Fréttablaðið - 18.11.2014, Síða 4

Fréttablaðið - 18.11.2014, Síða 4
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 SVEITARSTJÓRNIR „Mér finnst alltaf skrýtið þegar stöður eru ekki aug- lýstar hvort sem þær eru tíma- bundnar eða ekki,“ segir Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjar- fulltrúi í Kópavogi. Líkt og Fréttablaðið greindi frá á föstudag lagði Karen fram fyrirspurn á bæjarráðsfundi í Kópavogi vegna ráðningar Guð- rúnar Ágústu Guðmundsdóttur sem hefur verið ráðin tímabund- ið til eins árs í starf verkefna- stjóra stefnumótunar hjá Strætó bs. Karen finnst það orka tvímæl- is að staðan hafi ekki verið aug- lýst sem og að Guðrún Ágústa hafi haft greiðari aðgang að stöðunni þar sem hún er fyrrverandi for- maður stjórnar Strætó bs. Karen segir að siðareglur bæjar stjórnar Kópavogs hefðu komið í veg fyrir að hún hefði getað tekið að sér þessa stöðu, vegna þess að hún er í bæjarstjórn og fyrrverandi formaður stjórnar félagsins. Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar sé hins vegar með aðrar siðareglur. Hún efast hins vegar ekki endilega um hæfni Guðrúnar. Strætó bs. er byggðasamlag sem er rekið af sveitarfélögun- um Reykjavík, Kópavogi, Hafnar- firði, Garðabæ, Mosfellsbæ og Sel- tjarnarnesi. Þeir stjórnarmeðlimir Strætó bs. sem Fréttablaðið náði sambandi við höfðu ekki kynnt sér málið en fyrirspurn Karenar er beint til stjórnarinnar. Ekki náðist í Reyni Jónsson, framkvæmdastjóra Strætó bs., við vinnslu fréttarinnar. -vh Bæjarfulltrúi spyr um ráðningu fyrrverandi stjórnarformanns Strætó bs. í starf innan fyrirtækisins: Telur Strætó hafa átt að auglýsa stöðuna SVÍÞJÓÐ Sænska kirkjan á að halda áfram að slá gras á leiðum án þess að taka greiðslu fyrir. Þetta er mat biskupsins Thomas Söderberg í Västerås-stifti í Sví- þjóð. Söfnuðir sem farnir eru að taka greiðslu fyrir umhirðu leiða vísa í lög og kröfu sérstaks umboðsmanns. Biskupnum finnst ósanngjarnt að gamlar ekkjur taki með sér sláttuvélar í kirkjugarðinn. Kröf- urnar leiði til þess að eingöngu þeir ríku hafi efni á að láta hirða um leiði ættingja sinna. - ibs Biskup mótmælir gjaldtöku: Greiða á fyrir slátt á leiðum STRÆTÓ BS. Stjórnarmenn fyrirtækis- ins höfðu ekki kynnt sér málið þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ATVINNUMÁL Nærri sex af hverj- um tíu undir þrjátíu og fimm ára aldri hafa mætt veikir í vinnu síð- astliðna 12 mánuði. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýrri kjara- könnun Bandalags háskólamanna (BHM). Þar kemur jafnframt fram að hátt hlutfall aðspurðra, upp undir 80 prósent, hafi annaðhvort mætt í vinnu eða unnið heima, hvort held- ur er í eigin veikindum eða veikind- um barns. „Einhverra hluta vegna er mjög sterk fylgni við aldur,“ segir Guðlaug Kristjánsdóttir, en hún kynnir niðurstöðurnar á morg- unverðarfundi BHM um veik- indavinnu í dag. Hún segir hins vegar óvíst af hverju líklegra sé að þeir sem yngri eru vinni frem- ur í veikindum. Mögulega gæti verið um að ræða hærri tíðni veikinda, mismunandi skilgreiningar á því að vera veikur og svo gæti hærri tíðni líka tengst veikindum barna í meira mæli en hjá eldri hópum. Í greiningu á niðurstöðunum kemur hins vegar fram að í sjö ald- ursflokkum af níu eru konur lík- legri til að mæta veikar til vinnu en karlar. Í raun er það bara undir þrítugu þar sem karlar mæta frem- ur veikir (59 prósent á móti 53 pró- sentum kvenna) og á aldursbilinu 50 til 54 ára (41 prósent á móti 37 prósentum). Í öðrum aldursflokkum upp að sextugu eru konur að jafnaði umtalsvert líklegri til að mæta veik- ar. Guðlaug segir samanburð á milli landa dálítið erfiðan því uppbygg- ing vinnumarkaðar kunni að vera ólík eftir löndum. Tölur um mæt- ingu á vinnustað í veikindum virð- ist þó ekki langt frá því sem gerist að jafnaði í Evrópusambandslönd- unum. Þar sé jafnaðartalan um 40 prósent, en er 44,3 prósent í könn- un BHM. „Svo er þetta allt upp í 80 prósent á Norðurlöndunum og það er í rauninni þessi tala sem við fáum þegar horft er á sveigjanlegu vinn- una, að vinna heiman frá sér.