Fréttablaðið - 04.11.2014, Side 36
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
16 4. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR
Sergio Marchionne, forstjóri Fiat-
samsteypunnar, jók við hluta-
bréfaeign sína í Fiat og keypti bréf
fyrir 406 milljónir króna. Hann
á nú hluti að virði 1,06 milljarða
króna í félaginu sem nemur 0,42
af heildarhlutabréfaeigninni. Í
ráðningarsamningi forstjórans eru
ákvæði um aukið eignarhald hans
og er það hluti af launasamningi
Marchionne. Með þessum kaupum
vill Marchionne sýna að áætl-
anir hans um mikla stækkun
fyrirtækisins á næstu árum séu
raunhæfar. Margir hafa efast um
þessi áform forstjórans og telja
þau óraunhæf. Þessi gerningur
hans sýnir þó að hann er sjálfur
sannfærður um hraðan vöxt Fiat
og fyrir það mun hann hagnast
eða blæða eftir genginu á næstu
árum. Gengi bréfa í Fiat stendur
nú í um 10 evrum á hlut, en kaup-
verðið á þessum nýju hlutbréfum
hans var mun lægra eða 7,7 evrur.
Það má því ýmislegt ganga á til
þess að þessi árfesting hans
beri ekki ávöxt. Fiat er eins og
kunnugt er eigandi bandaríska
bílaframleiðandans Chrysler og
ber starfsemi hans uppi hagnað
Fiat-samstæðunnar.
Forstjóri Fiat
eykur eigið
eignarhald
í Fiat
Næststærsti markaður fyrir Sprinter-sendibíla frá
Merc edes Benz er í Bandaríkjunum. Það er ef til
vill undarlegt í ljósi þess að þeir eru nú smíðaðir í
Þýskalandi en teknir að hluta til í sundur aftur og
settir saman í Ladson í S-Karólínuríki.
Þessi aðferð er æði kostnaðarsöm og því sér
Mercedes Benz tækifæri til að framleiða bílana
þar að fullu. Með því ættu bílarnir að lækka í
verði og verða enn samkeppnisfærari við banda-
ríska sendibíla sem þeir keppa við vestanhafs.
Nú eru Sprinter-sendibílar framleiddir á tveim-
ur stöðum í Þýskalandi og framleiðir verksmiðja
þeirra í Düsseldorf 150.000 bíla á ári og verk-
smiðjan í Ludwigsfelde framleiðir 50.000 bíla á
ári.
Á tímabili voru Mercedes Benz Sprinter-sendi-
bílar seldir undir merkjum Dodge, en það sam-
starf hefur nú runnið sitt skeið.
Mercedes Benz ætlar að smíða Sprinter-sendibíla í Bandaríkjunum
Í janúar á þessu ári tilkynnti Toyota
að fyrirtækið hefði framleitt sex
milljónasta Hybrid-bílinn, en slíkir
bílar kallast tvinnbílar hér á Ís-
landi. Nú hefur Toyota tilkynnt að
sjö milljónasti bíllinn hafi runnið
af færibandinu. Það tók því ekki
nema níu mánuði að bæta síðustu
milljón Hybrid-bílunum við. Þessar
tölur eiga bæði við Toyota- og
Lexus-bíla. Hafa 2,6 milljónir þeirra
verið seldar í Bandaríkjunum og
eru 1,74 milljónir þeirra af gerðinni
Toyota Prius.
Toyota Prius heiðurinn af 4,7
milljónum þessara 7 milljóna
hybrid-bíla á heimsvísu. Toyota hóf
framleiðslu hybrid-bíla árið 1997
með tilkomu Toyota Coaster EV
Hybrid, en hóf ekki sölu hybrid-bíla
utan heimalandsins fyrr en árið
2000. Toyota selur einar 27 gerðir
Toyota og Lexus hybrid-bíla, en
margar þeirra eru aðeins seldir
í Japan. Í Bandaríkjunum eru 12
gerðir hybrid-bíla í sölu.
Nýjasta gerð hybrid-bíla fram-
leiðandans er Lexus NX300h
sem nýverið var kynntur hér-
lendis. Toyota seldi 4 milljónasta
hybrid-bílinn í apríl árið 2012 og
náði fi mm milljóna bíla sölu ellefu
mánuðum síðar.
Toyota búið
að selja
7 milljónir
hybrid-bíla
Fiat 500
Mercedes
Benz
Sprinter-
sendibílar
af ýmsum
stærðum
Toyota Prius á heiðurinn af 67%
sölu allra hybrid-bíla Toyota.
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
Taktu Krók á leiðarenda
á þinni leið