Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.12.2014, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 15.12.2014, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 15. desember 2014 | SKOÐUN | 17 Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu að eigin vali og rennur aldrei út. Skoðaðu úrvalið á NOTADIR.BRIMBORG.IS Söludeildir eru opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7030 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 Notaðir bílar - Brimborg 400.000 KR. FERÐAFJÖR FINNDU BÍLINN ÞINN Á NOTADIR.BRIMBORG.IS *Allir sem kaupa notaðan bíl af Brimborg á tímabilinu 1. nóvember 2014 til og með 22. desember 2014 fara í pott. Einn heppinn vinningshafi verður svo dreginn út 23. desember 2014 og fær hann 400.000 kr. gjafabréf frá WOW air. Athugið á ekki við um umboðssölubíla. Kauptu notaðan bíl af Brimborg og þú átt möguleika á að vinna * GJAFABRÉF FRÁ WOWair NOTAÐIR BÍLAR Vertu með! Hvert myndir þú fara? Í MIKLU ÚRVALI Tilboð: 2.550.000 kr. BMW X5 AWD YZT67 Skráður maí 2006, 3,0i bensín, sjálfskiptur Ekinn 147.000 km. Ásett verð: 2.950.000 kr. Tilboð: 2.790.000 kr. Toyota Corolla Terra PNT61 Skráður júní 2012, 1,6i bensín, sjálfskiptur Ekinn 29.000 km. Ásett verð: 3.190.000 kr. Tilboð: 750.000 kr. Ford Focus Trend NS134 Skráður apríl 2005, 1,6i bensín, beinskiptur Ekinn 106.000 km. Ásett verð: 890.000 kr. Núverandi ríkisstjórn var svo sem ekki kjörin til þess að standa í menningarlegum stórræðum. Núverandi stjórnarherrar gáfu stórbrotin loforð fyrir jól um „skuldaleiðréttingar“ meðan vinstri menn einbeittu sér fremur að ósigrum sínum og þannig voru þeir Sigmundur og Bjarni leiddir til valda til þess að snúa á hákarla- sjóðina í samningum um uppgjör bankanna – enda væru þeir bæði klókari og ófyrirleitnari fyrir hönd þjóðarbúsins en vinstri mennirnir sem alltaf eru að reyna að sanna sig fyrir auðvaldinu. Þeir voru kjörnir til að skaffa. Skaffa pén- ing. Og finna nýja leið til að þess að framfylgja hinu séríslenska efnahagsúrræði: að pissa í skóinn sinn. „… með markvissum hætti …“ Fólk sá ekki fyrir sér að fyrsta verk nýrrar stjórnar yrði að létta gjöldum af þeirri einu atvinnu- starfsemi í landinu sem ekki hefur lapið dauðann úr skel á árunum eftir hrun, sjávarútvegi og ferða- þjónustu, svo að unnt sé að halda áfram markvissri uppbyggingu innviða á Tortóla. Uppbyggingu ferðamannastaða á nú að velta yfir á almenning með hinum illræmda náttúrupassa og þess eflaust skammt að bíða að nýr sjávar- útvegsskattur á landsmenn verði fundinn upp til að hægt verði að létta útgerðinni róðurinn. En sem sé: Sigmundi Davíð var ekki lyft í forsætisráðherrastól vegna þess að hann þætti væn- legur menningarviti. Það kom því mörgum dálítið á óvart að hann skyldi gera menningarmál að sér- stöku umtalsefni í áramótaræðu sinni fyrir tæpu ári síðan. Orðrétt sagði forsætisráðherrann: „Menntamálaráðherra og ríkis- stjórnin hafa að undanförnu unnið með markvissum hætti að sóknar- áætlun fyrir listir, menningu og annað nýsköpunarstarf sem birt- ast mun á nýja árinu. Til framtíðar hafa skapandi greinar alla mögu- leika á að verða ein af meginstoð- um íslensks atvinnulífs, þar sem hugvit og sköpunarkraftur fara saman. Ég heiti á íslenska lista- menn að taka höndum saman með okkur í þessu mikilvæga verkefni.“ Nú getur einhver af hinum fjölmörgu aðstoðarmönnum ráð- herrans vonandi upplýst okkur: en hafa fregnir borist af þessari sóknar áætlun? Er hún í gangi? Markvisst? Í hverju hefur hún þá lýst sér? Áformum um að flytja hvalbein til Húsavíkur? Þetta tal í ræðu ráðherrans er reyndar í anda þess sem segir í stjórnarsáttmála og var á sínum tíma sagt vera sérstakt áhugamál forsætisráðherrans: „Íslensk þjóðmenning verður í hávegum höfð, að henni hlúð og hún efld. Áhersla verður lögð á málvernd, vernd sögulegra minja og skráningu Íslandssögunnar, auk rannsókna og fræðslu. Ríkisstjórn- in mun vinna að því að auka virð- ingu fyrir merkri sögu landsins, menningu þess og tungumálinu, innanlands sem utan.