Fréttablaðið - 02.02.2016, Side 22

Fréttablaðið - 02.02.2016, Side 22
S eint á síðasta ári naut greinarritari þess að vera boðið til höfuð- stöðva Audi í Ingol- stadt til af prófa rjóm- ann af bílum fyrir- tækisins og þar er sko ekki í kot vísað. Þátttakend- ur í ferðinni höfðu nokkra daga til að reyna fjölmarga af afl- mestu bílum sem Audi fram- leiðir á þýskum vegum. Í ferð- inni var einnig boðið upp á braut- arakstur á Audi R8 bílum en þar fer trompið úr smiðju Audi og var það ein mesta akstursupplifun þess er þetta ritar. Hinir bílarn- ir sem prófaðir voru voru þess- ir: Audi A8 með 8 strokka og 382 hestafla dísilvél með tveimur for- þjöppum, Audi RS6 og RS7 með 560 hestafla 8 strokka bensín- vélum, Audi TT S með 310 hest- afla bensínvél, Audi RS Q3 með 340 hestafla bensínvél og Audi A7 með 320 hestafla og sex strokka bensínvél. Ótakmarkaður hraði og það skyldi nota Þátttakendurnir skiptust á bílum og allir fengu að aka öllum bíl- unum, hvort sem var í bæjum, á sveitavegum eða hraðbrautum og þar voru þessir bílar sannarlega í essinu sínu. Sáust þar jafn dóna- legar tölur sem 280 km á hraða- mælinum, þ.e. á Audi RS6 bíln- um. Algjörlega löglegt samt þar sem þar var ótakmarkaður hraði. Þessir bílar liggja allir eins og klessa á veginum og í engan þeirra skortir afl, þó svo nokkru muni á hestaflatölu þeirra. Litli bíllinn Audi TT S var hreint ótrú- lega sprækur þó hann skorti 250 hestöfl á þá aflmestu, en þar sem hann er svo lítill er hröðun hans ótrúleg. Hann er þó nokk- uð harður á fjöðrun, sannkallað- ur sportbíll. Líklega var þægileg- ast að aka Audi A8 bílnum með 8 strokka dísilvélina. Hann fer svo vel með mann með sína ljúfu fjöðrun og er algjör forstjórabíll, en samt svo öflugur, enda togar hann „litla“ 850 Nm og er leit að öðru eins. Raketturnar í hópnum Raketturnar í hópnum voru samt Audi RS6 og RS7 bílarnir með sín 560 hestöfl. Þeir eru 3,9 sek- úndur í hundraðið og endalaust tog á öllu snúningssviðinu. Þess- ir bílar eru hreint undur en samt sem úlfar í sauðargæru. Til að mynda er RS6 bara eins og venju- legur skutbíll, þó ansi reffilegur með sín útteknu bretti, fáránlega flottu felgur og grimman fram- enda. En að gefa þessum kvikind- um inn, það er sér kapítuli. Best væri að geta framkallað hljóð- ið sem úr þeim kemur á prenti en þar sem það er ekki hægt er bara hægt að segja að hljóðið fær hvern bílaáhugamann til að fella tár af gleði. Það er þó bara byrj- unin á eins áhugaverðum kynn- um af bíl og kostur er. Erfitt er að finna hvar takmörkin liggja í þessum bílum og það þarf djarf- an bílstjóra til að finna það út, en veggrip hans og aksturseig- inleikar er engu líkir. Gaman er að segja frá því að einn nýlegur Audi RS7 er kominn á göturnar hér á landi og var hann sýndur á bílasýningu í Heklu um daginn. Allt þAð bestA frá Audi á einu bretti Þeyst um borgir, sveitir og hraðbrautir Þýskalands á sex af alöflugustu bílum Audi. Magnaður jepplingur Eini jepplingurinn í hópnum var enginn kórdrengur held- ur, með sín 340 hestöfl. Hann er ári fljótur og þar sem hann er svo lítill og léttur fer þar ein spyrnukerran enn úr stóru vopnabúri Audi. Það var ein- kennilegt að sjá að leiðangurs- menn kepptust ekki við að prófa lítinn 340 hestafla jeppling frá gæðasmið eins og Audi, en það væri draumur margra. Það skýrðist þó eingöngu af því úr hvaða öðrum bílum var að spila í þessari dásamlegu ferð. Þessi snaggaralegi jepplingur er að- eins 4,8 sekúndur í hundraðið og þar sem hann er lægri á vegi en hefðbundinn Audi Q3 og auk þess með stífari fjöðrun fer þar eiginlega einn sportbíllinn enn. Sjötti bíllinn í leiðangrinum var líklega sá hefðbundnasti, Audi A7 með sínu flotta coupe- lagi og þar fór nú ekki leiðin- legur farar skjóti heldur. Alls ekki leiðinleg fjölskylda þar að hitta og alveg í lagi að hendast á milli veitingastaða í Germaníu á þessum tækjum og aldrei þeim sama og síðast. Þvílíkir dagar fyrir bílaáhugamann! Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is Þegar fjölskyldan stækkar getur nýrri, sparneytnari og öruggari bíll gert gæfumuninn. Með faglegri ráðgjöf og góðri þjónustu hjálpum við þér að fjármagna það sem upp á vantar til að þú getir uppfært fjölskyldubílinn. Við fjármögnum flest milli himins og jarðar Við aðstoðum með ánægju. bílAr Fréttablaðið 4 2. febrúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 5 -E 7 B 4 1 8 5 5 -E 6 7 8 1 8 5 5 -E 5 3 C 1 8 5 5 -E 4 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.