Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 38

Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 38
þetta er þátttöku- verk sem gerir almenningi kleift að setja mark sitt á Hörpu um stund, það getur farið Hvernig sem er. Ég hvet sem flesta til að byrja hátíðina fyrir utan Hörpu á fimmtudaginn klukkan 19.30, á Sletti­reku sem er leikjaskotið ljósaverk,“ segir Karen María hjá Höfuðborgarstofu. Hún segir Slettireku þannig að hver og einn geti leikið sér að því að velja liti og form til að sletta á hjúp tón­ listarhússins ef þeir hlaði niður til­ tekinni vefsíðu. En ef allir gera það í einu, hvað þá? „Það er X­Faktorinn í verkinu, þetta er þátttökuverk sem gerir almenningi kleift að setja mark sitt á Hörpu um stund, það getur farið hvernig sem er,“ segir Karen María létt í bragði. „Strax í kjölfar þess við­ burðar byrjar snjóbrettabrun á Arnarhóli því búið verður að útbúa stökkpall úr snjó ofan úr Bláfjöllum. „Þangað má fólk koma með brettin sín og taka salíbunu, það verða plötu­ snúðar, ljós og fleira flott.“ Á Vetrarhátíðinni í ár er úr um 150 viðburðum að velja. Höfuðborgar­ stofa sér um utanumhald hennar en öll sveitarfélögin á höfuðborgar­ svæðinu eru með. Til dæmis taka hátt í 40 söfn á öllu svæðinu þátt í Safna­ nótt á föstudagskvöld milli klukkan 19 og miðnættis, að sögn Karenar Maríu. „Við erum að varpa ljósi á það magnaða starf sem söfnin standa fyrir og minna okkur á hversu fjölbreytt það er og mikilvægt okkar samfélagi, enda eru söfn oft í næsta nágrenni við heimili okkar. Það er fegurðin við Safnanótt. Ef fólk vill komast hratt á milli safna þá er Strætó með sérstakt leiðakerfi þetta kvöld sem gerir fólki kleift að komast frítt frá einu safni til annars.“ Á laugardagskvöld er Sundlauga­ nótt og taka níu laugar þátt í henni með ólíkri dagskrá, jóga, póló, kór­ gjörninga, gufubað og fleira, að sögn Karenar Maríu. Hún hvetur fólk til að prófa aðrar laugar en það fer í dags­ daglega, jafnvel í nágrannasveitar­ félaginu og hitta nýtt fólk í heita pottinum. „Að vera í sundlaug að vetri til úti í myrkrinu, oft með stjörnu­ bjartan himin og jafnvel norðurljós líka er óviðjafnanlegt,“ bendir hún á. „Ég get ekki geta lofað norðurljósum en er búin að dansa norðurljósadans síðustu daga til að reyna að kalla þau fram,“ segir hún hlæjandi. Í Bláfjöllum verður á sunnudaginn boðið upp á frían aðgang fyrir 15 ára og yngri. Þar verður tónlist og fleira til skemmtunar. „Allt viðburðir sem eru til þess gerðir að að njóta samveru með fjölskyldu og vinum.“ gun@frettabladid.is Er búin að dansa norðurljósadans síðustu daga „Við erum að varpa ljósi á það magnaða starf sem söfnin standa fyrir og minna okkur á hversu fjölbreytt það er og mikilvægt okkar samfélagi,“ segir Karen María. Fréttablaðið/Ernir TónlisT sinfóníutónleikar HHHH sinfóníuhljómsveit Íslands flutti verk eftir Rolf Wallin, Hauk Tómasson, Áskel Másson og Þórð Magnússon. Einleikarar: Melkorka ólafsdóttir og Víkingur Heiðar ólafsson. Tónleikarnir voru hluti af Myrkum músíkdögum. Stjórnandi: Daníel Bjarnason. Eldborg í Hörpu Fimmtudaginn 28. janúar. Áskell Másson átti fyrsta verkið á dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum á fimmtu­ dagskvöldið. Það bar nafnið Gullský. Titillinn er innblásinn af samnefndri ritgerð Einars Benediktssonar um svokölluð Glitský sem hann sá á ferð sinni um Melrakkasléttu. Í verki sínu leitast Áskell við að skapa tónræn ský á sífelldri hreyfingu. Tónmálið er hrátt og mikið um fíngerðar nótur á efsta sviði skalans. Gullský er einleikskonsert fyrir flautu og var Melkorka Ólafsdóttir einleikarinn. Flautuparturinn var