Fréttablaðið - 15.12.2014, Síða 46

Fréttablaðið - 15.12.2014, Síða 46
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30 BAKÞANKAR Hauks Viðars Alfreðssonar EXODUS 3D KL. 9 EXODUS 2D KL. 5.45 MOCKINGJAY– PART 1 KL. 8 – 10.40 DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 – 8 – 10.30 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.30 NIGHTCRAWLER KL. 5.30 THE HOBBIT FORSÝNING KL. 10 THE HOBBIT LÚXUS FORSÝNING KL. 10 EXODUS 3D KL. 4.30 – 8 - 11 EXODUS 3D LÚXUS KL. 3.30 – 6.30 BIG HERO 6 3D KL. 4.30 BIG HERO 6 2D KL. 3.15 – 5.30 MOCKINGJAY – PART 1 KL. 8 – 10.45 MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.15 DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 – 8 – 10.30 FORSÝNING - EMPIRE JÓLAMYNDIN Í ÁR ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK EMPIRENEW YORK POST siAMS HOLLYWOOD REPORTER EMPIRE EMPIRE Jólamyndin 2014 Jólamyndin 2014 EXODUS 7, 10(P) BIG HERO 6 2D 4:30 BIG HERO 6 3D 4:30 HUNGER GAMES: MOCKINGJAY 7, 10 MÖRGÆSIRNAR 2D 4:30 NIGHTCRAWLER 10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar POWERSÝNING KL. 10:00 Óskarsverð- launaleikkon- an Angelina Jolie sendi frá sér tilkynn- ingu þess efnis að hún geti því miður ekki mætt á frumsýningu myndarinnar Unbroken í Los Angeles sem fer fram í kvöld. Ástæðan er heldur óvenjuleg, en leikkonan smitaðist af hlaupabólu. Hún sendi frá sér myndband á YouTube þar sem hún sagðist vera algjörlega miður sín að kom- ast ekki og að myndin skipti hana gríðarlega miklu máli. Í staðinn yrði hún heima að klóra sér. Síð- asta vika var heldur óheppileg fyrir Jolie, en ekki var nóg með að hún fengi hlaupabólu heldur var myndin hennar Un broken ekki tilnefnd til Gold en Globe verðlauna eins og spáð hafði verið. Jolie með hlaupabólu ANGELINA JOLIE Allir komust í jólafíling Hljómsveitin Baggalútur heldur sína árlegu jólatónleika í Háskólabíói og var fyrir löngu orðið uppselt. Á föstu dag var fullt hús, mikil jólastemning og skemmtu gestir sér konunglega. Munu þeir félagar endurtaka leikinn um næstu helgi og má búast við miklu jólastuði. FÖNDURSTUND! Þeir Kalli og Guðmundur þenja raddböndin. PÍANÓMAÐURINN Bragi Valdimar fór á kostum. JÓLALEGT Sviðið var einstaklega fallegt og jólalegt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ÞAÐ SNJÓAR Sviðsmyndin var einstaklega skemmtileg. SPENNTIR Kristján og Kjartan komu frá Suðurnesjum. Í JÓLASKAPI Björk og Guðmundur voru hress. BAGGALÚTSAÐDÁENDUR Kristín, Sigurlaug og Búi voru spennt fyrir tón- leikunum. BAGGALÚTSBÚÐIN Þar er til söu ýmis- konar skemmtilegur varningur tengdur hljómsveitinni. VÍGALEGUR Sigurður Guðmundsson úr Hjálmum einbeittur á græj- unum. Í gær vaknaði Sigmundur Davíð Gunn-laugsson, forsætisráðherra Íslands, og kíkti í svarta Nike-táfýluskóinn sinn úti í glugga þar sem kartafla blasti við honum. Já, Sigmundur er búinn að vera óþekkur og sveinki lætur engan komast upp með slíkt – ekki einu sinni ráðherra. Með malt og Mountain Dew í glasi fór hann á Facebook og sagði frá jólaballi með leikskólabörnum þar sem jólasveinar héldu uppi fjörinu. ÞEGAR kom að því að syngja Heims um ból urðu þeir bræður smeykir og Glugga- gægir bað fólk að vakta gluggana og láta vita ef sæist til útsendara frá mann- réttindaráði Reykjavíkurborgar,“ skrifaði Sigmundur og glotti yfir eigin fyndni. ÞETTA er ekki í fyrsta skipti sem drepfyndni forsætis- ráðherrann skemmtir okkur með óborganlegu skop- skyni sínu á Face book. Í október glensaði hann með hríðskotabyssumálið – þó síðhærðir trjáfaðmarar hafi ekki fattað djókið. ÞAÐ er gott að Sigmundur skemmtir sér í embættinu og engu líkara en að sjálfur Laddi hafi tekið sér bólfestu í honum, að minnsta kosti þegar hann loggar sig inn á Facebook. Ef hann nær ekki endurkjöri getur hann kannski sótt um vinnu hjá DV við að skrifa fyrir Loka. Það er samt spurning hvort þetta sé viðeigandi fyrir forsætisráðherra, þó auðvitað þurfum við gárunga sem skoða samtímann í spéspegli. VÆRU ekki faglegri vinnubrögð að láta sprelligosa úti í bæ um brandarana? Eða bitra borgarfulltrúa sem fá ekki að vera með í neinu vegna þess að þeir höguðu sér illa. Þeir eru meira að segja með Sigmundi í flokki. Hann getur þá kannski sent þeim brandara sem eru ekki sæmandi ráðherra en mega síður fara til spillis. ÉG stóð nefnilega í þeirri trú að það væri hagur forsætisráðherra og ríkisstjórnar hans að stuðla að sátt í samfélaginu. Eða að minnsta kosti að halda gagnrýnend- um sínum „góðum“ svo hægt sé að ganga lengra í pólitískum fautaskap þegar þess þarf. Þið vitið – eiga inni smá viðskipta- vild. Laddi, Loki og Sigmundur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.