Fréttablaðið - 18.11.2014, Page 12

Fréttablaðið - 18.11.2014, Page 12
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Tveggja flokka ríkisstjórn Af skoðanakönnun Fréttablaðsins sem birt var í gær sést, væru niður- stöður hennar úrslit kosninga, að aðeins einn möguleiki er á tveggja flokka ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkur með 23 þingmenn og Samfylkingin með tólf þingmenn gætu myndað tveggja flokka stjórn. Aðrir möguleikar eru ekki. Annað er að fjórflokkarnir eru samtals með minna en áttatíu prósenta fylgi. Píratar og Björt framtíð fengju saman nokkuð yfir tuttugu prósenta fylgi. Mestar breytingar frá kosningum eru sem fyrr á fylgi Framsóknarflokksins þrátt fyrir kipp upp á við frá síðustu könnun. Framsókn er nú með rétt um helming þess fylgis sem flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Ögmundur og skuldaleiðréttingin Ögmundur Jónasson fer mörgum orðum um hvers vegna hann styður skuldaleiðréttingar ríkisstjórnarinnar á heimasíðunni sinni, ogmundur.is. „Frá því við tókum upp verðtryggingu hefur almenna reglan verið sú að fjár- magnseigendur hafa búið við varnir en lántakendur ekki. Tekjur þeirra hafa sveiflast til en verðtryggingin og breytilegir vextir hafa búið til beltið og axlaböndin fyrir lánveitendur. Þá hef ég og alla tíð bent á hættuna af því að færa verðmæti frá heimilum og framleiðslu yfir til fjármagns- ins með háum vöxtum og óeðlilegri arðtöku.“ Svona skrifar Ögmundur og lýsir yfir stuðningi við hina umdeildu aðgerð ríkis- stjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Sannarlega ógeðslegt þjóðfélag Pétur Gunnarsson, sem lengi var blaðamaður á Mogganum, undir rit- stjórn Styrmis Gunnarssonar, skrifar þetta meðal annars um njósnir fyrrum ritstjóra síns: „Um leið var þetta starfsnám hans sem ritstjóra og viðtakanda hlutverksins sem Eykon var upphaflega í. Þetta var svona McCarthy-ismi nema McCarthy dó aldrei á Íslandi, hér var haldið áfram að búa til skrímsli og pönkast á fólki vegna dylgja um tengsl sem engin voru. Með því að trúa svo eigin lygum um fólk sóttu McCarthyistarnir sér svo réttlætingar fyrir þessari starfsemi. Sannarlega ógeðslegt, þetta þjóðfélag, eins og Styrmir benti á, af öðru tilefni fyrir einungis fáum árum.“ sme@frettabladid.is A fmælisdagur Jónasar Hallgrímssonar var haldinn hátíðlegur á sunnudaginn sem dagur íslenskrar tungu eins og undanfarin ár. Tungumálið var að sjálfsögðu í brennidepli og veitt voru ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir framúrskarandi notkun þess í ræðu og riti. Aðalverðlaunin, Verðlaun Jónasar Hall- grímssonar, hlaut skáldkonan Steinunn Sigurðardóttir, enda einn okkar frjóasti rithöfundur í beitingu og nýsköpun tungu- málsins. Ýmis önnur verðlaun voru veitt, meðal annars til hóps af börnum og unglingum sem þóttu hafa sýnt að þau hefðu góð tök á móðurmálinu. Allt saman gott og gleðilegt og öllum aðstandendum til sóma. En hvað svo? Er það nóg til viðhalds og auðgunar tungu- málsins að tileinka því einn dag á ári og verðlauna þá bestu í „bekknum“? Er það ekki dálítið eins og þegar yfirlýstir trúleysingjar fagna fæðingu frelsar- ans á jólunum? Mikið hefur verið rætt og ritað um hrakandi lestrarkunn- áttu (læsi er hræðilegt orð) unglinga og gripið hefur verið til alls kyns aðgerða til að reyna að sporna gegn þeirri þróun. Allt hefur það þó verið frekar eins og að klóra í bakkann en að freista þess að byggja mannhelda göngubrú yfir lækinn. Það hlýtur að liggja í augum uppi að besta vörnin gegn því að börn missi tökin á móðurmálinu er að efla móðurmálskennslu, ekki að efna til lestrarsamkeppna (hvers vegna þarf alltaf allt að vera samkeppni?), rappkeppna, upplestrarkeppna og svo fram- vegis. Þótt það sé allt saman ágætt fyrir sinn hatt þá ræðst það