Fréttablaðið - 18.11.2014, Side 16
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
GÓÐUR
ÁRANGUR
„Aðsóknin hefur
verið góð. Um 76
mál hafa verið
tekin fyrir á þessu
rúma ári en hver
og einn kemur að
meðaltali tíu sinn-
um í samtalsmeð-
ferð.“
Þessi þjónusta er að bandarískri fyr-irmynd en margir stærri háskólar í Bandaríkjunum eru með svona há-
skólaklíník þar sem útskriftarnemendur
í sálfræði fá starfsþjálfun,“ segir Gunnar
Hrafn Birgisson, doktor í sálfræði og for-
stöðumaður Sálfræðiráðgjafar háskóla-
nema. Ráðgjöfin tók til starfa haustið
2013 en það hafði lengi verið draumur
innan sálfræðideildar Háskóla Íslands að
koma henni á koppinn. „Sérstaklega hjá
þeim sálfræðingum sem lærðu í Banda-
ríkjunum og hafa kynnst þessu,“ segir
Gunnar sem hlaut sjálfur viðlíka þjálfun
meðan hann var í námi.
FYRIR NEMENDUR OG BÖRN ÞEIRRA
Hjá Sálfræðiráðgjöfinni geta nemendur
Háskóla Íslands leitað eftir sálfræðiþjón-
ustu fyrir sig og börn sín. Þjónustan felst
í greiningu á sálrænum vandamálum
sem veitt er með skammtímasálfræði-
meðferð.
Það eru cand.psych.-nemar við sál-
fræðideild sem veita þjónustuna undir
handleiðslu löggiltra sálfræðinga. Ráð-
gjöfin hefur tvíþætt markmið. Annars
vegar að þjálfa framhaldsnema í sálfræði
í að sinna klínískum störfum og hins veg-
ar að veita háskólanemum og börnum
þeirra sálfræðiþjónustu.
Gunnar segir góða reynslu af starfinu
sem um tuttugu útskriftarnemar sinna.
„Aðsóknin hefur verið góð. Um 76 mál
hafa verið tekin fyrir á þessu rúma ári en
hver og einn kemur að meðaltali tíu sinn-
um í samtalsmeðferð.“ Að sögn Gunnars
eru algengustu vandamálin sem háskóla-
nemar glíma við almennt þunglyndi,
kvíði, aðlögunarerfiðleikar, fullkomnun-
arárátta, frestunarárátta, prófkvíði og
samskiptavandi.
Þjónustan er einnig í boði fyrir börn
háskólanema en helmingur útskriftar-
nemanna sérhæfir sig í greiningu og
meðferð barna. „Algengustu vandamálin
hjá börnum eru kvíði, hegðunarerfiðleik-
ar og ýmis tilfinningavandamál,“ útskýrir
Gunnar og telur árangurinn góðan.
„Við leggjum spurningalista fyrir í
upphafi meðferðar og einnig síðar í
ferlinu og sjáum því hver árangurinn af
meðferðinni er. Svo lætur fólk það sjálft í
ljós að það sé sátt,“ segir hann. Ánægjan
með starfið er augljós enda er biðlisti
eftir þjónustunni.
Ánægjan er ekki síður mikil meðal sál-
fræðinemanna. „Þeir eru mjög spenntir
fyrir þessu og finnst áhugavert að fá að
vinna líkt og gert er á stofum úti í bæ.“
VÆGT GJALD
Sálfræðiráðgjöfin fær skjólstæðinga
í gegnum tilvísanir, meðal annars frá
Náms- og starfsráðgjöf háskólans,
Heilsutorgi skólans, og frá Þroska- og
hegðunarstöð fyrir börn. Einnig geta
nemendur háskólans hringt beint í síma
ráðgjafarinnar, 856-2526, hlustað á sím-
svara og skilið eftir viðeigandi skilaboð
í talhólfi.
Sálfræðiþjónustan er veitt gegn vægu
gjaldi eða 1.500 kr. fyrir hvert viðtal sem
miðast við 50 mínútur. Frekari upplýsing-
ar um Sálfræðiráðgjöf háskólanema er
að finna á heimasíðu sálfræðideildar HÍ.
■ solveig@365.is
SÁLFRÆÐINEMAR
VEITA RÁÐGJÖF
ÁHUGAVERÐ ÞJÓNUSTA Hjá Sálfræðiráðgjöf háskólanema geta nemendur
Háskóla Íslands leitað eftir sálfræðiþjónustu fyrir sig og börn sín. Ráðgjöfin
veitir útskriftarnemum í sálfræði einnig verðmæta starfsþjálfun.
DOKTOR
Gunnar Hrafn Birgisson,
doktor í sálfræði, er for-
stöðumaður Sálfræði-
ráðgjafar háskólanema.
Hann segir góðan árang-
ur af starfinu.
MYND/GVA
MEÐFERÐ Útskriftarnemar í sálfræði við Háskóla Íslands bjóða nemendum skólans og börnum þeirra upp á sálfræðimeðferð.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fæst í öllum apótekum – Hagkaup – Fjarðarkaup
– Heimkaup – Heilsuver – Heilsulausn.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t
ok
tó
be
r–
de
se
m
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU