Fréttablaðið - 15.12.2014, Side 38
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 22
Það þekkir hvert mannsbarn þá hefð að
borða kæsta skötu á Þorláksmessu, en sá
siður kom fyrst frá Vestfirðingum. Þessi
hefð skipar nú stóran sess í matarmenningu
okkar núna yfir hátíðarnar og er ómissandi
á flestum heimilum.
Önnur og yngri hefð er að bjóða upp á
saltfisk með skötunni og segja þeir sem
smakkað hafa að saman sé þetta algjört
lostæti.
Elvar Reykjalín Jóhannesson hjá Ekta-
fiski á Hauganesi segir eftirspurnina eftir
saltfiskinum aldrei meiri en rétt fyrir jólin.
„Við framleiðum aldrei eins mikið og í des-
ember enda verður sífellt vinsælla að hafa
þetta með skötunni og saman er þetta rosa-
lega gott hvort sem er með hangifloti, höms-
um eða smjöri,“ segir Elvar, en hann er eng-
inn nýgræðingur í saltfiskverkuninni.
Afi hans byrjaði með saltfiskframleiðslu
um 1940 og kenndi pabba Elvars tökin,
sem hefur nú tekið við framleiðslunni. „Nú
er fimmta kynslóðin farin að læra af mér,
en afabörnin mín hafa komið og unnið hjá
mér,“ segir hann.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hóf
útgáfu Kærleikskúlunnar árið 2003
og á hverju ári er þekktur listamaður
fenginn til þess að hanna kúluna. Allur
ágóði sölunnar rennur í Reykjadal, sem
er helgar- og sumardvalarstaður fyrir
fötluð ungmenni.
Hönnuður kærleikskúlunnar í ár er
Davíð Örn Halldórsson myndlistar-
maður. „Kúlan mín heitir Mandarína.
Hugmyndin var að vinna með eitthvað
jólalegt, en án þess þó að það væri
trúartengt eða væri jólasveinarnir eða
álíka. Mér datt þá í hug að nota mand-
arínuna, fannst það svolítið fyndið, og
vann hugmyndina svolítið út frá form-
inu, “ segir Davíð.
Kúlan er munnblásin og handmáluð
þannig að engar tvær kúlur eru alveg
eins. Litirnir í kúlunni eru frá appels-
ínurauðum út í gulan, og segir Davíð
það vera í takt við önnur verk sín. „Ég
nota alltaf frekar æsta exótíska liti í
mín verk, svo þetta átti vel við Mand-
arínuna,“ segir hann.
Davíð segir það mikinn heiður fyrir
sig að hafa verið valinn i verkefnið.
„Þarna er maður kominn í hóp með
flottu listafólki sem hefur tekið þátt í
þessu. Svo er líka bara gott fyrir sálina
að gera góðverk,“ segir hann.
Berglind Sigurgeirsdóttir, mark-
aðs- og kynningarstjóri hjá Styrktar-
félagi lamaðra og fatlaðra, segir sölu á
Kærleikskúlunni skipta sköpum fyrir
starfsemi sumarbúðanna. „Þetta eru
einu sumarbúðirnar á landinu sem eru
starfandi á Íslandi og þangað koma um
350 börn yfir allt árið. Salan á Kær-
leiks kúlunni er ein af okkar mikilvæg-
ustu fjáröflunum og það skiptir börnin
og fjölskyldur þeirra öllu máli,“ segir
hún.
Kærleikskúlan er aðeins til sölu í 14
daga og má sjá nánari upplýsingar inni
á kaerleikskulan.is
adda@frettabladid.is
TÍMAMÓT
Ástkær sonur okkar, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR INGI RÚNARSSON
lést á heimili sínu mánudaginn 1. desember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Rúnar Borgþórsson
Guðbjörg J. Sigurðardóttir
Rúnar Ingi Sigurðsson Margrét Tómasdóttir
Amanda Sif Rúnarsdóttir
Borgþór Smári Rúnarsson
Elskulega móðir okkar,
JENSÍNA ÓLÍNA GÍSLADÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði þann 29. nóvember 2014.
