Fréttablaðið - 18.11.2014, Síða 1

Fréttablaðið - 18.11.2014, Síða 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014 Þriðjudagur 12 Í þúsundir ára hafa frum-byggjar frá Mexíkó notað plöntukjarna til þess að lina og lækna verki og þjáningar. Sore No More er náttúrulegt og fljótvirkt verkjastillandi gel sem er án alkóhóls, kemískra íblöndunarefna, rotvarnar-efna og parabena. Sore No More hita- eða kæligel henta einstaklega vel til þess að lina líkamlega verki og eymsli. VERKURINN SNARMINNK-AÐI MEÐ SORE NO MOREÍna Jóhannsdóttir lenti í bílslysi árið 2010 og slasaðist á baki. „Í kjöl-farið hef ég fundið fyrir verkjum í baki sem eru til staðar oftar en ekki og inn-taka verkjalyfja hefur ekki gagnast mér neitt. Ég pruf-aði Sore No More-kulda-kremið núna í sumar og þetta krem hefur algjörlega bjargað mér. Á morgnana og eftir langan vinnudag er þetta krem hrein snilldV VIRKAR STRAX Á VERKI OG EYMSLIGENGUR VEL KYNNIR Sore No More, náttúrulegt og fljótvirkt verkjastillandi gel sem hentar einstaklega vel til þess að lina þráláta verki og eymsli. HEFUR REYNST MJÖG VEL Ína Jóhannsdóttir lenti í bílslysi árið 2010 og hefur síðan glímt við verki í baki. Eftir að hún fór að nota Sore No More-kælikremið hefur verkurinn snarminnkað. MYND/GVA HÚSRÁÐ VIÐ EYRNABÓLGUEyrnabólga er æði algeng bæði meðal ungbarna og fullorðinna. Gamalt húsráð sem hefur reynst mörgum vel er að skera niður venjulegan lauk, vefja honum í grisju og leggja við höfuðið á bak við eyrun. Fæst í apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS For Womengegn sveppasýkingu,bakteríusýkinguog þvagfærasýkingu Fæst í apótekum og heilsubúðum Góð melting styrkir ónæmiskerfiðStjórnaðu bakteríu-flórunni með OptiBac P R E N T U N .IS Nýtt námskeið hefst 26. október 1. nóvember FJÁRÖFLÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2014 Papco hefur í þrjátíu ár fram-leitt íslenskan hreinlætis-pappír fyrir íslensk heimili og fyrirtæki. Á þessum þremur ára- tugum hefur fyrirtækið lagt mikið upp úr vöruþróun og hefur að leið- arljósi að ná fram bestu gæðum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt,“ segir Halldór Steingrímsson, sölufulltrúi á styrktarsviði Papco, en hjá fyrirtækinu öllu starfa fjöru- tíu starfsmenn. Fjölbreytt fjáröflun Það er rammíslensk hefð að íþróttafélög, kórar og aðrir hópar selji klósettpappír til fjáröflun- ar og þar kemur Papco sterkt inn. „Við höfum reynt að hjálpa hópum að ná markmiðum sínum,“ segir Halldór en Papco býður upp á Ekki bara bestir á bossannPapco hefur áratuga reynslu af fjáröflunum og býður upp á fjölbreytt öruúrval. Allt frá salernis- og eldhúsrúllum til sniðugra heimilispakka, harðfisks, sælgætis og jólapappírs. Kynningarblað 2 SÉRBLÖÐ Fjáröflun | Fólk Sími: 512 5000 18. nóvember 2014 271. tölublað 14. árgangur MENNING Útlenski dreng- urinn er bráðskemmtileg og frumleg leiksýning. 18 SPORT Eygló Ósk með níu gull og sex Íslandsmet á ÍM í sundi um helgina. 22 EINFALT AÐ SKILA EÐA SKIPTA Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka SKOÐUN Katrín Jakobsdóttir segir hækkun á mat og menn- ingu illa ígrundaða. 12 LÍFIÐ Vill að Ísland verði markaðssett sem verslunar- land. 26 HEILBRIGÐISMÁL „Við teljum að það verði að vera tilgangur svona löggjafar að sjá til þess að ferlið gangi til enda eins og til er stofnað eins oft og mögulegt er en án þess þó að gefa afslátt af því að rétt- ur staðgöngumóðurinnar sé virt- ur og réttindi barnsins séu höfð að leiðar ljósi,“ segir Dögg Páls- dóttir, lögfræðingur og formað- ur starfshóps sem hefur útbúið frumvarp um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Í frumvarp- inu kemur fram að markmiðið sé að stuðla að vandaðri fram- kvæmd staðgöngumæðrunar í velgjörðar skyni, tryggja hag og réttindi barnsins, rétt, sjálfræði og velferð staðgöngumóðurinnar og farsæla aðkomu hinna væntan- legu foreldra. Bæði staðgöngumóðir og hinir væntanlegu foreldrar þurfa að uppfylla ströng skilyrði til að mega gangast undir ferlið. For- eldrarnir mega til að mynda ekki geta af læknisfræðilegum ástæðum eignast barn eða líf- fræðilegar ástæður útiloka með- göngu. Þannig er opnað fyrir að samkynhneigðir karlmenn geti nýtt sér úrræðið, en þingsálykt- unartillagan sem varð kveikjan að frumvarpinu gerði ráð fyrir að það yrði afmarkað við konur sem ekki gætu eignast börn. