Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 2
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SVEITARSTJÓRNARMÁL „Þegar stærsta sveitarfélagið þarf að skerða þjón- ustu og auka álögur um tæpan millj- arð á ári þá er ljóst að svæðið allt, sem stendur verst allra, mun veikj- ast enn frekar. Þess vegna verður að grípa til ráðstafana,“ segir Odd- ný G. Harðardótt ir, þingmaður Sam- fylk ing ar innar og fyrsti flutn ings- maður þings álykt un ar til lögu um eflingu atvinnu og samfélags á Suð- urnesjum. Að tillögunni standa 10 þingmenn stjórnarandstöðunnar og leggja til að stofna starfshóp í krafti fimm ráðuneyta sem vinni tímasetta aðgerðaáætlun um hvernig efla megi atvinnulíf og samfélag á Suð- urnesjum. Oddný telur blasa við að vandi sveitarfélaganna á Suðurnesj- um, sérstaklega Reykjanesbæj- ar, kalli á viðbrögð frá ríkisvald- inu. „Það eru samverkandi þættir sem valda þessum vanda. Herinn fór og hrunið. Íbúafjölgunin var mikil fyrir hrun, og svo óskynsam- legar ákvarðanir í fjármálum, svo fátt eitt sé talið. Þegar þetta leggst saman verður þetta allt frekar dapurlegt,“ segir Oddný. Hún vill sjá aðgerðir í félagsmálum – sér- staklega málefnum barna. Styrkja þurfi mennta- og heilbrigðisstofnan- ir. Sértæk verkefni í atvinnumálum koma til greina, og ekki síst aðgerð- ir fyrir atvinnuleitendur og öryrkja. „Aðstoð vegna nauðsynlegra fram- kvæmda við Helguvíkurhöfn vegna kísilvers og færsla Landhelgisgæsl- unnar og innanlandsflugsins myndi t.d. styrkja svæðið mikið,“ segir Oddný en í greinargerð þingmann- anna tíu er tilefni tillögunnar rakið í löngu máli, sem setur fjárhags- stöðu Reykjanesbæjar og skuldaað- gerðirnar í samhengi við fjölþættan vanda sem sveitarfélögin hafa glímt við um árabil. Eins og komið hefur fram skuldar Reykjanesbær 40 milljarða króna og er skuldsettasta sveitarfélag lands- ins. Vegna þessa neyðast bæjaryfir- völd til að hrinda aðgerðaáætlun af stokkunum – sem nefnd hefur verið Sóknin. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri Reykjanesbæjar, hefur sagt í fjölmiðlum að bæjaryfirvöld horfi fram á að þurfa ganga í „alls konar erfiðar aðgerðir“. svavar@frettabladid.is Skuldir draga mátt úr veikum Suðurnesjum Tíu þingmenn stjórnarandstöðunnar vilja að ríkið grípi til aðgerða til að hjálpa Suðurnesjamönnum við að efla samfélagið. Fjárhagsstaða Reykjanesbæjar bætir gráu ofan á svart á því landsvæði þar sem vandi almennings er áberandi mestur. Í greinargerð tillögunnar er eftirfarandi rakið: ■ Íbúum fjölgaði um 34% árin 200-2009– mest í Reykjanesbæ. ■ Á Ásbrú, fyrrverandi varnarsvæði, fluttu margir námsmenn með litlar tekjur sem kalla á „þjónustu af hálfu sveitarfélagsins í öfugu hlutfalli við útsvarstekjur“. ■ Nauðungarsölum fer enn fjölgandi. ■ Atvinnuleysi hefur minnkað mikið en er enn mest á landsvísu. Prósentu- lækkun tengist að hluta því að bótatímabil var stytt. ■ Menntunarstigið á Suðurnesjum er hlutfallslega lægra en á öðrum svæðum landsins. ■ Fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna hefur aukist verulega undanfarin ár og margir íbúar glíma við slæmar afleiðingar langtímaatvinnuleysis. ■ Mörg börn búa við fátækt og hlutfallslega fleiri en á landinu í heild. ■ Bág fjárhagsstaða sveitarfélaga er líkleg til að bitna á þjónustu við börn – sérstaklega í Reykjanesbæ. ■ Suðurnesin skera sig úr varðandi fjölda öryrkja, eða 10% á aldrinum 16-66 ára. ■ Hlutfall heimila í vanskilum er hæst á Suðurnesjum eða 17% íbúa yfir 18 ára aldri. ■ 40% af eignum Íbúðalánasjóðs eru á Suðurnesjum– flestar standa auðar. ■ Á tímabilinu 2009 til 2013 hafa 329 fyrirtæki á Suðurnesjum orðið