilboð fyrirtækisins um 24% launa-hækkun út árið 2019, viðbótarhækkanir í samræmi við SALEK-endurskoðunina, nýja bónusa sem gátu gefið allt að 8% launahækkun til viðbótar, og eingreiðslu vegna ársins 2015. Þegar viðræðurnar hófust voru dagvinnulaun verkamanna hjá ISAL 25% yfir landsmeðaltali. Skyldi því engan undra að við samningaborðið var fullkomin sátt um launin. Verkalýðsfélögin gátu hins vegar ekki samþykkt að slakað yrði á hömlum varðandi útvistun og verk- töku, sem eiga sér enga hliðstæðu á Íslandi. ISAL er eina fyrirtækið á Íslandi með kjarasamn- ing sem kveður á um að allir sem stíga fæti inn á svæðið skuli fá sömu laun og starfsmenn fyrir- tækisins. Þú last rétt: Kjarasamningur ISAL gildir ekki bara um starfsmenn fyrirtækisins heldur líka um starfs- menn annarra fyrirtækja. Þessu til viðbótar er ISAL eina fyrirtækið á Íslandi sem má ekki bjóða út rekstur mötuneytis. ISAL er eina fyrirtækið á Íslandi sem má ekki bjóða út hliðvörslu og öryggisgæslu. ISAL er eina fyrirtækið á Íslandi sem þarf sérstakt leyfi aðaltrúnaðarmanns fyrir nánast hverju einasta viðviki sem iðnaðarmenn á vegum annarra fyrir- tækja sinna á svæðinu, hversu lítilfjörlegt sem það er. Þótt ótrúlegt megi virðast hefur enginn fjölmiðill beðið verkalýðsfélögin um að nefna hvaða önnur fyrirtæki búa við slík skilyrði. Látið hefur verið í veðri vaka að kjaraviðræðurnar hjá ISAL einkennist af því, að fyrirtækið vilji ekki lúta lögmálum íslensks vinnumarkaðar. Þetta eru eins mikil öfugmæli og hugsast getur, því viðræð- urnar strönduðu einmitt á því, að ISAL vill fá að starfa eftir almennum leikreglum á Íslandi. Það vildu verkalýðsfélögin ekki samþykkja. Og fyrir þann sérstaka málstað fórnuðu þau meira en fjórðungshækkun ofan á laun sem þegar voru fjórð- ungi yfir markaðslaunum. Að sitja við sama borð Viðræðurnar strönduðu á því, að ISAL vill fá að starfa eftir almennum leikreglum á Íslandi. NÝTT OG BETRA APP Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið í símanum eða spjaldtölvunni hvar og hvenær sem er. Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum Það er gríðarlega mikilvægt að styrkja inn-viði heilbrigðiskerfis, menntakerfis og félagslega kerfisins til þess að sporna við fjölgun [öryrkja],“ sagði Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins í föstu-dagsviðtali Fréttablaðsins fyrir helgi. Þar ræddi hún um fjölgun öryrkja, en nýlega var sagt frá því að öryrkjum hefði fjölgað um 29 prósent frá árinu 2005. Ellen sagði fjölgunina náttúrulega, í takti við fólksfjölgun. Það væri hins vegar hvorki hagur Öryrkja- bandalagsins né samfélagsins að öryrkjum fjölgaði sér- staklega. „Það er forgangsröðun fjármuna sem veldur fjölgun örorkulífeyrisþega.“ Þeim hefur sem sagt fjölgað verulega sem hafa skerta starfsorku og þurfa því að reiða sig á framfærslu ríkis- ins. Það er miður, ekki aðeins fyrir samfélagið heldur fyrst og fremst fyrir einstaklingana sjálfa. Flestir vilja vera virkir þátttakendur í samfélaginu og félagsleg áhrif þess að vera útilokaður frá vinnumarkaði eru gríðarleg. Ellen segir í viðtalinu að kerfið sé vinnuletjandi, vinnumarkaðurinn ekki nægilega sveigjanlegur, kjara- skerðingar of miklar og öryrkjum séu sett mörk á öllum mögulegum stöðum. Niðurstöðu nefndar sem unnið hefur að heildar- endurskoðun almannatryggingakerfisins, sem sett var á laggirnar af Pétri heitnum