Fréttablaðið - 01.06.2015, Side 2

Fréttablaðið - 01.06.2015, Side 2
1. júní 2015 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 ➜ Ung kona sem tók þátt í ofbeldinu var misnotuð af manninum þegar hún var yngri. Þremenningarnir kröfðust þess að maðurinn greiddi fébætur vegna þess. DÓMSMÁL Þrír einstaklingar, tveir karlar og ein kona, játuðu fyrir héraðsdómi Norðurlands eystra að hafa farið inn á heimili átt- ræðs karlmanns í Þingeyjarsveit í apríl í fyrra og haft í hótunum við hann. Var greiðslukort mannsins tekið ófrjálsri hendi sem og fjöldi smáhluta og reynt að milli færa eina milljón króna af heimabanka mannsins. Sakborningar voru allir í mikilli vímuefnaneyslu þetta umrædda kvöld. Þremenningarnir, sem höfðu verið að skemmta sér vegna afmælis konunnar, bönkuðu upp á hjá manninum, sem er bóndi í Þingeyjarsveit, um átta um kvöld- ið. Töldu þau að hann skuldaði konunni, sem er á þrítugsaldri, fjármuni vegna gamalla saka. Hann yrði að borga konunni ell- egar hljóta verra af. Fórnarlamb- ið er fætt árið 1935 og átti því við ofurefli að etja. Mennirnir tveir þekktu ekki til mannsins en konan hafði verið í sveit á sama bæ og hann þegar hún var yngri. Hafði hann mis- notað hana kynferðislega og hlotið dóm fyrir. Þessir atburðir höfðu lagst þungt á konuna sem vildi á þessum tíma fá greiddar bætur frá manninum. Nokkur hluti fjárkúgunar- innar af öldungnum var eitt megin sönnunargagn fyrir dómi síðastliðinn föstudag. Einn sak- borninganna tók um 20 mínútna langan bút upp sem hljóðskrá og var hluti hennar spilaður fyrir réttinum. Í því hljóðbroti heyr- ist hvar þau hóta ellilífeyrisþeg- anum að ef hann gengi ekki að kröfum þeirra myndu aðrir menn koma í málið sem búsettir væru á höfuð borgarsvæðinu. Einnig sagði konan að vegna óuppgerðra saka við manninn skyldi hún kæra hann fyrir nauðgun sem þau myndu nota gegn honum. Fórnarlambið sagðist fyrir rétti hafa ætlað á söngskemmtun þetta kvöld en ekki komist þar sem þau héldu honum inni í eldhúsi hjá sér og voru nokkuð ör. Höfðust þau við í íbúðinni í tæpar þrjár klukkustundir. Höfðu þau ýmis- legt lauslegt á brott með sér og reyndu að millifæra eina milljón eins og áður segir í heimabanka mannsins. Greiðslukort mannsins notuðu þau til að kaupa áfengi á Akureyri að lokinni árásinni. Eru þau kærð fyrir fjárkúgun, gripdeild og ógn- anir sem þau höfðu í frammi við ellilífeyrisþegann. sveinn@frettabladid.is Kúguðu milljón af öldruðum bónda Þrír einstaklingar játuðu fyrir héraðsdómi Norðurlands eystra að hafa farið óboðnir á heimili bónda á áttræðisaldri í apríl í fyrra, haldið honum nauðugum á heimili hans, millifært fé af reikningi hans og stolið greiðslukortum mannsins. LOSUÐU SIG VIÐ ÞÝFI Fjöldi smáhluta sem erfitt var að koma í verð fannst daginn eftir atburðinn við Goðafoss skammt frá heimili mannsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVÍÞJÓÐ Þeir sem ganga inn eftir kirkjugólfinu í St. Nicolai-kirkju í Örebro í Svíþjóð þessa dagana ganga á renningi með litum regn- bogans. Til stóð að hafa renning- inn á kirkjugólfinu þegar gleði- ganga fer fram í Örebro í ágúst næstkomandi en ákveðið var að leggja renninginn á gólfið þegar um hvítasunnu. Á vef Aftonbladet er haft eftir sóknarprestinum, Anders Lenn- artsson, að lögð sé áhersla á að kirkjan sé opin fyrir alla og þess vegna hafi hún tekið þátt í gleði- göngunni frá því að hún hófst. Sóknarpresturinn veltir því nú fyrir sér hvort það geti ekki verið áhrifaríkt að halda á renningnum, sem er 24 metra langur, í gleðigöngunni í ágúst. Renningurinn átti aðeins að vera á gólfinu í eina viku núna í maí en þar sem viðbrögðin hafa verið svo jákvæð var ákveðið að hafa hann lengur. Renning- ar með litum regnbogans eru í fleiri kirkjum í Svíþjóð, að því er Aftonbladet greinir frá. - ibs Jákvæð viðbrögð íbúa í Örebro í Svíþjóð við nýjum gólfrenningi: Kirkjuteppið í regnbogalitum STJÓRNSÝSLA Meðlimir stjórnar Orkuveitu Reykja- víkur hafa undirritað nýja yfirlýsingu um trúnað vegna starfa sinna fyrir fyrirtækið. „Ég skuldbind mig til að gæta þagmælsku um allar trúnaðarupplýsingar sem ég kann að fá vitn- eskju um með aðgangi mínum að tölvukerfum OR við stjórnarsetu fyrir OR eða dótturfélög,“ segir í yfirlýsingunni, sem stjórnarmenn undirrituðu á fundi í lok apríl. Að sögn Haraldar Flosa Tryggvasonar, for- manns stjórnar OR, er með þessu aðeins verið að uppfæra fyrri trúnaðaryfirlýsingar. „Þetta er ekki nýtt heldur eldgamalt,“ segir Haraldur um ástæð- ur trúnaðar yfirlýsinganna. „Það var verið að taka upp nýja gátt fyrir stjórnarmenn í kerfunum. Hjá fyrirtækinu er upplýsingastefna og öryggisstefna sem kalla á það að við smæstu breytingar þurfi að endur nýja trúnaðaryfirlýsingar stjórnarmanna.