Fréttablaðið - 18.11.2014, Side 6
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvar er stærsta veggmynd Reykja-
víkur?
2. Hvaða hafa mörg börn alkóhólista
nýtt sér sálfræðiþjónustu SÁÁ sem
sett var á laggirnar 2008?
3. Hver er íslenska leikkonan sem
leikur með syni sínum í Wiesbaden í
Þýskalandi?
SVÖR:
1. Á húsgafl i Borgarbókasafnsins. 2. 800.
3. Sólveig Arnarsdóttir.
Pantanir þurfa að berast fyrir
kl. 15:00 daginn áður
Nú bjóðum við
okkar frábæru pítur
sem jólarétti fyrir öll stór og
smá tilefni. Mini píturnar eru
afgreiddar á mjög hentugum bökkum sem
innihalda pítur með hamborgarahrygg,
kalkúni/beikoni, reyktum laxi og villipate.
Skipholti 50 C
Pöntunarsími:
562 9090
Ny
r og s
kemm
tilegu
r
jólak
ostur
www.pitan.is
12 mini pítur i i ít r
3.995.-
HELSTU ATRIÐI FRUMVARPS TIL LAGA UM STAÐGÖNGUMÆÐRUN Í VELGJÖRÐARSKYNI
þarf að vera á aldrinum 25-39 ára
þarf að eiga að baki fæðingu minnst eins barns
þarf að hafa andlega og líkamlega burði og full-
nægjandi heilsu til að takast á við staðgöngu-
mæðrun
liðin séu að lágmarki tvö ár frá síðustu fæðingu
skulu vera á aldrinum 25-45 ára
mega ekki eiga barn undir tveggja ára aldri
geta ekki eignast barn af læknis- eða líff ræðilegum orsökum
Skylt er að nota kynfrumu frá a.m.k. öðru væntanlegra for-
eldra eft ir því sem við á. Eingöngu heimilt að nota gjafa-
frumu við ákveðnar aðstæður.
Áður en leyfi til staðgöngumæðrunar í velgjörðarskyni er
veitt skulu umsækjendur ganga frá gagnkvæmri viljayfi rlýs-
ingu.
Foreldrar barns sem fætt er af staðgöngumóður er skylt að
skýra barni sínu frá því þegar það hefur þroska til, eigi síðar
en þegar það nær sex ára aldri.
Heimilt er að endurgreiða staðgöngumóður
útlagðan kostnað hennar vegna glasafrjóvgunar,
meðgöngu og fæðingar barnsins; nauðsynleg lyf,
heilbrigðisþjónustu, ferðakostnaður, fatnaður,
líkamsrækt eða stuðningsbúnaður sem dæmi.
GREIÐSLUR
Óheimilt er að bjóða,
inna af hendi eða taka
við peningagreiðslum
eða annarri umbun í
tengslum við stað-
göngumæðrun.
Brot gegn lögunum
varðar sektum að lág-
marki 500.000 krónur
eða fangelsi allt að
þremur árum.
BANNAÐ REFSINGAR
KOSTNAÐUR
STAÐGÖNGUMÓÐIR VÆNTANLEGIR FORELDRAR
ÝMIS SKILYRÐI
AUGLÝSINGAR
Auglýsingar
vegna stað-
göngumæðrun-
ar eru óheimilar.
MILLIGANGA
Óheimilt er að
hafa milligöngu
um staðgöngu-
mæðrun.
UTAN ÍSLANDS
Óheimilt er að
leita eft ir eða
nýta sér stað-
göngumæðrun í
útlöndum.
HEILBRIGÐISMÁL Starfshópur sem
gert var að útbúa frumvarp um
staðgöngumæðrun í velferðar-
skyni hefur skilað af sér drög-
um. Frumvarpið fer í formlegt
umsagnarferli í vikunni. „Við telj-
um að það verði að vera tilgang-
ur svona löggjafar að sjá til þess
að ferlið gangi til enda eins og til
er stofnað eins oft og mögulegt er
en án þess þó að gefa afslátt af því
að réttur staðgöngumóðurinnar
sé virtur og réttindi barnsins séu
höfð að leiðarljósi,“ segir Dögg
Pálsdóttir lögfræðingur og for-
maður starfshópsins.
Í frumvarpinu kemur fram að
markmiðið sé að stuðla að vand-
aðri framkvæmd staðgöngumæðr-
unar í velgjörðarskyni, tryggja
hag og réttindi barnsins, rétt,
sjálfræði og velferð staðgöngu-
móðurinnar og farsæla aðkomu
hinna væntanlegu foreldra.
