Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 24

Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 24
JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is S uzuki Vitara kom af nýrri kynslóð á síð- asta ári og er sem fyrr ári vel heppnað- ur jepplingur, enda úr smiðju framleiðanda sem ekki smíðar nema afar trausta og vandaða bíla, flesta fremur smáa. Nú er komin ný gerð þessa bíls, Suzuki Vit- ara S með afar sprækri en lítilli vél. Þessi vél er 1,4 lítrar, brennir bensíni og skilar 140 hestöfl- um með aðstoð góðrar forþjöppu. Þar sem þessi netti jepplingur er aðeins 1.235 kíló er hann afar skemmtilegur bíll með þessari vél og sportlegur í akstri. Þegar sest var upp í bílinn fyrsta sinni og lagt af stað breiddist ánægju- svipur yfir andlit ökumanns því viljugur er þessi fákur og tilbú- inn að leika sér. Helsta ástæða þess er það aukaafl sem forþjapp- an gefur þessari vél þó sprengi- rýmið sé lítið. Togið 41% meira en minni eyðsla Vélin er 0,2 lítrum minni en í hefðbundinni gerð Vitara en samt togar hún 41% meira, er 20 hest- öflum öflugri, en eyðir samt örlít- ið minna. Hér er kannski komin ein albesta birtingarmynd á notk- un forþjappa í bíla og nær allir framleiðendur eru einmitt að for- þjöppuvæða flesta bíla sína og í leiðinni að auka afl þeirra en minnka eyðslu. Ekki skemm- ir það fyrir að Vitara léttist um heil 420 kíló á milli kynslóða, en hann minnkaði reyndar örlít- ið einnig. Með þessari litlu vél er bíllinn orðinn enn léttari og munar þar 60 kílóum. Því er hér kominn einn alléttasti jeppling- ur sem í boði er og eyðsla hans endurspeglar það, en hann eyðir 5,5 lítrum í blönduðum akstri. Í reynsluakstrinum, sem oft var reyndar með sprækasta móti reyndist hann eyða um 7,5 lítrum og sá akstur var allur innan borg- armarkanna. Því er hér á ferð sparibaukur sem engu að síður er fær um að takast á við nokkra ófærð. Annað skemmtilegt við Vitara S umfram grunngerðina er að hann er stífari á fjöðrun- inni og enn má herða á henni með sportstillingu. Hann er að auki með næmari í stýri og úr verð- ur bíll sem minnir á sportlegan fólksbíl. Minnir á Suzuki Swift Sport Það var ekki frá því við akstur Vitara S að annars skemmti- legs bíls Suzuki mætti líkja við hann, þ.e. Suzuki Swift Sport. Sá er einn skemmtilegasti litli bíll sem kaupa má og snaggaralegar hreyfingar hans og sportleg ein- kenni komu einnig í ljós í þessum jepplingi. Reynsluakstursbíllinn var með 6 þrepa sjálfskiptingu og hún passar þessari vél fullkom- lega og skilar afli hennar ávallt vel. Þetta samband vélar og skiptingar er eins og gott hjóna- band, en þó gætir samt tilhlökk- unar að prófa þennan bíl með beinskiptingu og þá ætti engu að leiðast heldur. Þrátt fyrir frem- ur stífa fjöðrun étur Vitara S vel upp allar ójöfnur og hraðahindr- anir og víst er að þessi bíll liggur vel á vegi. Allgrip fjórhjóladrif- SkemmtilegaSta útgáfan af tryggum jepplingi Sem nú er af nýrri kynSlóð Með frábærri nýrri og öflugri vél, meiri búnaði og flottari innréttingu er hér kominn mest aðlaðandi útfærsla þessarar nýju kynslóðar Vitara og hún býðst á flottu verði. Er ekki nema 1.235 kíló. Suzuki Vitara S í sínu rétta umhverfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 1,4 bensínvél, 140 hestöfl fjórhjóladrif eyðsla 5,5 l/100 km í blönduðum akstri Mengun 128 g/km CO2 hröðun 10,2 sek. hámarkshraði 200 km/klst. verð 4.980.000 kr. Umboð Suzuki l Skottrými l Efnisval innréttingar l Vél l Aksturseiginleikar l Búnaður l Verð Suzuki vitara Bílar Fréttablaðið 6 2. febrúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 5 -D 3 F 4 1 8 5 5 -D 2 B 8 1 8 5 5 -D 1 7 C 1 8 5 5 -D 0 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.