Fréttablaðið - 18.11.2014, Page 33

Fréttablaðið - 18.11.2014, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 18. nóvember 2014 | MENNING | 21 „Mig hefði aldrei grunað að það kæmi jafn mikið af góðum uppi- stöndurum úr tilraunauppistönd- unum,“ segir Rökkvi Vésteinsson, sem hefur rekið Comedy klúbb- inn á Bar 11 í eitt ár. Þar hefur hann haldið tilraunauppistönd einu sinni í mánuði. Eftir áramót ætlar hann að bæta við öðru kvöldi í mánuði þar sem borga þarf aðgangseyri til að sjá þá sem eru „útskrifaðir“ úr tilraunauppistandinu. „Sumir eru orðnir of góðir til að vera í engu öðru en tilrauna- uppistöndum. Þeir þurfa að fara á næsta stig til að sanna sig,“ segir hann. Á meðal þeirra eru Sig- urður Anton, Marlon Pollock og Bylgja Babýlons. „Þau hafa verið að sýna virkilega góða hluti.“ Rökkvi segir að Comedy klúbb- urinn hafi fengið mjög góðar undirtekir og nánast alltaf hafi verið fullt hús. „Þegar maður opnaði klúbbinn vantaði þetta inn í bransann, stað þar sem þú þarft ekkert endilega að þekkja rétta manninn til að komast inn. Þetta er opið öllum og fólk kemur sem hefur alltaf langað að prófa en ekki haft nein tækifæri fyrr.“ - fb „Útskrifaðir“ uppistandarar stíga á svið Ný uppistandskvöld verða haldin í Comedy klúbbnum á Bar 11 á næsta ári. Klúbburinn er orðinn eins árs. UPPISTANDARAR Rökkvi (í miðjunni) ásamt Bylgju Babýlons og Sigurði Antoni. MYND/LIFANDI MYND Sumir eru orðnir of góðir til að vera í engu öðru en tilraunauppistöndum. Skoðaðu úrvalið á NOTADIR.BRIMBORG.IS Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Notaðir bílar - Brimborg 400.000 KR. FERÐAFJÖR FINNDU BÍLINN ÞINN Á NOTADIR.BRIMBORG.IS *Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 1. nóvember 2014 til og með 22. desember 2014 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi verður svo dreginn út 23. desember 2014 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla. Kauptu notaðan bíl af Brimborg og þú átt möguleika á að vinna * GJAFABRÉF FRÁ WOWair NOTAÐIR BÍLAR Vertu með! Hvert myndir þú fara? Í MIKLU ÚRVALI Tilboð: 3.160.000 kr. Ford Kuga Titanium S RVZ65 Skráður apríl 2012, 2,0TDCi dísil, beinskiptur Ekinn 81.000 km. Ásett verð: 3.590.000 kr. Tilboð: 2.950.000 kr. Ford Focus Trend Edition ORK29 Skráður nóv. 2013, 1,0i bensín, beinskiptur Ekinn 16.000 km. Ásett verð: 3.090.000 kr. Tilboð: 940.000 kr. Toyota Avensis Sol DP114 Skráður júní 2006, 1,8i bensín, beinskiptur Ekinn 134.000 km. Ásett verð: 1.090.000 kr. Þó að framleiðendur Frozen hafi grætt um 150 milljarða dala fékk leikkonan sem talaði fyrir Elsu drottningu í myndinni aðeins 100.000 krónur fyrir framlag sitt. Hin 15 ára Spencer Lacey Ganus fékk aðeins borgað fyrir eins dags vinnu samkvæmt TMZ en að vísu sagði Elsa aðeins sextán orð í myndinni. „Ekki liggur fyrir hvort hún ætlar að kæra eða kvarta en þetta er góð áminning um að ekki fá allir krakkar í Hollywood tékka eins og Hannah Montana,“ ritaði blaðamaðurinn síðunnar Jezebel. Fékk 100.000 fyrir Frozen „Þetta er klasi af smáverkstæð- um í listiðnaðargeiranum og iðn- aði. Fimmtán verkstæði úr mis- munandi greinum,“ segir Ólafur Gunnar Sverrisson, skipasmiður og einn þeirra sem standa að stofnun Íshúss Hafnarfjarðar. „Það er smíðaverkstæði, þrí- víddarverkstæði, hnífasmiður frá Grikklandi, átta keramikhönnuð- ir, fjöllistakona, grafíklistakona, danskur verkfræðingur og fræði- menn. Þetta er stór flóra og við stefnum á að bæta við hana,“ held- ur hann áfram. „Okkur fannst þetta vanta og ákváðum að taka þetta skrefinu lengra.“ Í framtíðinni ætlar Íshús Hafnar- fjarðar að standa fyrir ýmiss konar starfsemi. „Við stefnum á að taka á móti hópum, halda örnámskeið og lengri námskeið,“ segir hann. „Þetta er gamla íshúsið við höfnina í Hafnarfirði, þannig það nafn lá beinast við. Það var ógurlega erf- itt að finna nafn sem átti við alla, þetta er stór hópur og ólíkar grein- ar. Svo er ennþá ísverksmiðja í hús- inu,“ segir Ólafur um tilurð nafns- ins. „Samstarfið er lykilatriði. Þeir sem eru í sköpuninni geta einbeitt sér að henni. Það geta ekki allir gert allt og við munum nýta styrk hvert annars á ólíkum sviðum.“ Íshús Hafnarfjarðar mun sjá um markaðssetningu, leita að sam- starfsaðilum og þjóna sem alls- herjar utanumhaldsaðili fyrir þá hönnuði, iðnaðar- og listamenn sem verða þar innanhúss. Formleg opnun Íshússins verður á laugardaginn og er öllum frjálst að koma og skoða sig um í húsa- kynnunum að Strandgötu 90. - gló Íshúsið opnað í Hafnarfi rði Hnífasmiður, uppfi nningamaður og fj öllistakona eru meðal þeirra sem taka þátt í nýju samvinnuverkefni. Það er smíðaverk- stæði, þrívíddarverk- stæði, hnífasmiður frá Grikklandi, átta keramikhönnuðir, fjöl- listakona, grafíklista- kona, danskur verkfræð- ingur og fræðimenn. SAMVINNA Íshúsið mun hýsa ýmiss konar hönn- uði, iðnaðar- og listamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.