Fréttablaðið - 18.11.2014, Qupperneq 8
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Hún segir erfitt að horfa upp á
þann fjölda ungra fíkla sem láti
lífið árlega. Aðstandendur rekist á
veggi víða og erfitt sé að fá aðstoð
við hæfi. „Þessi átta sem við vitum
af eru flest undir 25 ára aldri.“
Nýlega héldu samtökin ásamt
Geðhjálp málþing þar sem þessi
mál voru rædd. Samtökin halda
áfram að vekja athygli á úrræða-
leysinu og standa fyrir opnum
fundi 26. nóvember næstkomandi
í Setrinu, Hamraborg 9.
„Þar ætlum við að ræða hvaða
breytingar við viljum sjá og hverj-
ar séu árangursríkustu leiðirnar
til þess. Við ætlum áfram að halda
málefninu á lofti til að sýna hvað
þörfin er brýn,“ segir Sigurbjörg
Sigurðardóttir.
viktoria@frettabladid.is
HÖNNUN FYRIR LÍFIÐ ÞÝSKÍSLENSKSAMVINNA
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
HEILBRIGÐISMÁL „Á þessu eina og
hálfa ári hafa átta ungmenni sem
höfðu glímt við vímuefnafíkn dáið.
Hvort sem þau hafa látist á beinan
eða óbeinan hátt út af neyslu þá eru
þetta allt ungmenni sem hafa verið
í neyslu,“ segir
Sigurbjörg Sig-
urðardóttir, einn
stofnenda félaga-
samtakanna Oln-
bogabarna. Sam-
tökin hafa verið
starfrækt í um
eitt og hálft ár
en þeim er ætlað
að styðja við
aðstandendur barna í fíkniefna-
neyslu sem og að þrýsta á yfirvöld
um betri og fjölbreyttari úrræði
fyrir unga fíkla.
Sigurbjörg segir að á þeim tíma
sem samtökin hafi verið starfrækt
hafi þau barist hart fyrir auknum
úrræðum. Forsvarsmenn þeirra
hafi rætt við marga ráðamenn og
mætt velvild víða. Hins vegar sé
lítið um lausnir þó að hugsanlega
séu einhver ný úrræði í farvatninu.
„Það verður eitthvað að breyt-
ast. Þegar úrræðum fækkar þá
versnar ástandið. Það þarf sértæk
úrræði, fyrst og fremst þarf að ein-
staklingsmiða úrræðin. Við eigum
ekki að sníða einstaklinginn inn í
kassann heldur þurfum við að sníða
kassa utan um alla einstaklinga,“
segir Sigurbjörg.
Átta ungir fíklar hafa
látið lífið á rúmu ári
Úrræðaleysi er sagt ríkja í málefnum ungra fíkla. Einn stofnenda samtakanna Oln-
bogabarna segir vanta sértæk úrræði sem séu miðuð að hverjum og einum fíkli.
Ástríður Rán Erlendsdóttir var eitt þeirra átta ungmenna sem
látist hafa undanfarið eitt og hálft ár. Hún var aðeins 22 ára þegar
hún stytti sér aldur á Vogi eftir harða baráttu við vímuefnafíkn
sem staðið hafði með hléum frá unglingsárum. Móðir og amma
Ástríðar, Helena Rós Sigmarsdóttir og Ástríður Grímsdóttir, sögðu
sögu hennar í Fréttablaðinu í september og töluðu þar meðal
annars um það úrræðaleysi sem mætti Ástríði og aðstandendum hennar. Þær
lýstu því hvernig það strandaði oft á úrræðum þegar hún var tilbúin til þess
að fara á beinu brautina, því þá var biðin oft löng eftir að komast í úrræði.
„Það skiptir svo miklu að ná inn á þessum tíma þegar fíkillinn er á þessum
stað, nokkrum dögum seinna þegar pláss losnar þá er bara búið að redda
sér meira og löngunin farin,“ sagði móðir hennar meðal annars um baráttu
Ástríðar í viðtalinu.
22 ára þegar hún lést
SIGURBJÖRG
SIGURÐARDÓTTIR
ÁTTA Á EINU ÁRI Algjört úrræðaleysi
er sagt ríkja í málefnum ungra fíkla.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MOSFELLSBÆR Hjón á heilsubótar-
göngu gengu fram á kjötafganga í
friðlandinu við Varmárósa í Mos-
fellsbæ. Ekki er vitað hver kom
úrganginum fyrir í fjörunni.
„Við maðurinn minn vorum á
göngu og tókum eftir óvenjumörg-
um fuglum á svæðinu. Er við könn-
uðum málið nánar þá kom það í
ljós að einhver hafði skilið bein og
lambakjötsafganga eftir á víða-
vangi,“ segir Ursula Jünemann sem
gerði heilbrigðis- og umhverfisfull-
trúa Mosfellsbæjar viðvart og voru
hræin fjarlægð hið snarasta. „Þessu
hefur verið komið fyrir þarna yfir
nótt því við gengum þarna daginn
áður og þá var ekkert að sjá.“ - joe
Hjón gengu fram á lambakjöt við Varmárósa:
Fann afganga í fjöru
HRÆIN Þessi frágangur þykir ekki til
fyrirmyndar. MYND/URSULA JUNEMANN