Fréttablaðið - 18.11.2014, Page 34
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22
SUND „Ég er alveg yfir mig ánægð
með árangurinn en á sama tíma
rosalega hissa á hvernig gekk,“
segir Eygló Ósk Gústafsdóttir,
sunddrottningin úr Ægi, nú ÍBR,
við Fréttablaðið um árangurinn á
Íslandsmeistaramótinu í 25 metra
laug sem fram fór í Ásvallalaug
um síðustu helgi.
Eygló drottnaði yfir mótinu og
vann í heildina níu gullverðlaun;
tvenn á fyrsta degi, þrenn á öðrum
degi og fern á þriðja degi. Til við-
bótar við það setti hún sex Íslands-
met og jafnaði það sjöunda.
„Ég var smá veik í síðustu viku
og leið því ekkert rosalega vel í
vatninu, en það virtist ekki skipta
miklu máli. Ég kom sjálfri mér
alveg rosalega á óvart. Þetta var
gjörsamlega geðveikt,“ segir hún
glöð í bragði.
Hvíldin var góð
Eygló keppti ekki á EM í 50 metra
laug í sumar heldur tók hún sér
gott frí. Þessi 19 ára Ólympíufari
og afreksmaður hefur lagt mikið á
sig undanfarin ár og fannst tími til
kominn að halda sig á þurru landi
í nokkrar vikur.
„EM var svo rosalega seint í ár.
Ég hefði þurft að æfa alveg fram
í lok ágúst og fá þá aðeins tveggja
vikna frí sem mér fannst of lítið.
Ég ákvað að fórna einu EM til að
fá gott frí,“ segir Eygló og heldur
áfram.
„Ég hef ekki fengið almennilegt
frí til að slaka á síðan ég var þrett-
án eða fjórtán ára gömul. Ég tók
því bara rólega í sumar og synti
ekki í fimm og hálfa viku. Það kom
sér vel því eftir þrjár vikur var ég
orðin svo spennt fyrir því að byrja
aftur. Þetta vakti bara meiri áhuga
hjá mér.“
Sundmenn eru þekktir fyrir það
að æfa ótrúlega mikið og á ókristi-
legum tímum. Eygló viðurkennir
fúslega að það séu ekki alltaf jólin
þegar kemur að því að búa sig
undir sundmót.
„Það getur verið alveg ótrú-
lega erfitt að æfa og sérstaklega
klukkan fimm á morgnana. Það
er ekkert sem maður hlakkar til.
En ef maður er með markmið og
er ákveðinn í því sem maður ætlar
að gera þá er þetta allt þess virði
þegar maður uppsker eins og um
helgina.“
Leyfir sér að dreyma
Næst á dagskránni hjá Eygló Ósk
og fleiri íslenskum sundköppum
sem náðu lágmörkum um helgina
er heimsmeistaramótið í 25 metra
laug sem haldið verður í Doha í
Katar 3.-7. desember.
„Aðalgreinarnar mínar þar
verða baksundin auðvitað og svo
sé ég til með fjórsundið. Það skýr-
ist allt þegar nær dregur,“ segir
Eygló, en 200 metra baksund er
hennar sterkasta grein.
Í þeirri grein stórbætti hún eigið
Íslandsmet um helgina þegar hún
synti á 2:04,78 mínútu. Ársgam-
alt met hennar var 2:06,56 mín-
útur og bætingin því upp á tæpar
tvær sekúndur sem er ótrúlegur
árangur.
„Ég hef sjaldan verið jafnhissa
og þegar ég sneri mér við á bakk-
anum og sá tímann. Þjálfarinn
minn var búinn að segja mér að ég
gæti synt á 2:05,00 mínútum þann-
ig ég sagðist ætla að reyna það. En
síðan hélt ég bara rosalega vel út
sundið, betur en nokkru sinni áður.
Þetta eru æfingarnar að skila sér,“
segir Eygló.
Sunddrottningin kynnti sér
sjálf hvar þessi tími setur hana
á meðal þeirra bestu í ár. „Ég er
númer ellefu á heimslistanum og í
fimmta sæti í Evrópu,“ segir hún.
Blaðamaður bendir henni svo á
að þessi tími hefði dugað henni til
bronsverðlauna á HM í 25 metra
laug fyrir tveimur árum. Er það
lúmskur draumur hjá henni fyrir
mótið í Doha?
„Það væri draumurinn. Mann
dreymir auðvitað stórt. Ég ætla
mér fyrst og fremst að komast í
úrslit og þegar þangað er komið
þá getur allt gerst. Ég ætla mér að
synda hratt í Doha en síðan kemur
í ljós hverju það skilar mér,“ segir
Eygló Ósk Gústafsdóttir.
tomas@365.is
Hef aldrei verið jafn hissa í lauginni
Sunddrottningin Eygló Ósk Gústafsdóttir var óumdeild stjarna Íslandsmeistaramótsins í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug um
helgina. Eygló vann níu gull og setti sex Íslandsmet. Eitt þeirra hefði komið henni á pall á HM í Istanbúl fyrir tveimur árum.
MEÐ ROÐI
ROÐLAUS OG BE
INLAUS
FROSNAR
NÍU GULL Eygló Ósk stal
senunni á ÍM 25 um helgina
þar sem hún bætt sex Íslands-
met og jafnaði sjöunda.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÍSLANDSMET EYGLÓAR UM
Á ÍM Í SUNDI UM HELGINA:
1. 200 METRA BAKSUND 2:04.78 MÍNÚTUR
2. 200 METRA FJÓRSUND 2:13.10 MÍNÚTUR
3. 50 METRA BAKSUND 27,45 SEKÚNDUR
4. 100 METRA FJÓRSUND 1:01.59 MÍNÚTUR
5. 100 METRA BAKSUND 58,83 SEKÚNDUR
6. 100 METRA BAKSUND 58,58 SEKÚNDUR
EYGLÓ VANN EINNIG GULL Í ...
50 METRA FLUGSUNDI
4 X 50 METRA BLÖNDUÐU FJÓRSUNDI
4 X 50 METRA BLÖNDUÐU BOÐSUNDI
(SETTU NÝTT ÍSLANDSMET)
4 X 100 METRA FJÓRSUNDI
SPORT