annarsheimslegur, enn meira fyrir þær sakir að tónskáldið óf hörpu­ tóna inn í hann af mikilli list. Það var falleg framvinda í músíkinni og mörg sterk augnablik. Áhrifamikið var þegar stöðugur taktur byrjaði í sellóunum. Hann skapaði magnað drama. Í það heila var djúp ljóðræna yfir öllu verkinu sem var einstaklega hrífandi. Hljómsveitarstjórn Daníels Bjarnasonar var örugg, og einleikur Melkorku var vandaður. Hann var fullur af fagurlega mótuðum blæ­ brigðum sem hittu beint í mark. Annar einleikskonsert var frum­ fluttur á tónleikunum, píanókonsert eftir Þórð Magnússon. Konsertinn var hefðbundinn. Fyrsti kaflinn var í svokölluðu sónötuformi. Annar kafl­ inn var hægur en sá síðasti rondó, þ.e. hringdans þar sem sama stefið var endurtekið með reglulegu millibili. Tónmálið var í nýklassískum stíl þar sem skuggarnir af Ravel, Prokofiev og Stravinskí voru ekki langt undan. Atburðarrásin í tónlistinni var eðli­ leg og flæðandi. Mismunandi hlutar konsertsins samsvöruðu sér prýði­ lega við heildina. Óneitanlega var hann vel útsettur fyrir hljómsveitina. Ólíkir hljóðfærahópar fengu allir sín hlutverk og það var sterk heildar­ mynd á hljómsveitarröddinni. Píanórullan var líka glæsilega skrifuð, möguleikar hljóðfærisins voru ágætlega nýttir. Víkingur Heiðar Ólafsson lék á píanóið og gerði það af fagmennsku, ýmist grípandi snerpu eða hástemmdri mýkt. Eins og áður sagði brá fyrir skugg­ um af gengnum tónskáldum í kons­ ertinum. Þórður hefur greinilega sótt innblástur í smiðju gömlu meistar­ anna. Stundum brá fyrir frumleika, eins og t.d. í upphafinu að öðrum kaflanum, sem var áleitinn og fallega hrjúfur. En maður saknaði þess að heyra ekki meira í rödd Þórðar sjálfs. Hver er hún eiginlega? Konsertinn er frábært handverk, en maður vill eitt­ hvað meira á svona tónleikum. Tvær aðrar tónsmíðar voru leiknar á tónleikunum. Önnur var gamalt stykki eftir Hauk Tómasson, sem kom vel út. Hin var Act eftir Rolf Wallin, sérdeilis flott verk með svo djörfum tilþrifum og ofsafengnum hápunktum að maður leitaði ósjálf­ rátt eftir sætisólum til að spenna sig fastan. Jónas Sen niðuRsTaða: Tveir athyglisverðir einleikskonsertar voru frumfluttir á tónleikunum og einleikararnir fóru á kostum. Gullin ský og skuggar á Myrkum Víkingur Heiðar Ólafsson flutti píanókonsert eftir Þórð Magnússon. Fréttablaðið/GVa fjögurra daga vetrarhátíð verður haldin á höfuðborgar- svæðinu frá 4. til 7. febrúar. meginstoðir hennar eru safnanótt, sundlauganótt, snjófögnuður og ljósalist. karen maría jóns- dóttir, viðburðastjóri hjá Höfuðborgarstofu, segir okkur meira. Höfundakvöld í Norræna húsinu 2. Febrúar kl. 19:30 Veitingastaðurinn Aalto bistro selur veitingar fyrir viðburðinn og í hléi. Gaute Heivoll (1978) kemur fram á höfundakvöldi í Norræna húsinu 2. febrúar kl. 19:30. Hann er norskur rithöfundur sem gaf út sína fyrstu bók árið 2002. Heivoll skrifar jafnt skáldsögur, ljóð, smásögur og barnabækur. Árið 2011 kom út í íslenskri þýðingu verðlauna bók hans Meðan enn er glóð og vakti samstundis athygli, lesenda jafnt sem gagnrýnenda. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Sturlugata 5, 101 Reykjavík Tel: 5517030, www.nordichouse.is 5. apríl Susanna Alakoski (SE) 3. maí Mari Jungstedt & Ruben Eliassen (SE/NO) Höfundakvöld Norræna hússins 2016 2. febrúar Gaute Heivoll (NO) 1. mars Åsne Seierstad (NO) 2 . f E b R ú a R 2 0 1 6 Þ R i ð J u D a G u R20 M E n n i n G ∙ f R É T T a b l a ð i ð menning 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 5 -C F 0 4 1 8 5 5 -C D C 8 1 8 5 5 -C C 8 C 1 8 5 5 -C B 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.