Fréttablaðið - 15.12.2014, Qupperneq 27
4ra herbergja 154,3 fm. glæsileg útsýnisíbúð á 3.
hæð (efstu) í glæsilegu fjöleignarhúsi “Breiðabliki”
miðsvæðis í Reykjavík. Samliggjandi stórar stofur
með útgengi á svalir til suðurs, sjónvarpsherbergi
innaf stofum, rúmgott hjónaherbergi og skrifstofu-
herbergi. Sérmerkt bílastæði í bílageymslu og
hlutdeild í mikilli sameign. Á hverri hæð hússins
eru setustofur, lagðar náttúrugrjóti, bjartar og
rúmgóðar. Húsvörður er búsettur í húsinu. Lóðin er
glæsileg með sundlaug, heitum pottum o.fl.
Verð 55,0 millj.
Efstaleiti „ Breiðablik“ – 4ra herbergja á efstu hæð.
OP
IÐ
HÚ
S
Á M
OR
GU
N
Glæsileg og mikið endurnýjuð 91,3 fm. sérhæð í
miðborginni. Búið er að endurnýja íbúðina mjög
mikið m.a. eldhús, baðherbergi, gólfefni og skápa.
Einnig er búið að endurnýja vatnslagnir ásamt
ofnalögnum og rafmagn að hluta. Húsið er allt
nýlega klætt að utan. Íbúðinni er í dag skipt í eitt
herbergi og tvær stofur en lítið mál að bæta við
herbergi í borðstofu. Gróinn falleg afgirt lóð.
Verð 33,9 millj.
Baldursgata – 3ja herbergja sérhæð
GRÆNLANDSLEIÐ- GRAFARHOLTI.
Glæsilegt 166,2 fm. sérbýli á tveimur hæðum í tvíbýlishúsi auk 38,8 fm bílskúrs,
samtals 205 fm. að stærð. Stofa/borðstofa með stórum gluggum í þrjár áttir og
frábæru útsýni. Úr stofum er útgengi á stóra þakverönd. Lóðin er mjög falleg og er
að mestu leyti villt og þarfnast ekki vinnu við. Garðrýmið tengist stórri þakverönd
með útsýni móti norðri og vestri. Stórt bílaplan fyrir framan bílskúr.
LJÁRSKÓGAR - REYKJAVÍK.
Vel staðsett 210,9 fm. einbýlishús á þremur pöllum með stórri skjólgóðri verönd til
suðurs og innbyggðum 38,4 fm. bílskúr. Samliggjandi stofur með arni og útsýni til
sjávar og víðar. Sex herbergi. Sjónvarpshol með útgangi á viðarverönd til suðurs.
Opið eldhús við stofu. Húsið stendur á 1.067 fm. lóð innst í botnlanga og er stór
hellulögð innkeyrsla fyrir framan húsið.
BAKKASEL – REYKJAVÍK.
Mjög gott 172,2 fm. sérbýli á þremur hæðum í tvíbýlishúsi á útsýnisstað í Seljahverfi
auk 19,5 fm bílskúrs, samtals er eignin 191,7 fm. að stærð. Eignin hefur verið mikið
endurnýjuð á sl. árum m.a eldhúsið allt opnað og sett ný vönduð innrétting. Einnig
er búið að endurnýja bæði gesta wc og baðherbergi. Mikil lofthæð í stofum. Lóðin
nýlega hellulögð með hitalögnum undir. Frábært útsýni.
ARNARÁS – GARÐABÆ. EFRI SÉRHÆÐ.
Mjög falleg 5 herbergja 134,6 fm. efri sérhæð með fallegu útsýni í Ásahverfinu. Mikl-
ar innréttingar úr kirsuberjaviði eru í eldhúsi og útsýni er að Esjunni, yfir Garðabæ að
Kópavogi og víðar. Skjólsælar svalir til suðvesturs út af stofu. Sjónvarpshol og þrjú
rúmgóð svefnherbergi. Góð aðkoma er að húsinu og fjöldi bílastæða er á lóð.
MIÐHOLT - HAFNARFIRÐI. ÓHINDRAÐ ÚTSÝNI
Glæsilegt 7 herbergja 208,0 fm. einbýlishús á tveimur hæðum á frábærum útsýnis-
stað neðan við götu. Samliggjandi stofur með kamínu og mikilli lofthæð að hluta.
Fjögur herbergi og sjónvarpsstofa. Gólfefni eru gegnheilt olíuborið parket og granít-
flísar. Eignin stendur á 952,9 fm. lóð, sem er að mestu leyti villt og þarfnast ekki
vinnu við, en einnig er stór verönd til suðurs og hellulögð innkeyrsla. 67,9 millj. 42,9 millj.
52,9 millj.
47,0 millj.
64,9 millj.
SÉRBÝLI SÉRBÝLI 4RA - 6 HERBERGJA
LA
US
STR
AX
STIGAHLÍÐ
Verð 99,0 millj.
Glæsilegt einbýlishús
- frábær staðsetning.
Mjög fallegt og vel skipulagt 325,4 fm. einbýlishús á 3 pöllum
efst í Stigahlíð við opið svæði á góðum útsýnisstað. Stórar og
skjólsælar verandir með heitum potti og mjög falleg og gróin lóð.
Allt að 6 svefnherbergi eru í húsinu, þrjú baðherbergi og sérlega
glæsilegar stórar stofur með arni. Fallegt útsýni er til allra átta úr
stofum og sólskála. Innbyggður 38,2 fm. tvöfaldur bílskúr með
mikilli lofthæð. Lóðin er með stórri og skjólsælli verönd til suðurs
með heitum potti og annarri til austurs, göngustígum og fallegum
gróðri. Eignin er laus til afhendingar nú þegar.
SKILDINGANES
Skildinganes
– Skerjafirði
Eign í sérflokki.
Vandað og frábærlega skipulagt 284,6 fm. einbýlishús með inn-
byggðum 28,2 fm. bílskúr á mjög góðum stað í Skerjafirði. Húsið er
allt arkitektahannað að innan og utan af Davíð Pitt, arkitekt, byggt og
innréttað úr vönduðustu fáanlegum byggingarefnum. Sjónsteypa er
veggjum hússins að hluta, verulega aukin lofthæð í hluta hússins og öll
loft tekin niður með innfelldri lýsingu. Gólfefni eru massív olíuborin eik
og flísar. Hússtjórnarkerfi í húsinu. Að utan er húsið úr sjónsteypu og
einnig klætt með lerki. Stórar verandir eru beggja vegna hússins og
upphitaðar hellulagðar stéttar og innkeyrsla.
VEGNA MIKILLAR SÖLU ÓSKUM EFTIR ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM EIGNA Á SÖLUSKRÁ.
SKOÐUM OG METUM SAMDÆGURS - SANNGJÖRN SÖLUÞÓKNUN