Fréttablaðið - 15.12.2014, Side 1
SVEITARSTJÓRNAMÁL Ítalski hús-
gagnframleiðandinn Cassina hefur
farið fram á við Reykjavíkurborg
að eftirlíkingum af stólum og
sófum eftir franska hönnuðinn Le
Corbusier sem er að finna í Ráð-
húsi Reykjavíkur verði fargað og
frumhönnun verði keypt í staðinn.
Verði Reykjavíkurborg ekki við
kröfunni mun Cassina fara fram
á skaðabætur af hendi borgarinn-
ar vegna þess skaða sem eftirlík-
ingarnar hafa valdið að sögn Alex
Colding, svæðisstjóra Cassina á
Norðurlöndunum.
„Við förum fram á að borgin
kaupi frumhönnun til að sýna fram
á að húsgögnin hafi verið keypt í
góðri trú,“ segir Alex.
Húsgögnin voru keypt fyrir
opnun ráðhússins árið 1992 og hafa
verið í notkun alla tíð síðan.
Skúli Rósantsson, eigandi hús-
gagnaverslunarinnar Casa, sölu-
aðila Cassina á Íslandi, segir að
eftirlíkingarnar í ráðhúsinu séu
sæti fyrir um 150 manns. Frum-
hönnun á sambærilegum stólum
kostar um 850 þúsund krónur og
frumhönnun á sófunum kostar
um 1,8 milljónir króna. Kostnaður
Reykjavíkurborgar við að kaupa
frumhönnun gæti því farið yfir
hundrað milljónir.
Skúli er ósáttur við að eftirlík-
ingar sé að finna í ráðhúsinu.
„Þegar menn eru með svona
daprar og lélegar eftirlíkingar er
þetta rosaleg eyðilegging fyrir
merkið. Það þýðir ekkert að byggja
flott ráðhús og vera með eitthvað
gervi í því,“ segir Skúli.
Hann bætir við að eftirlíking-
ar af húsgögnum Le Corbusier sé
einnig að finna í Ríkisútvarpinu
og sjáist reglulega í sjónvarpsút-
sendingum. Næsta skref sé að fara
fram með sambærilega kröfu við
Ríkisútvarpið og Reykjavíkurborg
er nú krafin um.
Alex telur alveg ljóst að hús-
gögnin í ráðhúsinu séu eftirlíking-
ar enda hafi hann sjálfur gengið úr
skugga um það þegar hann heim-
sótti Ísland í apríl á þessu ári.
„Frumhönnun er merkt með
raðnúmeri í burðargrind hús-
gagnanna sem var ekki að finna í
stólunum og sófunum í ráðhúsinu,“
segir Alex.
Krafa Cassina var tekin fyrir
í borgarráði á fimmtudag sem
vísaði kröfunni áfram á borgar-
lögmann sem mun taka hana til
skoðunar fyrir hönd Reykjavíkur-
borgar. - ih
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Mánudagur
Sími: 512 5000
15. desember 2014
294. tölublað 14. árgangur
Boða dagsektir
Bæjarstjórinn í Garði segir sveitar-
félagið í erfiðri stöðu gagnvart húsi
sem íbúum stafar ógn af vegna
fjúkandi þakplatna. Dagsektum verði
ef til vill beitt. 2
Rarik vill ekki norður Forstjóri
Rarik segir Sauðárkrók ekki ákjósan-
legan stað fyrir höfuðstöðvar fyrir-
tækisins. 6
Bakteríumengun Sveitarstjórn Voga
vill að gerð nýs vatnsbóls verði flýtt
eftir að E.coli-bakteríur fundust. 8
MENNING MP5 er spenn-
andi og nauðsynlegt innslag
í samtímaleikhúsið. 26
SPORT Dagur Sigurðsson
er spenntur fyrir Íslands-
förinni í janúar. 32
HÖNNUNARDAGATALJóladagatal Hönnunarsafns Íslands er opnað á hverjum degi. Í
glugga í anddyri safnsins hefur verið sýndur einn hlutur úr safn-
eigninni á dag. Enginn veit hvað mun birtast klukkan 12. Verður
það fatnaður, grafísk hönnun, keramik eða húsgagn? Þeir sem
missa af því að skoða hlutinn í glugganum geta skoðað
hann á heimasíðu safnsins eða á Facebook.
16 tegundir góðra gerlaSérvalin steinefniMá taka hvenær se
Probiotic 16 Strain
Betri melting!
FASTEIGNIR.IS
15. DESEMBER 2014
50. TBL.
Rúnar
Óskarsson
MBA viðskiptafr. /
sölufulltrúi
Sími 895 0033
* Starfsemi Land k b i á fl
100% þjónusta = árangur*
Landmark leiðir þig heim!