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins taldi hópurinn sig ekki geta farið að þeim vilja Alþingis í ljósi jafn- ræðisreglu stjórnarskrár. Staðgöngumæðrun í hagnaðar- skyni er óheimil en heimilt er að endurgreiða staðgöngumóðurinni útlagðan kostnað. Brot gegn lög- unum varða sektum að lágmarki 500 þúsund krónur eða fangelsi allt að þremur árum. Frumvarpið var kynnt í vel- ferðarnefnd í gær og fer í form- legt umsagnarferli í vikunni. Það verður samkvæmt upplýsingum úr heilbrigðisráðuneytinu lagt fram á þingi í janúar 2015. - fbj / sjá síðu 6 Samkynhneigðir karlar geti nýtt sér staðgöngumæðrun Tilbúið frumvarp um staðgöngumæðrun í velferðarskyni var kynnt í velferðarnefnd í gær. Ströng skilyrði fyrir bæði staðgöngumóður og verðandi foreldra. Samkynhneigðum karlmönnum er gert kleift að nýta úrræðið. ➜ Skylt er að skýra barni sem fætt hefur verið af stað- göngumóður frá því, jafnan eigi síðar en við sex ára aldur. Bolungarvík 6° SA 7 Akureyri 4° S 5 Egilsstaðir 3° S 4 Kirkjubæjarkl. 5° NA 5 Reykjavík 7° SA 8 Strekkingur S- og V-lands en hægari annars. Bjart N- og NA-til en væta S- og V-til. Hiti um frostmark inn til landsins NA-til en 4-9 stig S- og V-lands. 4 HEILBRIGÐISMÁL „Á þessu eina og hálfa ári hafa átta ungmenni sem höfðu glímt við vímuefnafíkn dáið. Hvort sem þau hafa látist á beinan eða óbeinan hátt út af neyslu þá eru þetta allt ungmenni sem hafa verið í neyslu,“ segir Sigurbjörg Sigurðardóttir, einn stofnenda samtakanna Olnboga- barna. Markmið Olnbogabarna er að styðja við aðstandendur barna í fíkniefnaneyslu og þrýsta á um lausnir við yfirvöld. „Það verður eitthvað að breyt- ast,“ segir Sigurbjörg sem kveð- ur forsvarsmenn Olnbogabarna hafa rætt við marga ráðamenn og mætt velvild víða en lítið vera um lausnir. Hugsanlega séu þó einhver ný úrræði í farvatninu. „Það þarf sértæk úrræði, fyrst og fremst þarf að einstaklings- miða úrræðin. Við eigum ekki að sníða einstaklinginn inn í kassann heldur þurfum við að sníða kassa utan um alla einstaklinga,“ segir Sigurbjörg. Erfitt sé að horfa upp á þann fjölda ungra fíkla sem láti lífið árlega. Aðstandendur rekist á veggi víða og erfitt sé að fá aðstoð við hæfi. Ástríður Rán Erlendsdóttir var eitt þeirra átta ungmenna sem lát- ist hafa undanfarið eitt og hálft ár. Hún var aðeins 22 ára þegar hún stytti sér aldur á Vogi eftir harða baráttu við vímuefnafíkn. Í viðtali við Fréttablaðið á dögunum lýsti móðir Ástríðar því hversu miklu máli skipti að úrræðin væru til staðar þegar fíklar væru móttæki- legir fyrir að nýta þau. „Nokkrum dögum seinna þegar pláss losnar er bara búið að redda sér meira og löngunin farin,“ sagði móðirin. - vh / sjá síðu 8 Meðlimur Olnbogabarna segir algjört úrræðaleysi ríkja vegna ungra fíkla: Átta látnir á einu og hálfu ári Það verður eitthvað að breytast. Sigurbjörg Sigurðar- dóttir, einn stofn- enda samtakanna Olnbogabarna 23 þrælar á Íslandi Samkvæmt nýrri skýrslu er talið að um 36 milljónum manna sé haldið sem þrælum. Þar af er áætlað að 23 þrælar séu í Íslandi. 10 Mætum veik í vinnuna Ungt fólk er líklegra til að mæta veikt í vinnuna en þeir sem eldri eru. Margir vinna heima í eigin veikindum eða veikindum barna sinna. 4 Evrópubúar í hryðjuverkum Svo virðist sem vígamennirnir í Íslamska ríkinu geri sér far um að sýna Evrópumenn á myndböndum, þar sem samtökin stæra sig af voðaverkum, í von um að vekja þá ímynd að IS séu orðin breið alþjóðahreyfing. 6 SIGURSTUND Seljaskóli bar sigur úr býtum í hæfi leikakeppni grunnskóla Reykjavíkur, Skrekk. Þetta er í annað sinn sem Seljaskóli vinnur keppnina en það gerðist einnig árið 2010. Hlíðaskóli hreppti annað sætið og sigurvegari síðasta árs, Langholtsskóli, endaði í þriðja sæti. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.