Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 18
FÓLK|HEILSA FÆST VÍÐA Swanson: Ulti mate 16 Strain Probiotic fæst í: Góðri heilsu Njálsgötu 1 , Heilsuhúsinu, Heilsuveri, Lifandi markaði, Blómavali og í völdum apótekum. Tæmandi listi er á swanson.is. Kevin Tipton, prófessor og forstöðumaður íþrótta-, heilsu- og þjálfunarnáms við háskólann í Stirling í Skot- landi, heldur fyrirlestur í Há- skólanum í Reykjavík á morgun um næringu í kjölfar íþrótta- meiðsla. Meiðsli eru óæskilegur hluti íþróttaiðkunar en því miður verða margir þeirra sem stunda íþróttir eða líkamsrækt reglulega fyrir meiðslum af einhverju tagi. Að minnka þau áhrif sem meiðsli hafa og flýta bata skiptir íþrótta- fólk miklu máli. „Næring er mjög mikilvægur þáttur í því að ná bata af meiðslum. Viðeigandi næring gerir íþróttafólki kleift að snúa aftur til æfinga eins fljótt og auðið er,“ segir Kevin. „Næring er vanmetinn þáttur í bataferlinu en hún gæti einmitt leikið stórt hlutverk í því að ná bata sem fyrst, svo ekki sé minnst á endur- hæfingu og að ná fullum bata áður en byrjað er að æfa af krafti á ný,“ segir Kevin og telur að það fyrsta sem íþróttafólk sem meiðist ætti að hugsa um varð- andi mataræði sé að sleppa ekki neinu úr venjubundnu fæði. Skerðing á hreyfigetu útlima getur haft djúpstæð áhrif og með- al annars leitt til minni styrks og virkni líkamans. Þá skiptir næring höfuðmáli til að byggja líkamann upp aftur. „Þegar meiðsli hafa í för með sér skerðingu á hreyfi- getu ætti íþróttamaðurinn að vera eins virkur og hann getur. Í sumum tilfellum gæti þurft að minnka kal oríuinntöku en hve mikil minnkunin á að vera veltur á virkni einstaklingsins og er breytilegt í gegnum bataferlið. Það er ólíklegt að mjög mikil skerðing á kaloríuinntöku sé nauðsynleg og of lítil inntaka getur beinlínis skaðað bataferlið. Ef mögulegt er ætti viðkomandi að láta mæla brennsluna hjá sér og finna út hve mörgum kaloríum hann eyðir. Hann ætti svo að neyta matar sem inniheldur álíka margar kaloríur og hann eyðir,“ útskýrir Kevin. Hann bætir við að gott sé að leggja áherslu á að borða próteinríkt fæði, að magurt kjöt, fiskur, mjólkurvörur og baunir séu mikilvægur hluti mataræðisins. Kevin bendir á að mælt sé með ýmsum bætiefnum og næringar- efnum fyrir íþróttafólk sem á við meiðsli að stríða. „Þrátt fyrir það eru þessar ráðleggingar ekkert endilega studdar af rannsóknum. Íþróttamenn sem eiga í meiðslum eiga að einbeita sér að því að borða fjölbreytt fæði úr öllum fæðuflokkum. Fæðan ætti að vera eins lítið unnin og mögulegt er. Íþróttafólkið ætti jafnframt að forðast að drekka áfengi og að taka fæðubótarefni og önnur lyf sem ekki er ávísað af lækni.“ Kevin Tipton hefur kennt í HR frá árinu 2011 í námskeiðinu Endurheimt og næring í íþróttum sem er kennt á mastersstigi. Fyrirlesturinn á morgun er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Hann verður í stofu V102 klukkan tólf á hádegi. NÆRING HEFUR ÁHRIF Á BATANN FYRIRLESTUR „Næring er mjög mikilvægur þáttur í því að ná bata af meiðslum,“ segir Kevin Tipton prófessor en hann heldur fyrir- lestur um næringu í kjölfar íþróttameiðsla í Háskólanum í Reykjavík á morgun. KEVIN TIPTON er forstöðumaður íþróttasviðs Stirling-háskóla í Skotlandi. Hann er einnig aðstoðarritstjóri vísindaritsins Applied Physiology, Nutrition and Metabolism. Hann heldur fyrirlestur hér á landi á morgun. Við erum afar spennt að kynna þessa flottu vöru frá Swanson sem heitir Ultimate 16 Strain Pro biotic,“ segir Ólafur Stefánsson hjá versluninni Góðri heilsu á Njálsgötu. „Þetta er frábær blanda af gerlum sem hjálpa til við að jafna meltinguna,“ segir hann og bendir á að í hverju hylki séu sextán mismunandi tegundir af gerlum. „Þar á meðal eru klassísku AB-gerlarnir en að auki fjöldinn allur af gerlum sem meðal annars draga úr ristilkrömpum og vindverkjum, hjálpa meltingunni að vinna úr mjólkurvörum og aðstoða við að koma í veg fyrir niðurgang.