“ Að auki segir Guðlaug svo fleiri þætti geta spilað inn í. Til dæmis benti Jónína Waagfjörð, deildarstjóri hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði, á það á fundi BHM, að dæmi væru um að fyrirtæki greiddu háa bónusa til þeirra sem væru til dæmis undir sex veikindadögum á ári. „Þarna er kominn ákveðinn hvati, því þeir sem fara yfir þessa tölu fá ekkert.“ Í kjarakönnun BHM koma svo fram fleiri áhugaverðir hlutir, að mati Guðlaugar. Þannig megi sjá að þeir sem mæti veikir til vinnu séu að jafnaði óánægðari í starfi en þeir sem ekki geri það. Þá kemur fram að þessi hópur sé að jafn- aði óánægðari með laun sín. Um leið kemur fram að þeir sem hafa mannaforráð og þeir sem bera fjár- hagslega ábyrgð í vinnu sinni mæti fremur veikir til vinnu. olikr@frettabladid.is GUÐLAUG KRIST- JÁNSDÓTTIR HJÁ LÆKNINUM Þetta fólk beið nýverið eftir því að fá að hitta lækni á Læknavakt-inni á Smáratorgi í Kópavogi. Könnun BHM leiðir í ljós að yngra fólk er líklegra til að harka af sér veikindi í vinnu en þeir sem eldri eru. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Upp undir 80 prósent hafa stundað vinnu í veikindum Ungt fólk er líklegra til þess að mæta veikt í vinnuna en þeir sem eldri eru, að því er sjá má í kjarakönnun BHM. Margir vinna heima í eigin veikindum og/eða veikindum barna sinna. Fáir mæta þó til vinnu með veikt barn. Aldur Hlutfall Undir 35 ára 59% 35-39 ára 49% 40-44 ára 48% 45-49 ára 42% 50-59 ára 38% 60 ára og eldri 30% Heimild: Kjarakönnun BHM Hef mætt veik(ur) Vinnan og veikindi síðustu 12 mánuði Hef mætt með veikt barn í vinnuna. Hef hvorki veikst né átt veikt barn. Hef unnið heima með veikt barn. Hef unnið veik(ur) heima. Hef veikst eða átt veikt barn án þess að mæta í vinnu eða vinna heima. Hef mætt veik(ur) til vinnu. 500 400 300 200 100 0 44,3% 43,9% 39,8% 26,9% 17,0% 2,4% Heimild: Kjarakönnun BHM BRETLAND Enska biskupakirkjan ákvað í gær að leyfa konum að verða biskupar. Tuttugu ár eru síðan konur innan kirkjunnar fengu leyfi til að verða prestar. Ákvörðunin var tekin á kirkjuþingi í London, þar sem þingfulltrúar greiddu atkvæði með handauppréttingu. Í sumar hafði kirkjuþingið samþykkt áform um að konur yrðu biskupar, en atkvæða- greiðslan í gær snerist um formlega afgreiðslu reglna um þetta. Árum saman var hart deilt innan kirkjunnar um málið. - gb Biskupakirkjan kúvendir: Konum leyft að verða biskupar VIÐBRÖGÐIN Konur á kirkjuþinginu bregðast við eftir að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var orðin ljós. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 97.000 tonn var heildarafli íslenskra fiskiskipa í október. Það er 10,4 prósenta aukning frá sama mánuði í fyrra. Þó er aflinn á síðustu 12 mánuðum um fimmtungi minni en tólf mán- uðina þar á undan. AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ ht.is UMBOÐSMENN UM LAND ALLT AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK Engin venjuleg upplifun Við kynnum Philips Ambilight 9000 sjónvörpin Ultra HD með Android Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá BJART N- OG NA-TIL næstu daga en væta S- og V-lands. Milt S- og V-lands miðað við árstíma, hiti 4-9 stig yfir daginn en svalara fyrir norðan. Strekkingur S- og V-til, bætir í vind á fimmtudag og enn fremur á föstudag. 6° 7 m/s 6° 10 m/s 7° 8 m/s 8° 7 m/s 5-13 m/s, hvassast V-til. 5-15 m/s, hvassast V-til. Gildistími korta er um hádegi 8° 20° 4° 11° 17° 6° 8° 9° 9° 26° 12° 20° 20° 21° 13° 8° 9° 9° 5° 5 m/s 6° 3 m/s 3° 4 m/s 1° 3 m/s 4° 5 m/s 4° 7 m/s 1° 7 m/s 8° 7° 5° 6° 6° 6° 3° 3° 5° 2° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur FIMMTUDAGUR Á MORGUN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.