“ … að rústa íslenskri menningu … Ýmsum þótti skringilegt að telja það í verkahring ríkisstjórna að „auka virðingu fyrir merkri sögu landsins“ eða að leiða útlending- um fyrir sjónir hversu merki- legt tungumál íslenskan sé; en ekkert af þessu skiptir máli. Það kemur nú æ betur í ljós að þetta er orðagjálfur, rétt eins og fyrir- heit forsætisráðherrans í áramóta- ræðunni; orðin tóm. Eini minnis- varðinn sem núverandi ríkisstjórn hefur reist stefnu sinni í þessum málaflokki, sem talað er svo inn- virðulega um í stjórnarsáttmála, er Hola íslenskra fræða við Suður- götu í Reykjavík. Tal forsætisráðherrans í ára- móta ræðu sinni um síðustu áramót er af sama toga. Hann er þar bara að spegla sig í orðum – máta sig í búningi áhugamanns um menn- ingarmál. Raunveruleg stefna þessarar ríkisstjórnar birtist í furðulegum fjandskap í garð lista og menningar. Íslensk þjóðmenn- ing er þar í lágvegum höfð og að henni þjarmað. Hækkun á bóka- skatti á þessum brothætta örmark- aði verður til þess að sá skattur verður nú með því hæsta í Evr- ópu, þar sem flestar ríkisstjórn ir keppast við að hlúa að sínum litlu og viðkvæmu málsvæðum á við- sjárverðum tímum alþjóðavæð- ingar. Framlög til þess að búa sig undir stóraukna notkun tungumála í nýju tölvuvæddu umhverfi benda til fullkomins áhugaleysis fjár- veitingarvaldsins á vexti og við- gangi íslenskunnar í nýjum heimi. Þeim er skítsama. Þegar rætt er um auknar álögur á bókmenntir – sem er þjóðararfur Íslendinga, sjálft hryggjarstykkið í íslenskri menningu gegnum aldirnar – fer fjármálaráðherrann að tala um að skattar hafi verið lækkaðir á timbri og málningu. Honum gæti ekki verið meira sama. Kannski að verkefnið sé að auka virðingu fyrir íslenskri menningu innan ríkisstjórnarinnar sjálfrar áður en menn fara að reyna slíkt utan- lands eins og segir í stjórnarsátt- málanum. Og loks: Fyrir dyrum stend- ur fáheyrð aðför að Ríkisútvarp- inu, innblásin að því er virðist af óskiljan legri heift í garð stofnun- ar sem landsmenn treysta og þykir vænt um. Ríkisútvarpið er íslensk- um listamönnum ómetanlegur bak- hjarl og vettvangur, hvernig sem á það er litið og er enn eitt dæmið um þá menningarlegu og þjóðlegu inn- viði sem þessari ríkisstjórn virðist svo einkennilega uppsigað við. Núverandi ríkisstjórn var svo sem ekki kjörin til þess að standa í menningarlegum stórræðum. En hún var heldur ekki kjörin til þess að rústa menningarverðmætum. „Ríkisstjórnin mun vinna að því …“ Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Það kemur nú æ betur í ljós að þetta er orðagjálfur, rétt eins og fyrir heit forsætis- ráðherrans í áramótaræð- unni; orðin tóm. Eini minn- isvarðinn sem núverandi ríkisstjórn hefur reist stefnu sinni í þessum málaflokki, sem talað er svo innvirðu- lega um í stjórnarsáttmála, er Hola íslenskra fræða við Suðurgötu í Reykjavík. AF NETINU Trúarleg kirkja, veraldlegur skóli Ég er persónulega hallur undir trú og hef hreint engan áhuga á að vinna að upp- rætingu hennar úr samfélaginu. Það er nefnilega ekki síst trúarinnar sjálfrar vegna sem ég vil frelsa hana úr viðjum stofnanavæðingar. Menningarleg og félagsleg fyrirbæri er erfitt að stofn- anavæða og trúin sérstaklega er þess eðlis að stofnanatrú verður aldrei jafn lifandi og trú sem sprettur frá fólkinu sjálfu. blog.pressan.is/tharfagreinir/ Halldór Auðar Svansson Mikilvægast af öllu Í sex klukkutíma barðist stjórnar- andstaðan fyrir því að viðbótarframlög skattgreiðenda til Ríkisútvarpsins samkvæmt frumvarpinu yrðu tvöfölduð, hið minnsta. Litlar sem engar athugasemdir voru gerðar við áætluð framlög til heilbrigðis- og menntamála. Þeir málaflokkar fengu ekki nema nokkrar mínútur af ræðutíma stjórnarandstöðunn- ar– Ríkisútvarpið fékk tæpa sex tíma. http://www.deiglan.is Borgar Þór Einarsson Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.