Fréttablaðið - 02.02.2016, Qupperneq 28
Þ
að vakti forvitni
greinarritara að sjá
auglýstan svo stór-
an fjölskyldubíl sem
Skoda Octavia um
daginn á 3.390.000
og hundrað þús-
und krónum hærra fyrir lang-
baksgerð hans. Þetta er verð-
ið á nýrri gerð bílsins með staf-
ina G-Tec í endann. G-Tec þýðir
að hann brennir metangasi,
en einnig bensíni og í honum
er jafn stór bensíntankur og í
frumgerðinni, 50 lítrar en einn-
ig tveir metantankar sem rúma
97 lítra af GNC. Með þessum
miklu birgðum kemst þessi bíll
1.330 km í blönduðum akstri
og 1.600 km ef honum er ekið í
Eco-mode. Meira en hringinn í
kringum landið. Það sem skýr-
ir þetta lága verð bílsins er hve
umhverfisvænn hann er og fell-
ur hann því í lægsta vörugjalds-
flokk. En hvernig skildi þessi
bíll reynast í akstri?
Hljóðlát og ljúf fjölbrennsluvél
Í Skoda Octavia G-Tec er 1,4
lítra TSI bensínvél sem einn-
ig getur brennt metani og skil-
ar 110 hestöflum. Því er hann
ekki snarpur, en hann vinn-
ur samt ágætlega, sérstaklega
á ákveðnu snúningssviði sem,
sem betur fer, er fremur neðar-
lega og aflið því ágætt án þess
að komi til mikils snúnings vél-
arinnar. Þessi 1,4 lítra TSI vél
er í mörgum öðrum bílgerðum
Volkswag en bílafjölskyldunn-
ar og er þekkt fyrir ágæti sitt
og í þessum bíl er hún einkar
hljóðlát, reyndar svo að velta
þarf stundum fyrir sér hvort
bíllinn sé í gangi. Tvær gerð-
ir eldsneytis tanka þýðir tveir
eldsneytismælar, annar neðan
hraðamælisins og hinn neðan
snúningsmælisins. Í reynslu-
akstrinum var mest ekið á met-
ani, en þó einnig á bensíninu og
fannst ekki fyrir því hvoru hann
var að brenna. Hafa skal í huga
að það er ódýrara að aka á met-
ani en bensíni, svo hér er spari-
baukur á ferð, auk þess að vera
umhverfisvænn.
Ljúf fjöðrun en ekkert varadekk
Bíllinn er með hina ljúfustu
fjöðrun og mikla slaglengd og
þessi fjöðrun þarf að vera sterk-
ari en í grunngerð Octavia þar
sem bíllinn er nokkru þyngri
vegna aukatankanna og annars-
konar drifbúnaðar. Það virð-
ist þó ekki koma mikið niður á
aksturseiginleikunum. G-Tec er
með multi-link fjöðrun að aftan,
ólíkt grunngerðinni og það
bætir fjöðrunina. Annað sem
ekki er eins í grunngerðinni og
G-Tec er að það vantar alvöru
varadekk og viðgerðarsett í stað
þess. Vegna breyttrar fjöðrunar
bílsins er heldur ekki hægt að
hækka bílinn frá vegi. Það koma
því kostir og gallar með þessum
bíl. G-Tec er með annars konar
forþjöppu en sett er í grunn-
gerð Octavia með 1,4 vélinni
og aðrar breytingar og stilling-
ar gera bílinn nokkru aflminni,
en það verður að segjast að það
kemur ekki mikið að sök, nema
þegar flýta þarf sér óheyrilega
og brjóta með því lögin, sem við
gerum náttúrulega ekki. Stilling
Bæði
bensín- og metantankar
og því tveir mælar.
Beinskipting
var með ljúfasta móti og
með henni er þessi bíll
einkar ódýr.
Metantankarnir
rúma 97 lítra af gnC.
1,4 l bensínvél, 110 hest-
öfl framhjóladrif
eyðsla 5,4 l/100 km í bl. akstri
mengun 97 g/km CO2
hröðun 11,0 sek
hámarkshraði 195 km/klst
verð 3.390.000 kr.
Umboð Hekla
l Langdrægi
l Rými
l Verð
l Ekkert varadekk
l Lítið afl
Skoda octavia
G-tec
ReynsluakstuR – skoda octavia G-tec
Hræódýr stór fjölskyldubíll sem brennir metani og er ódýrasta gerð þessa bíls. Kostar aðeins frá
3.390.000 kr. Hefur akstursdrægni upp á 1.330 kílómetra og endalaust innanrými.
Skoda Octavia G-Tec er enn ein útgáfa þessa vinsæla bíls. FRÉTTABLAÐIÐ/vILLHELM
vélarinnar er þannig að erfitt og
tímafrekt er að láta hana snú-
ast hratt til að framkalla mikla
hröðun, en í hóflegum akstri
virkar hún frábærlega.
rúmgóður og á einstöku verði
Að innan sést ekki hvort ekið
sé á hefðbundnum Octavia eða
G-Tec, allt er eins og jafn ágæt-
lega frágengið. Innrétting-
in telst kannski ekki í lúxus-
flokki, en stíll og frágangur í
bæði Volkswagen og Skoda bílum
er ávallt til fyrirmyndar. Hvað
pláss varðar er þessi bíll eigin-
lega í sérflokki, hann er svaka-
lega rúmur og t.d. er fótarými
afturí á við BMW 5-línuna. Hér
er líka stór bíll á ferð þó verð-
ið sé lágt og farangursrýmið er
gríðarlega mikið. Því er hér á
ferð heppilegur ferðabíll, jafn-
vel fyrir stórar fjölskyldur, en
samt fínn í borgarumferðinni.
Hvað verð þessa bíls áhrærir þá
er vart hægt að bera hann saman
við aðra bíla af sömu stærð, hann
er einfaldlega þeirra langódýr-
astur. Flottur kostur hér á ferð.
BílaR
Fréttablaðið
10 2. febrúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR
0
1
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
_
N
Y
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
5
5
-E
C
A
4
1
8
5
5
-E
B
6
8
1
8
5
5
-E
A
2
C
1
8
5
5
-E
8
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K