Sími 512 4900
landmark.is Benedikt
Ólafsson
sölufulltrúi
Sími 661 7788
Magnús
Einarsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 897 8266
Sigurður
Samúelsson
Löggiltur
fasteignasali
Sími 896 2312
Sveinn
Eyland
Löggiltur
fasteignasali
Sími 690 0820
Íris Hall
Löggiltur
fasteignasali
Þórarinn
Thorarensen
Sölustjóri
Sími 770 0309
Eggert
Maríuson
Sölufulltrúi
Sími 690 1472
Guðrún Diljá
Lúðvíksdóttir
skjalagerð
2 SÉRBLÖÐ
Fasteignir | Fólk
Glæsilegar jólagjafir
Kíktu á úrvalið í vefversluninni
okkar á michelsen.is
Í S L E N S K H Ö N N U N
O G R I T S N I L L D Í Þ Á G U
F A T L A Ð R A B A R N A O G
U N G M E N N A
Sölutímabil 5. - 19.desember
www. jolaoroinn.is
Giljagaur
S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A
O G F AT L A Ð R A
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
9
DAGAR
TIL JÓLA
OPIÐ TIL 22
Í KVÖLD
Eftirlíkingar gætu kostað
borgina yfir 100 milljónir
Reykjavíkurborg gæti þurft að farga húsgögnum úr Ráðhúsinu. Ítalski húsgagnaframleiðandinn Cassina vill að
frumhönnun verði keypt í þeirra stað. Kostnaður við endurnýjunina gæti kostað yfir hundrað milljónir króna.
Bolungarvík -7° N 7
Akureyri -5° NV 12
Egilsstaðir -6° NV 16
Kirkjubæjarkl. -8° NV 12
Reykjavík -6° N 6
Stormur austanlands fram eftir degi en
mun hægari vindur vestan til. Bjart með
köflum sunnan- og vestanlands en él
norðaustan til. 4
SÆKIR VATN TVISVAR Á DAG Gunnar Tyrfingsson í Herdísarholti í Hvalfjarðarsveit hefur þurft að ferðast með eitt þúsund lítra
tank á kerru til Akraness, tvisvar á dag, til að ná í vatn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVEITARSTJÓRNARMÁL Gunnar
Tyrfingsson í Herdísarholti í
Hvalfjarðarsveit er heitur af
reiði í kuldanum þessa dagana.
Hann hefur undanfarna níu mán-
uði þurft að ferðast með eitt þús-
und lítra tank á kerru til Akra-
ness til þess að ná í vatn, eina til
tvær ferðir á dag.
Gunnar og kona hans, Unnur
Ingólfsdóttir, reka sambýli fyrir
fjóra fatlaða einstaklinga. Hann
segir ástandið erfitt. Hann segir
sveitarfélagið bera það fyrir sig
að sé eitthvað gert fyrir einn bæ
þurfi að gera það sama fyrir aðra
líka.
„Maður er svolítið undrandi að
þetta geti gerst á Íslandi þar sem
eru náttúruauðlindir úti um allt,“
segir Gunnar.
- ibs / sjá síðu 4
Sækir vatn tvisvar á dag:
Vatnslaus í níu
mánuði ársins
FJÁRMÁL Að öllu óbreyttu er fram-
undan mesti niðurskurður í sögu
RÚV vegna fyrirhugaðrar lækk-
unar á útvarpsgjaldi.
Magnús Geir Þórðarson,
útvarpsstjóri, segir að hjá stjórn
RÚV og framkvæmdastjórn sé
ekki hafin nein vinna við að teikna
upp hvernig slíkur niðurskurður
myndi eiga sér stað ef fram fer
sem horfir með lækkun útvarps-
gjalds. Niðurskurðurinn sem þurfi
til að mæta lækkun á útvarpsgjaldi
sé hins vegar af þeirri stærðar-
gráðu að það þyrfti að velja í burt
stóra þætti starfseminnar.
„Þetta væri veruleg breyting á
starfsemi og þeirri þjónustu sem
þjóðin hefur notið. Ef þetta gengur
í gegn, þá þarf að velja í burt stóra
þætti starfseminnar.
- kbg / sjá síðu 2
Útvarpsstjóri stendur frammi fyrir mesta niðurskurði í sögu RÚV:
Stórir þættir hjá RÚV lagðir af
Þetta væri
veruleg breyt-
ing á starf-
semi og þeirri
þjónustu sem
þjóðin hefur
notið.
Magnús Geir Þórðarson.
LÍFIÐ Nítján ára áhugaljós-
myndari með mynd í ítalska
Vogue. 38
SKOÐUN Hildur Sverris-
dóttir vill meiri virðingu og
umburðarlyndi. 16