“ HÁMARKSVIRKNI Í Ultimate 16 Strain Probiotic er sérvalin steinefnablanda. „Hún hjálpar ensímum í meltingarveginum að brjóta niður fæðuna á skilvirkari máta þannig að næringin nýtist mun betur,“ segir Ólafur og áréttar að mjög erfitt hafi ver- ið að nálgast slíka blöndu á Íslandi hingað til. „Viðbrögðin hjá viðskiptavinum okkar eru mjög jákvæð. Ég hef sjálfur notað Probiotic 16 og það er eina Probiotic-blandan sem ég hef fundið mun á mér eftir að hafa notað.“ Hylkin í Probiotic 16 eru sýruvarin og sérhönnuð úr plöntu- trefjum. „Þetta verður til þess að þau opnast á réttum stað í melt- ingunni sem hámarkar virkni innihaldsins,“ lýs- ir Ólafur. Hann bendir á að Ultimate 16 Strain Probiotic sé sérstaklega góð vara fyrir fólk sem er á, eða hefur nýlokið við, sýklalyfjameðferð. „Blandan hjálpar líkam- anum að koma upp forða af góðum gerlum sem sýklalyfin skaða.“ SÖLUHÆSTA VARAN Viðtökurnar hafa verið afar góðar og var Ulti- mate 16 Strain Probiotic ÓDÝRT EN VIRKAR VEL GÓÐ HEILSA KYNNIR Swanson: Ultimate 16 Strain Probiotic er frábær blanda af gerlum sem hjálpa til við að jafna meltinguna. Swanson býður upp á margar tegundir af meltingargerlum. Probiotic 16 var söluhæsta vara Swanson árið 2013 á heimsvísu og er auk þess á afar hagstæðu verði. MÆLIR MEÐ „Viðbrögðin hjá viðskiptavinum okkar eru mjög jákvæð. Ég hef sjálfur notað Pro biotic 16 og það er eina Probiotic-blandan sem ég hef fundið mun á mér eftir að hafa notað,“ segir Ólafur Stefánsson. MYND/GVA söluhæsta vara Swanson á heimsvísu árið 2013. „Nú í byrjun árs 2014 var einum gerli bætt við og sölumetin halda áfram að falla,“ segir Ólafur. Ekki skaðar að tveggja mánaða skammtur kostar innan við helming af því sem aðrar sambærilegar vörur kosta. „Þetta frábæra verð fæst með afar skilvirkri framleiðslu hjá Swanson og einföldu dreifingar- neti,“ útskýrir hann. Swanson býður upp á margar tegundir af melt- ingargerlum. Sem dæmi má nefna ódýrt Probiotic 4 með fjórum tegundum, tuggutöflur fyrir börn og geril til að berjast við candida. „Allt kemur þetta í sýruvörðum hylkjum,“ segir Ólafur. Undir merkjum Swanson er einnig seldur fjöldi annarra vara á borð við víta mín og bætiefni. ● BETRI BORG Borgarráð hefur einróma sam- þykkt aðgerðir gegn heimilis- ofbeldi. Samþykktin felur í sér átak gegn heimilisofbeldi þar sem leitað verður eftir sam- starfi við önnur sveitarfélög, lögreglustjórann á höfuðborg- arsvæðinu, Lögregluskólann og grasrótar- og stuðningssamtök til að bæta þekkingarmiðlun og verklag í heimilisofbeldis- málum. Mannréttindaskrifstofa, vel- ferðarsvið og Barnavernd Reykjavíkur lögðu grunn að verkefninu, m.a. með því að funda með flestum sem að málaflokknum koma og má þar nefna lögreglu, Kvennaathvarf, Stígamót og Freyju Haralds- dóttur og Emblu Ágústsdóttur en þær vinna að Evrópurann- sókn um ofbeldi gegn fötluðu fólki. Þverfaglegur stýrihópur mun leiða þetta verkefni auk þess sem verkefnastjóri verður ráðinn til að halda utan um verkefnið. BORGIN GEGN HEIMILISOFBELDI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.