Jarðarförin fer fram í dag, mánudaginn 15.
desember, kl. 13.00 í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Reynir, Erla, Villi, Agnes og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
FJÓLA BACHMANN
lést 10. desember. Útförin fer fram frá
Selfosskirkju fimmtudaginn 18. desember
kl. 13.30.
Vígsteinn S. Gíslason
Anna Dóra Ágústsdóttir Jón Karl Jónsson
Ingi Þór Ágústsson Rósamunda Baldursdóttir
Gylfi Már Ágústsson Unnur Pálmarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1861 Maðurinn sem bjó til
körfuboltann, James Nais-
mith, fæddist.
1913 Mohandas K. Gandhi
var handtekinn fyrir að
leiða göngu indverskra
námuverkamanna í Suður-
Afríku.
1914 Gassprenging varð í
Mitsubishi Hojo-kolanám-
unni í Kyushu í Japan og
687 námuverkamenn létu
lífið
1939 Kvikmyndin Gone
with the Wind var frum-
sýnd í Loew’s Grand
Theatre in Atlanta í Georg-
íufylki Bandaríkjanna.
1941 Helförin. Þýskir hermenn myrða yfir 15.000 gyðinga í
Drobytsky Yar suðvestur af Kharkiv í Úkraínu.
1967 Sifurbrúin eða The Silver Bridge sem lá yfir Ohio-ána
hrundi með þeim afleiðingum að 46 létu lífið.
1991 Kúveit fagnar því að ráðið var niðurlögum síðasta olíuelds-
ins sem Írakar kveiktu í Persaflóastríðinu.
2001 Bílasprengja særði um 60 manns í Madríd á Spáni.
2001 Tíu manns voru aflífaðir í Peking í Kína. Ríkisdagblaðið í
Kína sagði að fólkið sem var aflífað hafi allt verið ræningjar og
morðingjar á aldrinum 20–23 ára.
2009 Nýja Boeing 787 Dreamliner-þotan fer í jómfrúrflug sitt
frá Seattle.
Á þessum degi árið 1995 dæmdi mannréttindadómstóll Evrópu belgíska knattspyrnumann-
inum Jean-Marc Bosman í hag í máli sem hann höfðaði gegn félagsliði sínu, knattspyrnusam-
bandi Belgíu og Evrópu (EUFA), varðandi rétt leikmannsins til atvinnufrelsis.
Bosman vildi komast frá Standard Liege til fransks liðs árið 1990, en samningur hans við
belgíska liðið var útrunninn og vildi félagið fá upphæð fyrir leikmanninn sem franska félagið
var ekki tilbúið að greiða. Fimm árum síðar var úrskurðað að Bosman hefði verið frjálst að
fara því það samrýmdist reglum um frjálst flæði vinnuafls. Íþróttir voru skilgreindar eins og
hver önnur atvinnustarfsemi innan Evrópusambandsins.
Dómurinn hafði mikil áhrif á knattspyrnuheiminn. Félögin áttuðu sig á því að það borgaði
sig að gera lengri samninga við leikmenn og greiða þeim hærri laun. Í kjölfarið kom launa-
skrið sem enn sér ekki fyrir endann á.
ÞETTA GERÐIST: 15. DESEMBER 1995
„Bosman-dómurinn“ fellur
Það er gott fyrir sálina
að gera góðverk
Myndlistarmaðurinn Davíð Örn Halldórsson er hönnuður Kærleikskúlunnar þetta árið, en
allur ágóði rennur í Reykjadal, sumarbúðir Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
HÖNNUÐURINN
Davíð Örn með
Mandarínuna,
Kærleikskúluna
2014.
JÓLALEG Kúlan er einstaklega falleg og jólaleg í ár.
Saltfi skur hefð á Þorláksmessu
Elvar Reykjalín hjá Ektafi ski segir vinsælt að borða saltfi sk með skötunni.
REYNSLUBOLTI Elvar Reykjalín
Jóhannesson hjá Ektafiski.
HERRAMANNSMATUR Saltfiskurinn
bragðast einstaklega vel með skötunni.
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS