Fréttablaðið - 18.11.2014, Síða 34

Fréttablaðið - 18.11.2014, Síða 34
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22 SUND „Ég er alveg yfir mig ánægð með árangurinn en á sama tíma rosalega hissa á hvernig gekk,“ segir Eygló Ósk Gústafsdóttir, sunddrottningin úr Ægi, nú ÍBR, við Fréttablaðið um árangurinn á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug um síðustu helgi. Eygló drottnaði yfir mótinu og vann í heildina níu gullverðlaun; tvenn á fyrsta degi, þrenn á öðrum degi og fern á þriðja degi. Til við- bótar við það setti hún sex Íslands- met og jafnaði það sjöunda. „Ég var smá veik í síðustu viku og leið því ekkert rosalega vel í vatninu, en það virtist ekki skipta miklu máli. Ég kom sjálfri mér alveg rosalega á óvart. Þetta var gjörsamlega geðveikt,“ segir hún glöð í bragði. Hvíldin var góð Eygló keppti ekki á EM í 50 metra laug í sumar heldur tók hún sér gott frí. Þessi 19 ára Ólympíufari og afreksmaður hefur lagt mikið á sig undanfarin ár og fannst tími til kominn að halda sig á þurru landi í nokkrar vikur. „EM var svo rosalega seint í ár. Ég hefði þurft að æfa alveg fram í lok ágúst og fá þá aðeins tveggja vikna frí sem mér fannst of lítið. Ég ákvað að fórna einu EM til að fá gott frí,“ segir Eygló og heldur áfram. „Ég hef ekki fengið almennilegt frí til að slaka á síðan ég var þrett- án eða fjórtán ára gömul. Ég tók því bara rólega í sumar og synti ekki í fimm og hálfa viku. Það kom sér vel því eftir þrjár vikur var ég orðin svo spennt fyrir því að byrja aftur. Þetta vakti bara meiri áhuga hjá mér.“ Sundmenn eru þekktir fyrir það að æfa ótrúlega mikið og á ókristi- legum tímum. Eygló viðurkennir fúslega að það séu ekki alltaf jólin þegar kemur að því að búa sig undir sundmót. „Það getur verið alveg ótrú- lega erfitt að æfa og sérstaklega klukkan fimm á morgnana. Það er ekkert sem maður hlakkar til. En ef maður er með markmið og er ákveðinn í því sem maður ætlar að gera þá er þetta allt þess virði þegar maður uppsker eins og um helgina.“ Leyfir sér að dreyma Næst á dagskránni hjá Eygló Ósk og fleiri íslenskum sundköppum sem náðu lágmörkum um helgina er heimsmeistaramótið í 25 metra laug sem haldið verður í Doha í Katar 3.-7. desember. „Aðalgreinarnar mínar þar verða baksundin auðvitað og svo sé ég til með fjórsundið. Það skýr- ist allt þegar nær dregur,“ segir Eygló, en 200 metra baksund er hennar sterkasta grein. Í þeirri grein stórbætti hún eigið Íslandsmet um helgina þegar hún synti á 2:04,78 mínútu. Ársgam- alt met hennar var 2:06,56 mín- útur og bætingin því upp á tæpar tvær sekúndur sem er ótrúlegur árangur. „Ég hef sjaldan verið jafnhissa og þegar ég sneri mér við á bakk- anum og sá tímann. Þjálfarinn minn var búinn að segja mér að ég gæti synt á 2:05,00 mínútum þann- ig ég sagðist ætla að reyna það. En síðan hélt ég bara rosalega vel út sundið, betur en nokkru sinni áður. Þetta eru æfingarnar að skila sér,“ segir Eygló. Sunddrottningin kynnti sér sjálf hvar þessi tími setur hana á meðal þeirra bestu í ár. „Ég er númer ellefu á heimslistanum og í fimmta sæti í Evrópu,“ segir hún. Blaðamaður bendir henni svo á að þessi tími hefði dugað henni til bronsverðlauna á HM í 25 metra laug fyrir tveimur árum. Er það lúmskur draumur hjá henni fyrir mótið í Doha? „Það væri draumurinn. Mann dreymir auðvitað stórt. Ég ætla mér fyrst og fremst að komast í úrslit og þegar þangað er komið þá getur allt gerst. Ég ætla mér að synda hratt í Doha en síðan kemur í ljós hverju það skilar mér,“ segir Eygló Ósk Gústafsdóttir. tomas@365.is Hef aldrei verið jafn hissa í lauginni Sunddrottningin Eygló Ósk Gústafsdóttir var óumdeild stjarna Íslandsmeistaramótsins í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug um helgina. Eygló vann níu gull og setti sex Íslandsmet. Eitt þeirra hefði komið henni á pall á HM í Istanbúl fyrir tveimur árum. MEÐ ROÐI ROÐLAUS OG BE INLAUS FROSNAR NÍU GULL Eygló Ósk stal senunni á ÍM 25 um helgina þar sem hún bætt sex Íslands- met og jafnaði sjöunda. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR ÍSLANDSMET EYGLÓAR UM Á ÍM Í SUNDI UM HELGINA: 1. 200 METRA BAKSUND 2:04.78 MÍNÚTUR 2. 200 METRA FJÓRSUND 2:13.10 MÍNÚTUR 3. 50 METRA BAKSUND 27,45 SEKÚNDUR 4. 100 METRA FJÓRSUND 1:01.59 MÍNÚTUR 5. 100 METRA BAKSUND 58,83 SEKÚNDUR 6. 100 METRA BAKSUND 58,58 SEKÚNDUR EYGLÓ VANN EINNIG GULL Í ... 50 METRA FLUGSUNDI 4 X 50 METRA BLÖNDUÐU FJÓRSUNDI 4 X 50 METRA BLÖNDUÐU BOÐSUNDI (SETTU NÝTT ÍSLANDSMET) 4 X 100 METRA FJÓRSUNDI SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.