Fréttablaðið - 02.02.2016, Side 28

Fréttablaðið - 02.02.2016, Side 28
Þ að vakti forvitni greinarritara að sjá auglýstan svo stór- an fjölskyldubíl sem Skoda Octavia um daginn á 3.390.000 og hundrað þús- und krónum hærra fyrir lang- baksgerð hans. Þetta er verð- ið á nýrri gerð bílsins með staf- ina G-Tec í endann. G-Tec þýðir að hann brennir metangasi, en einnig bensíni og í honum er jafn stór bensíntankur og í frumgerðinni, 50 lítrar en einn- ig tveir metantankar sem rúma 97 lítra af GNC. Með þessum miklu birgðum kemst þessi bíll 1.330 km í blönduðum akstri og 1.600 km ef honum er ekið í Eco-mode. Meira en hringinn í kringum landið. Það sem skýr- ir þetta lága verð bílsins er hve umhverfisvænn hann er og fell- ur hann því í lægsta vörugjalds- flokk. En hvernig skildi þessi bíll reynast í akstri? Hljóðlát og ljúf fjölbrennsluvél Í Skoda Octavia G-Tec er 1,4 lítra TSI bensínvél sem einn- ig getur brennt metani og skil- ar 110 hestöflum. Því er hann ekki snarpur, en hann vinn- ur samt ágætlega, sérstaklega á ákveðnu snúningssviði sem, sem betur fer, er fremur neðar- lega og aflið því ágætt án þess að komi til mikils snúnings vél- arinnar. Þessi 1,4 lítra TSI vél er í mörgum öðrum bílgerðum Volkswag en bílafjölskyldunn- ar og er þekkt fyrir ágæti sitt og í þessum bíl er hún einkar hljóðlát, reyndar svo að velta þarf stundum fyrir sér hvort bíllinn sé í gangi. Tvær gerð- ir eldsneytis tanka þýðir tveir eldsneytismælar, annar neðan hraðamælisins og hinn neðan snúningsmælisins. Í reynslu- akstrinum var mest ekið á met- ani, en þó einnig á bensíninu og fannst ekki fyrir því hvoru hann var að brenna. Hafa skal í huga að það er ódýrara að aka á met- ani en bensíni, svo hér er spari- baukur á ferð, auk þess að vera umhverfisvænn. Ljúf fjöðrun en ekkert varadekk Bíllinn er með hina ljúfustu fjöðrun og mikla slaglengd og þessi fjöðrun þarf að vera sterk- ari en í grunngerð Octavia þar sem bíllinn er nokkru þyngri vegna aukatankanna og annars- konar drifbúnaðar. Það virð- ist þó ekki koma mikið niður á aksturseiginleikunum. G-Tec er með multi-link fjöðrun að aftan, ólíkt grunngerðinni og það bætir fjöðrunina. Annað sem ekki er eins í grunngerðinni og G-Tec er að það vantar alvöru varadekk og viðgerðarsett í stað þess. Vegna breyttrar fjöðrunar bílsins er heldur ekki hægt að hækka bílinn frá vegi. Það koma því kostir og gallar með þessum bíl. G-Tec er með annars konar forþjöppu en sett er í grunn- gerð Octavia með 1,4 vélinni og aðrar breytingar og stilling- ar gera bílinn nokkru aflminni, en það verður að segjast að það kemur ekki mikið að sök, nema þegar flýta þarf sér óheyrilega og brjóta með því lögin, sem við gerum náttúrulega ekki. Stilling Bæði bensín- og metantankar og því tveir mælar. Beinskipting var með ljúfasta móti og með henni er þessi bíll einkar ódýr. Metantankarnir rúma 97 lítra af gnC. 1,4 l bensínvél, 110 hest- öfl framhjóladrif eyðsla 5,4 l/100 km í bl. akstri mengun 97 g/km CO2 hröðun 11,0 sek hámarkshraði 195 km/klst verð 3.390.000 kr. Umboð Hekla l Langdrægi l Rými l Verð l Ekkert varadekk l Lítið afl Skoda octavia G-tec ReynsluakstuR – skoda octavia G-tec Hræódýr stór fjölskyldubíll sem brennir metani og er ódýrasta gerð þessa bíls. Kostar aðeins frá 3.390.000 kr. Hefur akstursdrægni upp á 1.330 kílómetra og endalaust innanrými. Skoda Octavia G-Tec er enn ein útgáfa þessa vinsæla bíls. FRÉTTABLAÐIÐ/vILLHELM vélarinnar er þannig að erfitt og tímafrekt er að láta hana snú- ast hratt til að framkalla mikla hröðun, en í hóflegum akstri virkar hún frábærlega. rúmgóður og á einstöku verði Að innan sést ekki hvort ekið sé á hefðbundnum Octavia eða G-Tec, allt er eins og jafn ágæt- lega frágengið. Innrétting- in telst kannski ekki í lúxus- flokki, en stíll og frágangur í bæði Volkswagen og Skoda bílum er ávallt til fyrirmyndar. Hvað pláss varðar er þessi bíll eigin- lega í sérflokki, hann er svaka- lega rúmur og t.d. er fótarými afturí á við BMW 5-línuna. Hér er líka stór bíll á ferð þó verð- ið sé lágt og farangursrýmið er gríðarlega mikið. Því er hér á ferð heppilegur ferðabíll, jafn- vel fyrir stórar fjölskyldur, en samt fínn í borgarumferðinni. Hvað verð þessa bíls áhrærir þá er vart hægt að bera hann saman við aðra bíla af sömu stærð, hann er einfaldlega þeirra langódýr- astur. Flottur kostur hér á ferð. BílaR Fréttablaðið 10 2. febrúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K _ N Y N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 5 -E C A 4 1 8 5 5 -E B 6 8 1 8 5 5 -E A 2 C 1 8 5 5 -E 8 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.