“ Trúnaðarákvæði munu áður fyrr hafa verið í starfsreglum stjórnarmanna. Trúnaðaryfirlýsingin nú er framhald af þeim og af annarri viðlíka yfir- lýsingu sem stjórnarmenn þurftu að undirrita í vetur sem leið. Samkvæmt yfirlýsingunni heita stjórnarmenn því að nota vitneskju sína ekki til annars en þess sem tengist beint stjórnarstörfum þeirra fyrir OR eða dótturfélög. Þeir mega heldur ekki taka afrit af hug- búnaði eða gögnum, öðrum en þeim sem tengjast stjórnarsetu, út úr húsi án skriflegs leyfis. gar@frettabladid.is Stjórnarmenn í OR heita þagmælsku um störf sín fyrir fyrirtækið: Undirrita trúnaðaryfirlýsingu HARALDUR FLOSI TRYGGVASON Þagnarskylda helst eftir lok stjórnarsetu í Orkuveitunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÚKRAÍNA Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki uppáhald allra í Úkraínu um þessar mundir. Það sést greinilega þar sem fjöldi fólks í borginni Lviv, sem er í vesturhluta Úkraínu, lét reiði sína bitna á svo- kallaðri Pútín-dúkku. Um er að ræða dúkku sem lítur út eins og Pútín og lét fólk höggin dynja á henni í gær. Ungur piltur kýlir dúkkuna kalda á myndinni og má greina nokkra heift í andliti drengsins, hann var einn af mörgum sem lúskruðu á dúkkunni í gær. - glp Fólk lætur reiði sína bitna á dúkku í líki Rússlandsforseta: Kýlir Pútín-dúkkuna kalda HEIFT Ungi pilturinn fékk góða útrás á dúkkunni. NORDICPHOTOS/AFP VEÐUR SJÁ SÍÐU 18 Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Ægis tjaldvagn Norðaustanátt í dag og verður vindurinn víðast hvar á bilinu 8 til 15 m/s. Rigning með köflum um landið norðan- og austanvert, en yfirleitt bjartviðri syðra. Hiti frá 3 stigum norðaustan til upp í 13 stig sunnanlands. NEPAL Skól ar í Nepal hafa nú hafið starf semi á ný eft ir skjálft- ana sem riðu yfir í lok apríl og byrj un maí. Frá þessu greinir The Guardian. Mörg hundruð skól ar skemmd- ust mikið eða urðu gjör sam lega ónot hæf ir í skjálftanum og hafa tímabundin skólaskýli verið sett upp til þess að börn geti notið verndar og fengið aftur reglu í líf sitt. Börn in sem snúa aft ur í skól- ann glíma enn við af leiðing ar nátt úru ham far anna en tæplega níu þúsund létu lífið í skjálftan- um. - ngy Hundruð skóla skemmdust: Skólar í Nepal hefja starfsemi RÚSSLAND Rússnesk stjórnvöld settu saman í vikunni lista yfir þá sem bannað er að koma til lands- ins. Listinn var ekki ætlaður til opinberrar birtingar, en hann var afhentur sendinefnd Evrópusam- bandsins í Moskvu í vikunni og lak til fjölmiðla. Áttatíu og níu stjórn- málamenn eru á listanum. Meðal þeirra sem eru á listan- um er Nick Clegg, fyrrverandi aðstoðar forsætisráðherra Bret- lands. Enginn Íslendingur er á list- anum. - ngy Listinn lak til fjölmiðla: Bannlisti Rússa birtur á netinu SAMGÖNGUR Búið er að grafa um 6,6 kílómetra af Norðfjarðar- göngum eða um 87% heildarvega- lengdarinnar. Ágætur gangur er í gangagreftrinum en nokkuð vatn hefur sett örlítið strik í reikn- inginn. Gangagröfturinn er því á áætlun. Upphafleg áætlun gerði ráð fyrir að grafa rúmlega sjö og hálfan kílómetra og steypa um 350 metra af vegskálum. Göngin leysa af hólmi Oddskarðsgöng milli Eskifjarðar og Neskaup- staðar sem gerð voru árið 1973 og liggja í um 630 metra hæð yfir sjávarmáli. - sa Miðar vel í Norðfirði: Búið að grafa 6,6 kílómetra 2 7 -1 2 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 D 4 -B F B C 1 7 D 4 -B E 8 0 1 7 D 4 -B D 4 4 1 7 D 4 -B C 0 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 5 6 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.