gjaldþrota. Vandi Suðurnesjamanna í hnotskurn REYKJANESBÆR Á Suðurnesjum búa um 22.000 manns í fimm sveitarfélögum, þar af 14.500 í Reykjanesbæ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJARAMÁL „Að okkar mati erum við ekki að sjá nógu mikinn skilning hjá ríkisvald- inu,“ segir Sigurveig Pétursdóttir, formað- ur samninganefndar Læknafélags Íslands. Ekkert bendir til þess að samningar náist á næstunni milli lækna og ríkisins. Verkfallslota lækna hófst aðfaranótt mánudags og stendur í fjóra daga. Aðeins verður farið í bráðaaðgerðir á spítalanum. Því safnast upp bið listi líkt og í hinum verk- fallslotunum. Nú standa yfir verkfallsað- gerðir lækna á kvenna- og barnasviði og lækna á rannsóknarsviði. Á sama tíma verða læknar á heilsugæslustöðvum og heilbrigðisstofnunum um landið í verkfalli. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítal- anum þurfti að fresta á þriðja tug aðgerða í gær og var þungt hljóð í starfsmönnum. Skurðlæknar mættu til vinnu en vegna þess að rannsóknarsvið lagði niður störf í gær var ekki hægt að sinna fjölda aðgerða á spítalanum. Fyrsti samningafundurinn síðan á mið- vikudaginn í síðustu viku á að vera klukk- an fjögur í dag. „Eins og staðan er núna er ekkert í kortunum að við fáum að sjá ný spil hjá ríkinu,“ segir Sigurveig. - sa Fyrsti samningafundurinn í læknadeilunni síðan á miðvikudaginn í síðustu viku verður í dag: Læknaformaður er ekki bjartsýnn á lausn LÖNG BIÐ Fresta þurfti á þriðja tug aðgerða í gær þrátt fyrir að skurðlæknar væru við störf. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN STJÓRNMÁL Mótmælendur komu saman á Austurvelli í gær og kröfðust afsagnar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Mótmælendur ítrekuðu jafnframt þá ósk sína að stjórnmálamenn hugsuðu um hagsmuni allra en ekki eingöngu fámennra sérhagsmuna- hópa. Enn aðrir létu í ljós óánægju með stöðuna í kjaramálum en ekki sér fyrir endann á verkföllum lækna og tónlistarkennara. Þetta var þriðji mótmælafundurinn sem Jæja-samtökin halda. - joe Þriðji mánudagsmótmælafundurinn á jafnmörgum vikum: Kröfðust afsagnar Hönnu Birnu MÓTMÆLENDUR Um átta hundruð manns mættu á Austurvöll og sýndu óánægju sína í verki. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SPURNING DAGSINS Komdu inn úr kuldanum www.n1.is facebook.com/enneinn Hluti af öruggri vetrarumferð Anna, ætlið þið að berja í brestina? „Já, við ætlum þetta böl að bæta.“ Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, segir borgina meira en tilbúna til að fara í samstarf við önnur sveitarfélög um átak gegn heimilisofbeldi. Þegar þetta leggst saman verður þetta allt frekar dapurlegt. Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suðurnesjum fann mikið magn fíkniefna við húsleit í íbúðar- húsnæði aðfaranótt sunnudags. Húsráðandi er grunaður um sölu fíkniefna. Á honum fundust þrír pokar af amfetamíni og í eldhús- skáp fannst hvítt efni sem talið er amfetamín. Einnig fundust vog, pokar og munir til fíkniefna- neyslu auk töluverðs magns af sveppum og sveppadufti, sterar og lyfseðilsskyld lyf. - vh Grunaður um fíkniefnasölu: Fundu mikið magn fíkniefna FRAMKVÆMDIR Enn er unnið að því að loka sprungunni sem dælir um 90 lítrum af heitu vatni á sekúndu inn í Vaðlaheiðargöng. Sprungan opnaðist í febrúar og nú er í þriðja sinn reynt að loka henni með efnaþéttingu. „Það er dælt mjög hægt, og fylgst með öllu berginu, en árang- urinn mun ekki sjást fyrr en um miðja þessa viku,“ segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf. - hg Þriðja tilraunin í göngunum: Reyna enn að loka fyrir vatnið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.