ekki að rót vandans. Hún liggur mun dýpra. Sú bábilja að hefðbundin íslenskukennsla sé of leiðinleg til að vekja áhuga barnanna og allt þurfi að vera svo óskaplega hresst og skemmtilegt til að þau hrífist með hefur fyrir löngu gengið sér til húðar. Börn eru ekki heilalaus og framboðið af skemmtiefni er miklu meira en nóg þótt móðurmálsfor- kólfar fari ekki að elta það villuljós í blindni í tilraun til að vera hipp og kúl, eins og sagt er á góðri íslensku. Allt tuð um páfagaukalærdóm og leiðindin sem honum séu samfara er líka úr sér gengið þar sem ýmsar nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á að utanbókarlærdómur er einhver besta heilaleik- fimi sem völ er á og beinlínis nauðsynlegur til að efla minnið. Málfræði er kannski leiðinleg út frá einhverjum gleðipinna- sjónarhóli, en hvernig í ósköpunum á sá sem ekki lærir undir- stöðuatriði í málfræði að ná almennilegum tökum á tungumáli eða geta „lesið sér til gagns“ eins og það heitir? Það er ótrúleg bjartsýni, eða kannski bara skammsýni, að ætla að hoppa yfir þann hluta móðurmálsnámsins á þeim forsendum að hann sé ekki nógu skemmtilegur. Verður ekki alltaf að byrja á því að steypa grunninn ef byggingin á að standa? Hættum að reyna að vera svona óskaplega skemmtileg í uppfræðslunni og beinum sjónum að þeim grunnþáttum sem nauðsynlegir eru. Lifi leiðindin og lestrarkunnáttan. Er einn dagur íslenskrar tungu á ári nóg? Hættum að vera svona hipp og kúl Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Hækkun virðisaukaskatts á matvæli, bækur og tónlist hefur verið til umræðu allt frá því í haust þegar ríkisstjórnin lagði fram fjárlagafrumvarp og tekju- öflunarfrumvörp. Ríkisstjórnin vill hækka virðisaukaskattinn úr sjö pró- sentum í tólf á þessar vörur undir því yfirskini að slík breyting sé liður í að einfalda virðisaukaskattkerfið og á móti kemur lækkun á efra þrepi um eitt og hálft prósent. Vinstri-græn munu gera sitt til að beita sér gegn hækkuninni enda ekki í þágu almennings í landinu. Vandséð er hvernig þessar breyting- ar leiða til einföldunar á kerfinu; tvö þrep eru áfram tvö þrep. Þær munu hins vegar hafa áhrif á líf almennings. Sú röksemd stjórnarflokkanna að lækkun á sjónvörpum og ísskápum muni vega upp á móti hækkun á matvælaverði dugir skammt því að allir þurfa að neyta mat- væla á hverjum degi meðan þær vörur sem lækka í verði eru þess eðlis að þær þarf einungis að kaupa örsjaldan á lífs- leiðinni. Þá er ljóst að þær mótvægisað- gerðir sem hafa verið kynntar koma alls ekki til móts við alla þá sem verða fyrir áhrifum af þessum hækkunum. Við umfjöllun Alþingis um málið hefur komið fram að lækkanir sem til dæmis hafa orsakast af gengissveiflum hafa sjaldnast skilað sér til fulls inn í verð- lag en hækkanir skila sér hins vegar mun betur. Engin ástæða er til að ætla að annað gildi um skattabreytingar á borð við þessar. Ef ríkisstjórnin stendur við fyrirætlan sína stefnir því í að skatta- hækkunin skili sér að fullu í hærra verði á bókum, tónlist og matarkörfu almennings í landinu. Annars vegar er um að ræða nauðsynja- vörur sem allir þurfa á að halda daglega og hins vegar afurðir sem skipta miklu fyrir menningarstefnu þjóðarinnar, sam- félagið og tunguna. Í þessum tillögum birtist forgangsröðun sem ég trúi ekki að nein sátt sé um. Hún skerðir kjör almenn- ings og getur reynst stórskaðleg menning- arstarfi í landinu sem hefur einmitt borið hróður okkar svo víða og var það sem við hölluðum okkur að þegar efnahagskerfið hrundi og Íslendingar þurftu að rifja upp hvað það er sem skapar samfélagið okkar. Illa ígrunduð hækkun á mat og menningu FJÁRMÁL Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna kaffivélar fyrir heimili og vinnustaði Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.