Blöndal, þáverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins, er beðið með eftir- væntingu. Vinna nefndarinnar miðaði að því að horfið yrði frá kerfi örorkumats og tekið upp starfsgetumat í staðinn. Vonast var til að nefndin myndi skila af sér niðurstöðum sínum fyrir áramót en svo varð ekki. Nýr formaður nefndarinnar, Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir tillögurnar muni gera öryrkjum og ellilífeyrisþegum auðveldara að starfa. Ellilífeyrisþegar verði þá virkir lengur á vinnumarkaði og þeir sem hafa skerta starfsgetu sæki í að vinna. „Það þarf samræmt átak mjög margra ef þetta á að geta orðið að veruleika,“ segir Þorsteinn. Ríki, sveitarfélög og almennur vinnumarkaður þurfi til að mynda að bjóða þessum þjóðfélagshópum upp á hlutastörf. Nefndin hefur verið við störf í á þriðja ár. Gert er ráð fyrir að breytingarnar verði kostnaðarsamar, til að byrja með að minnsta kosti. Kerfið sjálft sem og vinnu- markaðurinn mun þurfa tíma til að aðlagast. Málaflokkurinn er á forræði félagsmálaráðherra, sem hefur átt í vök að verjast með frumvörp sín um breytingar á húsnæðismálakerfinu sem ráðherrann hefur lagt mikla áherslu á að komist til framkvæmda. Illa hefur gengið hjá ráðherra að fá málið í gegnum ríkisstjórn og andstaða samstarfsflokksins á þingi er fyrirsjáanleg. Því er hætt við að önnur stór barátta, sem er dýr og mun taka einhvern tíma að borga sig gæti orðið erfið fyrir félagsmálaráðherra. Sérstaklega stuttu fyrir kosningar. Það er mikil þörf á því að gera fólki í meiri mæli kleift að hjálpa sér sjálft. Að veita því aðstoð við að komast áfram á eigin verðleikum. Sama þó vegalengdin verði stutt. Orka og geta Flestir vilja vera virkir þátttakendur í samfélaginu og félagsleg áhrif þess að vera úti- lokaður frá vinnumarkaði eru gríðarleg. Trudeau og séra Trudeau Margir fögnuðu þeim gleði- tíðindum að Ísland hefði tekið á móti sýrlenskum flóttafjöl- skyldum á dögunum. Ráða- menn tóku á móti fólkinu að fjölmiðlum viðstöddum fyrr í mánuðinum. Sumir tóku sig til og gagnrýndu forsætisráðherra fyrir að notfæra sér aðstæður þessa fólks í pólitískum tilgangi. Nú heyrast sömu raddir vegna ferðar hans til flóttamanna- búða í Líbanon. Skemmst er að minnast þegar fjölmargir Íslendingar deildu myndbandi af Justin Trudeau, forsætisráð- herra Kanada, þar sem hann tók á móti flóttafólki þar í landi og óskuðu sér að Ísland ætti slíkan forsætisráðherra. Hér er mikill tvískinnungur á meðal ýmissa netverja en ráðamenn hér á landi eiga hrós skilið fyrir að veita flóttafólki hlýja móttökur líkt og kollegi þeirra Trudeau. Siglt beint inn í ESB? Umræðan um aðild Íslands að ESB hefur verið svokallað „non- issue“ undanfarna mánuði. Margir spá því að málefnið sé alveg dautt. Hins vegar er áhuga- vert a sjá í nýrri skoðanakönnun Gallup og Já Ísland að 66 pró- sent Pírata vilja halda viðræðum áfram og 67 prósent þeirra eru hlynnt aðild. Ef fylgi Pírata heldur áfram á siglingu gæti svo gerst að Ísland sigli beint inn í ESB. stefanrafn@frettabladid.is 2 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Þ r I Ð J U D a G U r12 s k o Ð U n ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð SKOÐUN 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K _ .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 5 -D 8 E 4 1 8 5 5 -D 7 A 8 1 8 5 5 -D 6 6 C 1 8 5 5 -D 5 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.