Fréttablaðið - 02.02.2016, Qupperneq 22
S
eint á síðasta ári naut
greinarritari þess að
vera boðið til höfuð-
stöðva Audi í Ingol-
stadt til af prófa rjóm-
ann af bílum fyrir-
tækisins og þar er
sko ekki í kot vísað. Þátttakend-
ur í ferðinni höfðu nokkra daga
til að reyna fjölmarga af afl-
mestu bílum sem Audi fram-
leiðir á þýskum vegum. Í ferð-
inni var einnig boðið upp á braut-
arakstur á Audi R8 bílum en þar
fer trompið úr smiðju Audi og var
það ein mesta akstursupplifun
þess er þetta ritar. Hinir bílarn-
ir sem prófaðir voru voru þess-
ir: Audi A8 með 8 strokka og 382
hestafla dísilvél með tveimur for-
þjöppum, Audi RS6 og RS7 með
560 hestafla 8 strokka bensín-
vélum, Audi TT S með 310 hest-
afla bensínvél, Audi RS Q3 með
340 hestafla bensínvél og Audi A7
með 320 hestafla og sex strokka
bensínvél.
Ótakmarkaður hraði
og það skyldi nota
Þátttakendurnir skiptust á bílum
og allir fengu að aka öllum bíl-
unum, hvort sem var í bæjum, á
sveitavegum eða hraðbrautum og
þar voru þessir bílar sannarlega í
essinu sínu. Sáust þar jafn dóna-
legar tölur sem 280 km á hraða-
mælinum, þ.e. á Audi RS6 bíln-
um. Algjörlega löglegt samt þar
sem þar var ótakmarkaður hraði.
Þessir bílar liggja allir eins og
klessa á veginum og í engan
þeirra skortir afl, þó svo nokkru
muni á hestaflatölu þeirra. Litli
bíllinn Audi TT S var hreint ótrú-
lega sprækur þó hann skorti 250
hestöfl á þá aflmestu, en þar
sem hann er svo lítill er hröðun
hans ótrúleg. Hann er þó nokk-
uð harður á fjöðrun, sannkallað-
ur sportbíll. Líklega var þægileg-
ast að aka Audi A8 bílnum með
8 strokka dísilvélina. Hann fer
svo vel með mann með sína ljúfu
fjöðrun og er algjör forstjórabíll,
en samt svo öflugur, enda togar
hann „litla“ 850 Nm og er leit að
öðru eins.
Raketturnar í hópnum
Raketturnar í hópnum voru samt
Audi RS6 og RS7 bílarnir með
sín 560 hestöfl. Þeir eru 3,9 sek-
úndur í hundraðið og endalaust
tog á öllu snúningssviðinu. Þess-
ir bílar eru hreint undur en samt
sem úlfar í sauðargæru. Til að
mynda er RS6 bara eins og venju-
legur skutbíll, þó ansi reffilegur
með sín útteknu bretti, fáránlega
flottu felgur og grimman fram-
enda. En að gefa þessum kvikind-
um inn, það er sér kapítuli. Best
væri að geta framkallað hljóð-
ið sem úr þeim kemur á prenti
en þar sem það er ekki hægt er
bara hægt að segja að hljóðið fær
hvern bílaáhugamann til að fella
tár af gleði. Það er þó bara byrj-
unin á eins áhugaverðum kynn-
um af bíl og kostur er. Erfitt er
að finna hvar takmörkin liggja í
þessum bílum og það þarf djarf-
an bílstjóra til að finna það út,
en veggrip hans og aksturseig-
inleikar er engu líkir. Gaman er
að segja frá því að einn nýlegur
Audi RS7 er kominn á göturnar
hér á landi og var hann sýndur á
bílasýningu í Heklu um daginn.
Allt þAð bestA frá Audi á einu bretti
Þeyst um borgir, sveitir og hraðbrautir Þýskalands á sex af alöflugustu bílum Audi.
Magnaður jepplingur
Eini jepplingurinn í hópnum
var enginn kórdrengur held-
ur, með sín 340 hestöfl. Hann
er ári fljótur og þar sem hann
er svo lítill og léttur fer þar
ein spyrnukerran enn úr stóru
vopnabúri Audi. Það var ein-
kennilegt að sjá að leiðangurs-
menn kepptust ekki við að prófa
lítinn 340 hestafla jeppling frá
gæðasmið eins og Audi, en það
væri draumur margra. Það
skýrðist þó eingöngu af því úr
hvaða öðrum bílum var að spila
í þessari dásamlegu ferð. Þessi
snaggaralegi jepplingur er að-
eins 4,8 sekúndur í hundraðið
og þar sem hann er lægri á vegi
en hefðbundinn Audi Q3 og auk
þess með stífari fjöðrun fer þar
eiginlega einn sportbíllinn enn.
Sjötti bíllinn í leiðangrinum
var líklega sá hefðbundnasti,
Audi A7 með sínu flotta coupe-
lagi og þar fór nú ekki leiðin-
legur farar skjóti heldur. Alls
ekki leiðinleg fjölskylda þar að
hitta og alveg í lagi að hendast á
milli veitingastaða í Germaníu á
þessum tækjum og aldrei þeim
sama og síðast. Þvílíkir dagar
fyrir bílaáhugamann!
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Þegar fjölskyldan stækkar getur nýrri, sparneytnari og öruggari bíll gert
gæfumuninn. Með faglegri ráðgjöf og góðri þjónustu hjálpum við þér að
fjármagna það sem upp á vantar til að þú getir uppfært fjölskyldubílinn.
Við fjármögnum flest
milli himins og jarðar
Við aðstoðum með ánægju.
bílAr
Fréttablaðið
4 2. febrúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
1
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
5
5
-E
7
B
4
1
8
5
5
-E
6
7
8
1
8
5
5
-E
5
3
C
1
8
5
5
-E
4
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K