Staðgöngumóðir þarf að upp-
fylla ákveðin skilyrði. Hún þarf
að vera á aldrinum 25 til 39 ára,
eiga að baki minnst eina fæðingu
barns og hafa andlega og líkam-
lega burði til að takast á við stað-
göngumæðrun. Hinir væntanlegu
foreldrar verða að vera á aldrin-
um 25 til 45 ára og mega ekki eiga
barn undir tveggja ára aldri. Það
skilyrði er sett að þau geti ekki af
læknisfræðilegum ástæðum eign-
ast barn eða líffræðilegar ástæður
útiloki meðgöngu. Þannig er opnað
fyrir að samkynhneigðir karlmenn
geti nýtt sér úrræðið, en þings-
ályktunartillagan sem varð kveikj-
an að frumvarpinu afmarkaði það
við konur sem ekki gætu eignast
börn. Hópurinn taldi sig ekki geta
farið að þeim vilja Alþingis í ljósi
jafnræðisreglu stjórnarskrár.
Fleiri skilyrði eru sett í frum-
varpinu. Þar á meðal að skylt sé
að nota kynfrumu frá að minnsta
kosti öðru foreldrinu eftir því sem
við á. Ef einhleypur einstaklingur
vill nýta sér úrræðið verður hann
því að geta notað eigin kynfrumu.
Staðgöngumóðirin mun fara með
forsjá barnsins þar til yfirfærsla á
foreldrastöðu fer fram samkvæmt
barnalögum.
Staðgöngumæðrun í hagnaðar-
skyni er óheimil. Þannig er óheim-
ilt að bjóða, inna af hendi eða taka
við peningagreiðslum eða ann-
arri umbun í tengslum við stað-
göngumæðrun. Auglýsingar eru
óheimilar sem og milliganga um
staðgöngumæðrun. Þá er einnig
bannað að leita eftir eða nýta sér
staðgöngumæðrun í útlöndum sem
uppfyllir ekki skilyrði laganna.
Heimilt er samkvæmt frumvarp-
inu að endurgreiða staðgöngumóð-
urinni útlagðan kostnað sem er í
beinum tengslum við glasafrjóvg-
un, meðgöngu og fæðingu barns-
ins. Brot gegn lögunum varða sekt-
um að lágmarki 500 þúsund krónur
eða fangelsi allt að þremur árum.
Frumvarpið var kynnt í vel-
ferðarnefnd í gær en búist er við
að það verði lagt fram á þingi í
janúar 2015.
Björt Ólafsdóttir, þingmaður
Bjartrar framtíðar og varafor-
maður velferðarnefndar, hyggst
ekki greiða atkvæði með frum-
varpinu. „Þetta lítur út fyrir að
vera vel unnið en ég er bara ekki
sammála grundvallarforsendum
þarna. Við höfum aldrei rætt eða
svarað spurningunni: Eru það
sjálfsögð mannréttindi að fá að
eignast börn? Hér er hoppað yfir
þá umræðu og þetta er bara leitt í
lög,“ segir Björt. fanney@frettabladid.is
Staðgöngumæðrun
leyfð með skilyrðum
Frumvarp um staðgöngumæðrun í velferðarskyni er tilbúið. Skaðaminnkandi
frumvarp sem svarar ekki öllum spurningum en snertir helstu álitaefni sem geta
komið upp. Samkynhneigðum karlmönnum er gert kleift að nýta sér úrræðið.
BJÖRT
ÓLAFSDÓTTIR
DÖGG
PÁLSDÓTTIR
TÍMAMÓTAFRUMVARP Búist er við að frumvarpið verði lagt fram í janúar 2015.
FRAKKLAND, AP Maxime Hauch-
ard, 22 ára gamall Frakki, er
meðal vígamanna Íslamska rík-
isins sem sjást á myndbandi þar
sem sýnt er frá morðum á banda-
rískum hjálparstarfsmanni og
sýrlenskum hermönnum.
Þetta staðfesti Francois Mol-
ins, saksóknari í Frakklandi. Að
minnsta kosti þrír ungir Evr-
ópubúar sjást á myndbandinu,
sem hryðjuverkasamtökin nota í
áróðursskyni. Ahmed Muthana,
sem býr í Wales, segist telja sig
hafa séð tvítugan son sinn í þessu
sama myndbandi.
Auk Hauchards er talið að
annar ungur Frakki sé í hópnum,
þótt ekki hafi það fengist staðfest.
Svo virðist sem vígamennirn-
ir geri sér far um að sýna Evr-
ópumenn á myndböndum, þar
sem þau stæra sig af voðaverk-
um sínum, í von um að vekja þá
ímynd að samtökin séu orðin
breið alþjóðahreyfing.
Ráðamenn í Evrópuríkjum eru
farnir að bregðast við þessum
áróðri: „Þetta eru glæpamenn
sem eru að byggja upp kerfi
villimennsku,“ segir Bernard
Cazeneuve, innanríkisráðherra
Frakklands. - gb
Ungir Evrópumenn sjást í ofbeldismyndbandi hryðjuverkamanna í Sýrlandi:
Ofbeldi beitt í áróðursskyni
MAXIME HAUCHARD Saksóknari í
Frakklandi hefur nafngreint Frakkann
unga. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Þetta eru glæpamenn
sem eru að byggja upp
kerfi villimennsku.
Bernard Cazeneuve,
innanríkisráðherra Frakklands
Save the Children á Íslandi
VEISTU SVARIÐ?