Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGFjáröflun ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 20144 JÓLASMÁKÖKUR MEÐ BLÁBERJUM OG HVÍTU SÚKKULAÐI Margir vinna mikið fyrir jólin og hafa lítinn tíma fyrir bakstur. Hvernig væri að útbúa góðar smákökur og selja í fjáröflun? Hér er frábær uppskrift að smá- kökum með bláberjum og hvítu súkkulaði. Það má breyta þessari uppskrift og nota þurrkuð trönu- ber, apríkósur eða hnetur. Einnig má nota venjulegt súkkulaði í staðinn fyrir hvítt. Það sem þarf: 225 g smjör 100 g sykur 100 g púðursykur 70 g síróp 2 egg 300 g hveiti ½ tsk. lyftiduft ¼ tsk. matarsódi 130 g bláber, þurrkuð 100 g hvítt súkkulaði Hrærið saman sykur, síróp og mjúkt smjör. Bætið eggjunum saman við einu í einu. Setjið öll þurrefni í skál og hrærið saman saman við eggjablönduna. Þá er smátt skornu súkkulaði og bláberjum bætt saman við. Kælið deigið í klukkustund. Búið til 1 cm þykkar kökur og leggið á bökunarpappír á bök- unarplötu. Bakið við 180°C í 15 mínútur. GEFUR VEL Í AÐRA HÖND Í kringum stórhátíðar eins og jól og áramót er tilvalið að fara á stúfana og safna flöskum og dósum enda sjaldan jafn mikið af þeim í geymslum landsmanna og eftir hátíðarnar. Nokkuð er um að bekkir sem safna fyrir skólaferðalögum nýti sér þetta en þá er ráð að láta börnin skipta með sér hverfum og götum. Best er að þau beri út miða í sínar götur nokkru fyrir hátíðarnar. Þar skal tekið fram að dósasöfnun standi til og í hvaða tilgangi verið er að safna. Á miðanum ætti einnig að tiltaka hvaða dag söfnunin fari fram og á hvaða tímabili megi eiga von á að barið verði að dyrum. Þannig ætti fólk að vera viðbúið og þeir sem vilja gefa geta þá haldið dósunum til haga og jafn- vel verið búnir að taka þær til á tilsettum tíma. Marmelaði úr klementínum Marmelaði er eitthvað sem allir vilja eiga í ís- skápnum. Hvernig væri að útbúa marmelaði úr klementínum? Það er svolítið jólalegt og upplagt til að selja á basar eða til fjáröflunar. 1 kg klementínur 6 dl vatn 1 sítróna 1,5 kg sykur 12 vanillustangir 1 kanilstöng Þvoið klementínurnar og sítrónu mjög vel, skerið fyrst til helminga en síðan í þunnar sneiðar. Takið steina úr og setjið þá í poka úr bleiugasi. Þeir þykkja sultuna. Setjið klementínur og vatn í þykkbotna pott og sjóðið undir loki í eina klukkustund. Hafið pokann með steinunum í pottinum. Bætið þá sykri saman við, vanillustöng- um, sem hafa verið klofnar í tvennt og kan el- stönginni. Sjóðið áfram í klukkustund, hrærið oft og fjarlægið froðu. Látið malla þar til marmelaðið er orðið nægi- lega þykkt. Takið stangirnar og steinana frá. Setjið í sultukrukkur og skreytið með falleg- um borða.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.