Fréttablaðið - 18.11.2014, Síða 32
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 20
BAKÞANKAR
Erlu Bjargar
Gunnarsdóttur
Helgarblað Fréttablaðsins fjallaði um kvíðnar konur þar sem fram kom að
kröfur frá samfélaginu, sem og þeim sjálf-
um, fullkomnunarárátta, samanburður og
niðurrif í kjölfarið eru meðal orsaka kvíð-
ans. Ég kannast alveg við þetta og minn
veiki punktur er eldamennska. Fyrir
svona tíu árum þegar eðlilegt fólk keypti
1944, Betty Crocker og djúpfrystan mat
vafðist þetta ekkert fyrir mér. En fljót-
lega eftir hrun, þegar allir fóru að búa til
barnamat frá grunni (en þetta er til
í krukkum úti í búð!), rækta krydd-
jurtir og hægelda alls konar, þá bug-
aðist ég svolítið.
ÞRÁTT fyrir að eiga ekki hálfan
séns og vera fullkomlega áhuga-
og getulaus hefur mér samt
fundist ég þurfa að standa í
þessu. Það var síðan við matar-
borðið í síðustu viku eftir að
ég hafði eytt dýrmætum tíma
bölvandi yfir pottunum sem ég
áttaði mig á vitleysunni. Tvö
elstu börnin borðuðu óeðlilega
hægt og færðu matinn til og frá á
diskinum. Það var undarleg þögn
við borðið. Nærri því rafmögnuð. Það var
þó ekki fyrr en litla dýrið, sem er greini-
lega ekki orðið nógu meðvirkt, sagði: „Ojjj,
mamma. Þetta er ógeðslegur matur. Ég vil
ab-mjólk og músli,“ sem hin horfðu á mig
stórum augum og óskuðu þess heitast í ver-
öldinni að fá eitthvað beint úr fernu, kassa
eða dollu í kvöldmatinn.
ÉG safnaði diskunum saman, dauðfegin
að þurfa ekki að borða þetta sjálf og útbjó
dýrindis kvöldmatarbröns. Alveg úr öllum
fæðuflokkum, sko. Það létti aldeilis yfir
börnunum og þau bentu mér fallega á að
þau fá heitan mat í skólanum á hverjum
degi. Óþarfi að eyða tíma í eldamennsku,
mamma. Þú gerir líka svo góð skyr-búst
og brauð í ofni. Og ávaxtasalat. Spagettí
kannski. Mér fannst þau reyndar ganga
fulllangt þegar þau stungu upp á að hafa
pítsu á aðfangadagskvöld. En það er komið
á hreint: ENGINN á heimilinu gerir kröfu
um heitan kvöldmat. Og skítt með samfé-
lagið. Ég er hætt keppni.
NÆST á dagskrá er að henda hálfprjónuðu
peysunni sem ég mun aldrei klára. (Djók.
Hef ekki einu sinni fitjað upp.)
Kvöldmatarkvíði
Fönkgoðsögnin George Clinton
úr hljómsveitunum Parliament
og Funkadelic segir í nýlegu við-
tali við tímaritið Rolling Stone að
hann hafi hætt
að reykja krakk
fyrir fimm
árum en að hann
hafi samt verið
virkur í tónlist-
inni á meðan.
„Það er það sem
kom mér í vand-
ræði! Ég var svo afkastamikill að
mér fannst ekkert að. En það var
víðs fjarri sannleikanum, af því
að hugmyndin með því að komast
í vímu er að komast í annarlegt
ástand. Og þegar maður er í ann-
arlegu ástandi gerir maður annar-
lega hluti!“
Clinton segir jafnframt að LSD
hafi hjálpað Funkadelic með tón-
listarsköpun á sínum tíma. „Það
gerði mig jákvæðari og hjálpaði
okkur við að prófa nýja hluti sem
við hefðum aldrei prófað annars,“
segir Clinton. - þij
Clinton búinn
að róa sig
GEORGE CLINTON
5:40, 8, 10:20
8, 10:30
10:10
5:50, 8
5:50
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
MISSIÐ EKKI AF “FEELGOOD” MYND ÁRSINS!
DUMB AND DUMBER KL 5.30 - 8 - 10.30
ST. VINCENT KL. 5.30 - 8 - 10.20
NIGHTCRAWLER KL. 8 - 10.25
GRAFIR OG BEIN KL. 5.50 - 8
BORGRÍKI KL. 5.45 - 10.10
DUMB AND DUMBER KL.5.30 - 8 - 10.20
DUMB AND DUMBER LÚXUS KL 5.30 - 8
INTERSTELLAR KL 5.30 - 8
INTERSTELLAR LÚXUS KL. 10.25
GRAFIR OG BEIN KL. 5.45 - 8
FURY KL 8 - 10.50
BORGRÍKI KL 5.45
GONE GIRL KL.10.10
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL. 3.30
SMÁHEIMAR ÍSL TAL 2D KL. 3.30
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
MISSIÐ EKKI AF “FEELGOOD” MYND ÁRSINS!
EMPIRE NEW YORK POST
T.V. SÉÐ & HEYRT TIME OUT LONDON
H.J. FRÉTTATÍMINN
Save the Children á Íslandi
Tími verðlaunahátíðanna hafi nn
Hollywood Film Awards-hátíðin var haldin síðastliðinn föstudag, og má segja að með henni hafi verðlauna-
hátíðatíminn byrjað. Hátíðin hefur verið haldin síðan 1997, en var í fyrsta sinn sjónvarpað á föstudag.
Meðal helstu verðlaunahafa voru kvikmyndin Gone Girl, leikarinn Benedict Cumberbatch hlaut verðlaun
fyrir framúrskarandi leik og leikkonan Julianne Moore fékk sams konar verðlaun.
ALLTAF FLOTT
Leikkonan
Julianne Moore
hlaut Holly-
wood Actress
Award fyrir Still
Alice.
MYNDARLEGIR Leik-
arinn og fyrirsætan
Eddie Redmayne og
Óskarsverðlaunahafinn
Jared Leto, sem mætti
í áberandi hvítum
skóm.
ÓBRJÓTANLEG
Leikkonan dame
Angelina Jolie ásamt
meðleikara sínum í
myndinni unbroken,
Jack O’Connell.
GLÆSILEGUR
Benedict Cum-
berbatch með
verðlaun sín fyrir
leik í myndinni
The Imitation
Game.
FLOTTIR
NAFNAR
Leikararnir
Robert
Downey Jr. og
Robert Duvall,
en sá síðar-
nefndi fékk
verðlaun fyrir
aukahlutverk í
The Jugde.
BESTA AUKALEIKKONA
Keira Knightley fékk
verðlaun fyrir myndina
The imitation Game.